Hvernig verð ég vottur Jehóva?
Í Matteusi 28:19, 20 lýsir Jesús þeim skrefum sem þarf að stíga til að verða vottur Jehóva. Þessi vers útlista hvað þarf að gera til að verða lærisveinn Krists, eða sá sem ber vitni um Jehóva.
1. skref: Kynntu þér Biblíuna. Jesús sagði fylgjendum sínum að ‚gera fólk að lærisveinum og kenna því‘. (Matteus 28:19, 20) Orðið sem er þýtt „lærisveinn“ merkir bókstaflega ‚nemandi‘. Hver sem er getur orðið nemandi með því að þiggja ókeypis biblíunámskeið okkar. (Matteus 10:7, 8; 1. Þessaloníkubréf 2:13) Það sem stendur í Biblíunni, sérstaklega það sem Jesús kenndi, getur hjálpað þér að eiga gott og innihaldsríkt líf. – 2. Tímóteusarbréf 3:16, 17.
2. skref: Farðu eftir því sem þú lærir. Jesús sagði að þeir sem vildu fylgja honum ættu að „halda öll fyrirmæli [hans].“ (Matteus 28:20) Það þýðir að biblíunámið ætti að snúast um meira en að afla sér þekkingar. Það ætti að hafa þannig áhrif á þig að þig langi til að gera mikilvægar breytingar á hugsunarhætti þínum og hegðun. (Postulasagan 10:42; Efesusbréfið 4:22–29; Hebreabréfið 10:24, 25) Það er síðan persónulegt val hvers og eins hvort hann feti í fótspor Jesú með því að helga líf sitt því að þjóna Jehóva Guði. – Matteus 16:24.
3. skref: Láttu skírast. (Matteus 28:19) Í Biblíunni er skírn líkt við það að vera jarðaður. (Samanber Rómverjabréfið 6:2–4.) Hún táknar því í rauninni að grafa sitt gamla líf og hefja nýtt líf. Með skírn þinni sýnir þú opinberlega að þú hafir stigið fyrstu tvö skrefin og biðjir Guð nú um hreina samvisku. – Hebreabréfið 9:14; 1. Pétursbréf 3:21.
Hvernig veit ég hvort ég sé tilbúinn til að skírast?
Talaðu við safnaðaröldungana. Þeir spjalla við þig til að ganga úr skugga um að þú skiljir hvað skírn felur í sér, farir eftir því sem þú hefur lært og hafir helgað Guði líf þitt af fúsum og frjálsum vilja. – Postulasagan 20:28; 1. Pétursbréf 5:1–3.
Þurfa börn votta Jehóva líka að stíga þessi skref?
Já. Við fylgjum leiðbeiningum Biblíunnar „með því að aga [börnin okkar] og leiðbeina þeim eins og Jehóva vill“. (Efesusbréfið 6:4) En þegar þau vaxa úr grasi verða þau sjálf að ákveða hvort þau vilji fræðast um meginreglur Biblíunnar og lifa eftir þeim til að verða hæf til að skírast. (Rómverjabréfið 12:2) Þegar upp er staðið verður hver og einn að taka sína eigin ákvörðun í trúmálum. – Rómverjabréfið 14:12; Galatabréfið 6:5.