Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwyp grein 41
  • Hvernig get ég náð stjórn á reiði?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig get ég náð stjórn á reiði?
  • Ungt fólk spyr
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Próf
  • Hvers vegna skiptir það máli?
  • Hvað ættirðu að gera?
  • Að hemja skapið
    Vaknið! – 2015
  • Hvað segir Biblían um reiði?
    Biblíuspurningar og svör
  • Tilfinningaleg líðan
    Vaknið! – 2019
  • Er alltaf rangt að reiðast?
    Vaknið! – 1994
Sjá meira
Ungt fólk spyr
ijwyp grein 41
Andlit unglings endurspeglar: 1. yfirvegun, 2. óánægju, 3. reiði.

UNGT FÓLK SPYR

Hvernig get ég náð stjórn á reiði?

  • Próf

  • Hvers vegna skiptir það máli?

  • Hvað ættirðu að gera?

  • Hvað segja jafnaldrarnir?

Próf

  • Hversu oft reiðistu?

    • næstum aldrei

    • af og til

    • daglega

  • Hversu sterk verður reiðin?

    • ég reiðist svolítið

    • mér hitnar í hamsi

    • það sýður á mér

  • Hverjum reiðistu helst?

    • foreldri

    • systkini

    • vini

Ef þú áttar þig á að þú þarft að hafa stjórn á reiðinni getur þessi grein verið gagnleg. En fyrst skaltu hugleiða nokkrar ástæður fyrir því að það er mikilvægt að halda rónni þegar þú verður fyrir áreiti.

Hvers vegna skiptir það máli?

Eigin velferð. Í Orðskviðunum 14:30 stendur: „Hugarró er líkamanum líf.“ Á hinn bóginn segir í læknatímaritinu Journal of Medicine and Life: „Reiði getur beinlínis leitt til hjartasjúkdóma.“

Vinir þínir. Biblían segir: „Eigðu ekki félagsskap við skapbráðan mann og haltu þig fjarri þeim sem er fljótur að reiðast.“ (Orðskviðirnir 22:24) Ef þú átt erfitt með að hafa stjórn á reiðinni skaltu ekki vera hissa á því að fólk forðist þig. „Ef þú lærir ekki að hafa stjórn á skapinu,“ segir ung kona að nafni Jasmine, „gætirðu farið á mis við að mynda gefandi vináttubönd“.

Mannorð þitt: „Ef þú missir stjórn á skapinu,“ segir Ethan sem er 17 ára, „fréttist það og það mun hafa áhrif á hvaða augum aðrir líta á þig“. Spyrðu þig: „Hvernig vil ég að fólk líti á mig? Sem yfirvegaðan og friðsaman einstakling eða tifandi tímasprengju?“ Biblían segir: „Sá sem er seinn til reiði sýnir mikla skynsemi en hinn bráðláti lætur heimsku sína í ljós.“ – Orðskviðirnir 14:29.

Vinir unglings hörfa þegar hann missir stjórn á skapi sínu.

Enginn vill umgangast þann sem er skapbráður.

Hvað ættirðu að gera?

Hugleiddu eftirfarandi ritningarstaði og hvað aðrir segja. Spyrðu þig síðan spurninganna sem fylgja.

  • Orðskviðirnir 29:22: „Reiðigjarn maður vekur deilur, skapstyggur maður drýgir margar syndir.“

    „Snemma á unglingsárunum átti ég í mesta basli með að stjórna skapinu. Föðurætt mín á við þennan vanda að stríða. Við köllum þetta fjölskyldugenið. Við eigum mjög erfitt með að stjórna skapi okkar.“ – Kerri.

    Er ég reiðigjarn? Ef ég þigg hrós fyrir góða eiginleika er þá vit í því að kenna erfðum um slæma eiginleika?

  • Orðskviðirnir 15:1: „Milt svar stöðvar bræði en hvöss orð vekja reiði.“

    „Aðalmálið er að læra að hafa stjórn á tilfinningum sínum. Ef þú ræktar með þér mildi og beinir athyglinni að því jákvæða er reiðikast ekki í boði og málið er leyst.“ – Daryl.

    Hvers vegna eru fyrstu viðbrögð svo mikilvæg þegar einhver reynir að reita mig til reiði?

  • Orðskviðirnir 26:20: „Eldurinn slokknar þegar eldiviðinn vantar.“

    „Þegar ég svara vingjarnlega róar hinn aðilinn sig yfirleitt og við getum rætt málin án þess að láta tilfinningarnar taka völdin.“ – Jasmine.

    Hvernig gætu orð mín eða verk bætt olíu á eldinn?

  • Orðskviðirnir 22:3 „Hinn skynsami sér hættuna og felur sig en hinir óreyndu ana áfram og fá að kenna á því.“

    „Stundum þarf ég bara að yfirgefa staðinn og gefa mér tíma til að hugsa um hvað hafi gerst. Þá get ég tekist á við vandann þegar ég er búinn að ná mér niður.“ – Gary.

    Hvenær gæti verið best að yfirgefa spennuþrungið andrúmsloft án þess að hinn aðilinn hafi á tilfinningunni að þú sért að snúa baki við honum?

  • Jakobsbréfið 3:2: „Við hrösum allir margsinnis.“

    „Við ættum að sjá eftir mistökum okkar en líka læra af þeim. Þegar við föllum þurfum við að standa strax upp aftur og vera ákveðin í að gera betur næst.“ – Kerri.

Gott ráð: Settu þér markmið. Einsettu þér að halda rónni í ákveðinn tíma – til dæmis í mánuð. Haltu dagbók til að fylgjast með framförum þínum.

HVAÐ SEGJA JAFNALDRARNIR?

Alyssa

„Ég var vön að álíta að þeir væru veikgeðja sem gæfu eftir án þess að reiðast nú er mér ljóst að þeir gætu hafa verið að sýna hógværð, en það er einn af mikilvægustu eiginleikunum sem hægt er að þroska. Það er ekki auðvelt að læra að hafa stjórn á skapinu en það er þess virði.“ – Alyssa.

Erik

„Með því að draga nokkrum sinnum djúpt inn andann fæ ég tíma til hugsa áður en ég geri eitthvað sem ég mun sjá eftir síðar. Reiðikast leysir aldrei neinn vanda en getur aftur á móti gert hlutina verri.“ – Erik.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila