Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwfq grein 61
  • Hvernig nota Vottar Jehóva framlögin?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig nota Vottar Jehóva framlögin?
  • Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Dæmi um starfsemi okkar
  • Hvernig er starfsemi okkar fjármögnuð?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
  • ,Reiðubúinn að færa Jehóva gjöf‘
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2018
  • Af hverju að gefa honum sem á allt?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2018
  • Hvernig er alþjóðlegt starf okkar fjármagnað?
    Hverjir gera vilja Jehóva?
Sjá meira
Spurningar og svör um Votta Jehóva
ijwfq grein 61
Samsett mynd: Ýmis konar trúarstarfsemi og hjálparstarf Votta Jehóva sem er kostað með frjálsum framlögum. 1. Vottar byggja ríkissal. 2. Sjálfboðaliði tekur þátt í hjálparstarfi og réttir konu sem er í neyð kippu af vatnsflöskum. 3. Vottur í trillustarfi talar við konu um efni í bæklingnum „Von um bjarta framtíð“.

Hvernig nota Vottar Jehóva framlögin?

Við notum framlögin til að fjármagna trúarstarfsemi safnaðarins og hjálparstarf. Það er þáttur í að vinna að aðalmarkmiði okkar sem er að hjálpa fólki að verða lærisveinar Jesú Krists. – Matteus 28:19, 20.

Við notum framlögin aldrei til að gera nokkurn mann ríkan. Hvorki öldungarnir né aðrir í söfnuðinum fá greitt fyrir þjónustu sína og vottum Jehóva er ekki borgað fyrir að ganga hús úr húsi. Allir sem þjóna á deildarskrifstofum okkar og á aðalstöðvunum, meðal annars þeir sem sitja í stjórnandi ráði Votta Jehóva, eru sjálfboðaliðar og fá ekki greidd laun.

Dæmi um starfsemi okkar

  • Útgáfa: Við þýðum, prentum, sendum og dreifum milljónum eintaka af Biblíunni og öðrum biblíutengdum ritum á hverju ári án þess að rukka fyrir það. Og á vefsíðunni jw.org og JW Library-appinu eru rafræn rit okkar fáanleg ókeypis og án auglýsinga.

    Vottur Jehóva vinnur í prentsmiðju og athugar gæði biblíu sem er nýbúið að prenta.
  • Byggingarvinna og viðhald: Við byggjum og viðhöldum látlausum samkomustöðum um allan heim til að söfnuðir hafi hentugt húsnæði til að safnast saman og lofa Guð. Hið sama á við um deildarskrifstofur og þýðingarstofur. Sjálfboðaliðar sjá um stóran hluta þessarar vinnu og það lækkar kostnaðinn.

    Vottur setur upp vinnupall fyrir utan samkomuhús Votta Jehóva.
  • Umsýsla: Starfsemin á aðalstöðvunum, deildarskrifstofum og þýðingastofum auk starfsemi farandhirða er fjármögnuð með frjálsum framlögum til alþjóðastarfs okkar.

    Vottur Jehóva sinnir umsjónarstörfum við skrifborð.
  • Boðun: Vottar Jehóva fá ekki borgað fyrir að flytja fagnaðarboðskapinn eða kenna öðrum „orð Guðs“. (2. Korintubréf 2:17) En líkt og í frumkristna söfnuðinum á fyrstu öld er einstaka vottum sem hafa fengið þjálfun í boðuninni og verja mestum tíma sínum í henni séð fyrir látlausu húsnæði og öðrum nauðsynjum. – Filippíbréfið 4:16, 17; 1. Tímóteusarbréf 5:17, 18.

    Vottahjón í boðuninni sýna manni biblíutengt myndband.
  • Fræðsla: Mótin okkar eru kostuð með frjálsum framlögum. Auk þess gefum við út hljóð-og myndefni. Við erum líka með skóla þar sem boðberar í fullu starfi og öldungar fá þjálfun til að sinna verkefnum sínum enn betur.

    Mótsgestir horfa á myndband á stórum leikvangi.
  • Neyðaraðstoð: Við útvegum mat, vatn og húsaskjól fyrir fórnarlömb náttúruhamfara og hamfara af völdum manna. Bæði trúsystkini okkar og aðrir njóta gagns af þessu hjálparstarfi. – Galatabréfið 6:10.

    Nokkrir vottar í vöruhúsi undirbúa bretti með neyðarbirgðum.
    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila