Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • mrt grein 131
  • Hjálp handa blindum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hjálp handa blindum
  • Fleiri viðfangsefni
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Hvernig lítur Guð á þá sem eru blindir?
  • Hvernig aðstoða Vottar Jehóva?
  • Hvaða biblíunámsgögn bjóðum við upp á?
  • Hjálpum blindum að læra um Jehóva
    Ríkisþjónusta okkar – 2015
  • Tökum framförum í boðuninni – boðum blindum trúna
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2020
  • Líf án sjónar
    Vaknið! – 2016
  • Hljóðupptökur – hvernig getum við notað þær?
    Ríkisþjónusta okkar – 2015
Sjá meira
Fleiri viðfangsefni
mrt grein 131
Blindur maður situr á bekk og hlustar á hljóðupptöku í „JW Library“-appinu.

Hjálp handa blindum

Áætlað er að 43 milljónir jarðarbúa séu blindar og 295 milljónir sjónskertar.a Því miður er illa komið fram við marga þeirra og þeir eru jafnvel órétti beittir.

Hvernig lítur Guð á þá sem eru blindir? Hvað er sagt um þá í Biblíunni? Og hvað gera Vottar Jehóva til að aðstoða þá?

Hvernig lítur Guð á þá sem eru blindir?

Í Biblíunni kemur fram að Jehóvab er mjög annt um blinda. Hann vill að vel sé komið fram við þá og að þeir geti nýtt sér þá menntun sem hann býður upp á. Hann veitir þeim líka stórkostlega framtíðarvon.

Biblíuvers: „Bölvaður er sá sem leiðir blindan mann afvega.“ – 5. Mósebók 27:18.

Skýring: Lögin sem Guð setti þjóð sinni til forna vernduðu blinda einstaklinga fyrir illri meðferð.

Biblíuvers: „Guð mismunar ekki fólki.“ – Postulasagan 10:34.

Skýring: Blindir og sjáandi eru jafn mikils virði í augum Guðs.

Biblíuvers: Jesús „gaf mörgum blindum sjón“. – Lúkas 7:21.

Skýring: Þegar Jesús gaf sumum blindum sjónina sýndi hann hverju ríki Guðs kemur til leiðar í framtíðinni.

Biblíuvers: „Þá munu augu blindra opnast.“ – Jesaja 35:5.

Skýring: Jehóva lofar að blindir fái sjónina í náinni framtíð þegar ríki hans hefur tekið völd á jörðinni.

Hvernig aðstoða Vottar Jehóva?

Vottar Jehóva segja blindum um allan heim frá vonarboðskap Guðs. Hvernig förum við að því?

  • Við gefum út Biblíuna, biblíunámsrit og myndbönd með ýmiss konar sniði sem blindir og sjónskertir geta nýtt sér. Margt er til upplesið og á sumum tungumálum eru til rit með blindraletri og stækkuðu letri.

  • Við höldum reglulegar safnaðarsamkomur sem eru öllum opnar, þar á meðal blindum.

  • Við bjóðum upp á biblíunámskeið með einkakennara og gagnvirku námsefni.c

Þetta er allt í boði endurgjaldslaust. Af hverju? Af því að Jesús sagði: „Gefins hafið þið fengið, gefins skuluð þið láta í té.“ – Matteus 10:8.

Vottum Jehóva er mjög umhugað um þá sem eru blindir. Samfélag okkar styður við bakið á öllum sem vilja tilbiðja Guð með okkur. Skoðum nokkur dæmi um blinda votta Jehóva sem segja sögu sína.

Talita Alnashi býr í Svíþjóð og hefur verið sjónskert frá fæðingu. Kynntu þér hvernig foreldrar hennar hafa frætt hana um Biblíuna og hvernig hún og fjölskylda hennar hafa notið kærleika og stuðnings góðra vina.

James Ryan býr í Bandaríkjunum. Hann fæddist heyrnarlaus og missti síðar sjónina. Sjáðu hvernig hann getur lifað innihaldsríku lífi.

Cynthia Pablo.

Cynthia Pablo býr á Filippseyjum og er daufblind. Hvernig naut hún stuðnings trúsystkina sinna í COVID-19 faraldrinum? Þú getur lesið um hana í greininni „Congregation Supports Deaf and Blind Sister During Pandemic“.

Hvaða biblíunámsgögn bjóðum við upp á?

Blindur maður notar blindraletursskjá.

Rit með blindraletri. Við gefum út Biblíuna með blindraletri í heild eða að hluta á mörgum tungumálum. (Í rammanum „Nýheimsþýðing Biblíunnar með blindraletri“ má sjá hvaða tungumál eru í boði.) Við gefum líka út mörg af biblíutengdum ritum okkar með blindraletri. Einnig gefum við út vinnubók sem heitir Learn to Read Braille handa þeim sem langar til að læra að lesa blindraletur. Hún er gerð til að sjáandi manneskja geti hjálpað blindum einstaklingi að læra að lesa blindraletur.

  • Hægt er að fá rit með blindraletri með því að tala við vott Jehóva eða með því að panta heimsókn.

  • Á jw.org er hægt að sækja skrár fyrir blindraletursskjái.d

Rit með stóru letri og stafrænt efni sem hægt er að þysja inn. Mörg af ritunum okkar eru til með stóru letri handa þeim sem eru sjónskertir. Vefurinn jw.org er hannaður þannig að efnið skili sér rétt jafnvel þegar vefsíða er þysjuð inn. Í JW Library-appinu er einnig hægt að breyta leturstærð.

  • Hægt er að fá prentuð rit með stóru letri með því að tala við vott Jehóva eða með því að panta heimsókn.

  • Á jw.org er hægt að sækja stafræna útgáfu með stóru letri af ritum sem samsvara prentuðu útgáfunum.

Hljóðbækur. Við gefum Nýheimsþýðingu Biblíunnar út í hljóðbókarformi á meira en 200 tungumálum. Mörg biblíutengd rit okkar eru einnig til sem hljóðbækur. Oft fylgja hljóðlýsingar á myndum.

  • Þú getur streymt eða sótt hljóðskrár á jw.org og í JW Library-appinu á ýmsum tungumálum.

  • Á jw.org er hægt að sækja skrár fyrir skjálestrarforrit og hljóðbókalesara.e

Táknmynd af talandi manni.

Myndbönd með hljóðlýsingum.f Vottar Jehóva bjóða upp á biblíutengd myndbönd með hljóðlýsingum á rösklega 100 tungumálum, til dæmis ensku. Þau varpa ljósi á hvernig fólk getur nýtt sér ráð Biblíunnar.

Hér eru dæmi um myndbandaflokka með hljóðlýsingum:

  • For a Happy Marriage

  • The Bible Changes Lives

  • Whiteboard Animations

Samkomur og viðburðir. Við erum með söfnuði um allan heim þar sem við hittumst í hverri viku til að fá fræðslu og tilbiðja Guð. Eins eru stærri viðburðir haldnir á ári hverju þar sem biblíufræðsla fer fram. Á viðburðum þar sem sýnd eru myndbönd reynum við að bjóða upp á hljóðlýsingar handa þeim sem á þurfa að halda. Þar sem hægt er bjóðum við upp á snertitúlkun handa þeim sem eru daufblindir, bæði á samkomum og stærri viðburðum. Allir eru velkomnir og engum er mismunað.

  • Finndu söfnuð í nágrenni þínu.

  • Fáðu upplýsingar um árleg umdæmis- og svæðismót okkar.

  • Þér er boðið að sækja minningarhátíðina um dauða Jesú, en það er mikilvægasti viðburður ársins hjá okkur.

José Luis Ayala býr í Mexíkó. Hann fæddist heyrnarlaus og missti sjónina 29 ára. Kynntu þér hvaða hlutverki samkomurnar gegna í lífi hans og hvernig hann fékk aðstoð til að verða fær biblíukennari.

Nýheimsþýðing Biblíunnar með blindraletri

Hinn 1. maí 2025 var þessi auðskilda þýðing Biblíunnar til með blindraletri á eftirfarandi tungumálum:

ensku

frönsku

georgísku

grísku

hollensku

ítölsku

japönsku

kóresku

portúgölsku (brasilískri)

rússnesku

síseva

spænsku

ungversku

úkraínsku

þýsku

a Með sjónskerðingu er átt við að sjón sé það skert að einstaklingur eigi erfitt með daglegt líf og skerðingin verði ekki bætt. Þegar talað er um blindu í þessari grein er bæði átt við algjöra blindu og sjónskerðingu.

b Jehóva er nafn Guðs. (Sálmur 83:18) Sjá greinina „Hver er Jehóva?“

c Hægt er að biðja um prufutíma á slíku námskeiði. Fræðslan er ókeypis.

d Með blindraletursskjá er átt við handhægt rafeindatæki með ramma sem hleypir upp blindraletri, les upp texta eða hvort tveggja. Í rammanum eru pinnar sem er hleypt upp á víxl til að mynda blindraleturstákn. Hægt er að nota blindraletursskjá í staðinn fyrir safn blindraletursbóka.

e Skjálesarar og stafrænir hljóðbókalesarar eru notaðir til að lesa upp texta, annaðhvort með talgervli eða hljóðupptökum. Þessi tækni býður upp á að hoppa á ákveðna staði í ritinu.

f Hljóðlýsingar eru upplesnar lýsingar sem bætt er við myndband til að útskýra hvað er að gerast á skjánum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila