Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwyp grein 43
  • Hvernig getur mér samið við foreldra mína?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig getur mér samið við foreldra mína?
  • Ungt fólk spyr
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Ágreiningskönnun
  • Af hverju kemur upp ágreiningur?
  • Hvað getur þú gert?
  • Hvers vegna skilja foreldrar mínir mig ekki?
    Spurningar unga fólksins — svör sem duga
  • Hvað á ég að gera ef foreldrar mínir rífast?
    Spurningar unga fólksins — svör sem duga, 2. bindi
  • Hvernig get ég kynnst foreldrum mínum betur?
    Vaknið! – 2009
  • Hvernig get ég fengið foreldra mína til að gefa mér meira frjálsræði?
    Spurningar unga fólksins — svör sem duga
Sjá meira
Ungt fólk spyr
ijwyp grein 43
Ánægðir unglingar njóta þess að tala við foreldra sína á meðan þau rölta um garð.

UNGT FÓLK SPYR

Hvernig getur mér samið við foreldra mína?

  • Ágreiningskönnun

  • Af hverju kemur upp ágreiningur?

  • Hvað getur þú gert?

  • Hvað segja jafnaldrarnir?

Ágreiningskönnun

  • Hvort foreldra þinna ertu líklegri til að lenda í ágreiningi við?

    • Pabba

    • Mömmu

  • Hversu oft lendið þið í ágreiningi?

    • Sjaldan

    • Stundum

    • Oft

  • Hversu alvarlegur heldurðu að ágreiningurinn verði?

    • Það verður leyst úr honum fljótlega og friðsamlega.

    • Það verður leyst úr honum en bara eftir mikil rifrildi.

    • Það verður ekki leyst úr honum – jafnvel eftir mikil rifrildi.

Ef þér semur ekki vel við foreldra þína hugsarðu kannski að þeir þurfi að gera eitthvað í málunum. En eins og við munum sjá þá er ýmislegt sem þú getur gert til að draga úr ágreiningi. En fyrst skaltu íhuga eftirfarandi:

Af hverju kemur upp ágreiningur?

  • Skoðanir. Þegar þú þroskast ferðu að pæla meira í hlutunum en þú gerðir sem barn. Þú byrjar einnig að rækta með þér sterka sannfæringu – sem gæti stundum stangast á við það sem foreldrum þínum finnst. Biblían segir samt sem áður: „Sýndu föður þínum og móður virðingu.“ – 2. Mósebók 20:12.

    Staðreynd: Það krefst þroska og hæfni að vera ósammála án þess að vera óvingjarnlegur.

  • Sjálfstæði. Foreldrar þínir veita þér eflaust meira frelsi því meira sem þú þroskast. Vandamálið er að það er kannski ekki jafn mikið frelsi og þú vilt eða jafn snemma og þú vilt það og það getur vakið ágreining. Biblían segir samt sem áður: „Hlýðið foreldrum ykkar.“ – Efesusbréfið 6:1.

    Staðreynd: Oft ræðst frelsið sem þú færð frá foreldrum þínum á því hvernig þú notar frelsið sem þú hefur þegar fengið.

Hvað getur þú gert?

  • Einbeittu þér að þínu hlutverki. Hugsaðu um hvað þú getur gert til að stuðla að friði í stað þess að kenna foreldrum þínum um allt. Ungur maður sem heitir Jeffrey segir: „Það er ekki alltaf það sem foreldrar þínir segja heldur hvernig þú bregst við sem ýtir undir ágreining. Það er góð byrjun að halda ró sinni þegar maður ætlar að leysa úr ágreiningi.“

    Biblían segir: ‚Þið skuluð halda frið að svo miklu leyti sem það er á ykkar valdi.‘ – Rómverjabréfið 12:18.

  • Hlustaðu. „Mér finnst það erfiðast,“ viðurkennir Samantha, sem er 17 ára. „En ég hef líka komist að því að þegar foreldrarnir sjá að þú ert að hlusta á þá eru þeir líklegri til að hlusta á þig.“

    Biblían segir: ‚Vertu fljótur til að heyra og seinn til að tala.‘ – Jakobsbréfið 1:19.

    1. Það kviknar í pönnu á eldavélahellu. 2. Eldurinn fer úr böndunum.

    Ágreiningur er eins og eldur – ef honum er ekki haldið í skefjum þá fer hann úr böndunum.

  • Hugsaðu eins og liðsfélagi. Sjáðu ágreining fyrir þér eins og íþróttaleik, til dæmis tennis. En settu vandamálið – ekki foreldra þína – hinum megin við netið. „Í ágreining vilja foreldrarnir það sem er unglingnum fyrir bestu og unglingurinn vill það sem hann heldur að sé sér fyrir bestu,“ segir ungur maður sem heitir Adam. „Svo tæknilega séð eru þau að vinna að sama marki.“

    Biblían segir: „Gerum því allt sem við getum til að stuðla að friði.“ – Rómverjabréfið 14:19.

  • Sýndu skilning. „Mér finnst gott að muna að foreldrar þurfa líka að glíma við sín vandamál sem eru oft alveg jafn erfið og okkar,“ segir unglingur sem heitir Sarah. Ung kona sem heitir Carla tekur þetta skrefinu lengra. Hún segir: „Ég reyni að setja mig í spor foreldra minna. Hvernig væri það fyrir mig ef ég væri að ala upp barn og væri í svipaðri stöðu? Hvað væri barninu mínu fyrir bestu?“

    Biblían segir: „Hugsið ekki aðeins um eigin hag heldur einnig hag annarra.“ – Filippíbréfið 2:4.

  • Vertu hlýðinn. Þegar upp er staðið þá krefst Biblían þess að við séum það. (Kólossubréfið 3:20) Hlutirnir ganga mun betur ef þú fylgir því. „Það gerir lífið mun auðveldara þegar ég hlýði bara foreldrum mínum,“ segir ung kona sem heitir Karen. „Þau hafa þegar fórnað svo miklu fyrir mig að það er það minnsta sem ég get gert.“ Hlýðni er eitt besta mótefnið við ágreiningi.

    Biblían segir: „Eldurinn slokknar þegar eldiviðinn vantar.“ – Orðskviðirnir 26:20.

Tillaga: Ef þér finnst erfitt að ræða málin prófaðu þá að skrifa hugsanir þínar niður á blað eða í smáskilaboð. „Ég geri það þegar ég er ekki nógu vel stemmd til að tala,“ segir unglingur sem heitir Alyssa. „Það hjálpar mér að tjá mig án þess að öskra eða segja eitthvað sem ég gæti séð eftir.“

HVAÐ SEGJA JAFNALDRARNIR?

Marilyn.

„Þegar allir eru þreyttir verður vandamálið dramatískara. Stundum er það besta í stöðunni að taka bara pásu, knúsast og fara sofa. Þú sérð allt í skýrara ljósi um morguninn.“ – Marilyn.

Devin.

„Þolinmæði er eiginleiki sem getur hjálpað þér í gegnum hvað sem er. Ef rifrildi eru að byrja, taktu þá skref til baka, andaðu og hugsaðu. Flest vandamál skapast þegar við gerum eða segjum eitthvað í hita leiksins.“ – Devin.

Mackenzie.

„Ég vil klárlega ekki hugsa til baka og sjá eftir því hvernig ég kom fram við foreldra mína. Þegar ég hef þetta í huga á ég auðveldara með að hlusta og gera ekki stórmál úr öllu.“ – Mackenzie.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila