Imagination World/stock.adobe.com
Boðskapur frá orði Guðs – von handa flóttafólki
Á ári hverju neyðast milljónir manna til að flýja að heiman. Það er erfið lífsreynsla. En þótt þú hafi orðið fyrir því þarftu ekki að takast á við það upp á eigin spýtur. Guð gefur flóttafólki von um betra líf og þú getur kynnt þér hana með hjálp Biblíunnar.
„Flóttafólk og vegalaust fólka þarf ekki bara að fá neyðaraðstoð,“ segir Christos Stylianides, yfirmaður almannavarna og neyðaraðstoðar hjá Evrópusambandinu. „Fólk þarf líka að hafa … von um betri framtíð.“ Þeir sem eiga von hafa tilefni til að líta framtíðina björtum augum. En flóttafólk þarf líka að fá hughreystingu til að vinna úr þeim tilfinningalegu áföllum sem það hefur orðið fyrir.
„Það var óbærileg tilfinning að þurfa að flýja land og skilja fjölskylduna eftir. Ég var gagntekinn ótta, hryggð og kvíða.“ – Emmanuel, Haítí.
Geturðu sett þig í spor Emmanuels? Ef þú hefur flúið að heiman þarftu að fá hughreystingu og eignast von. Hvernig getur orð Guðs, Biblían, hjálpað þér?
Biblían hughreystir
Biblían segir: „Jehóvab … elskar útlendinginn.“ – 5. Mósebók 10:17, 18.
Þetta merkir að þú ert ekki einn á báti. Jehóva Guð, höfundur Biblíunnar, skilur hvaða aðstæðum þú ert í. Hann elskar þig og honum er annt um velferð þína.
Biblían segir: „Jehóva er nálægur öllum sem ákalla hann.“ – Sálmur 145:18.
Þetta merkir að Jehóva heyrir til þín þegar þú biður til hans. Hann getur hjálpað þér að finna hugarfrið. Í Biblíunni er líka að finna viturleg ráð sem geta auðveldað þér að takast á við tilfinningar þínar.
Biblían segir: „Það er óhugsandi að hinn sanni Guð geri nokkuð illt … Hinn almáttugi fellir ekki rangláta dóma.“ – Jobsbók 34:10, 12.
Þetta merkir að þjáningar þínar eru ekki Guði að kenna. Hann er ekki að refsa þér og hann er ekki að reyna þig með þér að gera þér lífið erfitt.
Von sem Biblían veitir
Í Biblíunni kemur fram hvað Guð ætlar að gera fyrir okkur í framtíðinni. Kynntu þér hvernig þessi von hjálpar fólki sem hefur þurft að flýja heimili sitt.
Biblían segir: „[Guð] mun þerra hvert tár af augum þeirra og dauðinn verður ekki til framar. Engin sorg, angistaróp né kvöl verður heldur til.“ – Opinberunarbókin 21:4.
Þetta merkir að þjáningar okkar taka enda. Guð lofar að leysa öll þau vandamál sem gera að verkum að okkur getur fundist lífið vonlaust.
„Guð á eftir að binda enda á allt ranglætið og illskuna í kringum okkur. Vonin um það hjálpar mér að hugsa til þess dags þegar allar þjáningar taka enda.“ – Karla, El Salvador.
Biblían segir: „Hins fyrra verður ekki minnst framar og það mun ekki íþyngja hjartanu.“ – Jesaja 65:17.
Þetta merkir að sárar minningar hætta að plaga okkur. Guð sér til þess að þungbærar minningar um liðna tíð eiga ekki eftir að þjaka þig endalaust.
„Biblían lofar því að við munum ekki einu sinni eftir þeim sársauka og missi sem við urðum fyrir. Vonin um það hjálpar mér að takast á við þær erfiðu aðstæður sem við erum í vegna þess að við vitum að bráðlega verður allt breytt.“ – Natalía, Úkraínu.
Biblían segir: „Guð himinsins [mun] stofnsetja ríki sem … molar öll þessi ríki og gerir þau að engu.“ – Daníel 2:44.
Þetta merkir að fullkomin stjórn á himnum mun ráða yfir jörðinni. Bráðlega lætur Guð sína eigin stjórn á himnum taka við af öllum stjórnvöldum jarðar. Stjórn hans kemur á sönnum friði og öryggi og tryggir öllum réttlæti og velsæld. – Míka 4:3, 4.
„Það er uppörvandi fyrir mig að vita til þess að vandamál eins og kúgun, misrétti, tortryggni og kynþáttafordómar eru bara tímabundin. Ríki Jehóva mun bráðlega greiða úr öllum þessum vandamálum.“ – Mustafa, Miðausturlöndum.
Sæktu hugarfrið í vonarboðskap Biblíunnar.
Viska Biblíunnar
Viska Biblíunnar getur hjálpað þér að sætta þig smám saman við það sem þú hefur orðið fyrir. Hún getur líka gert þér kleift að takast á við breyttar aðstæður, þar á meðal fjárhagslegt tjón. Eftirfarandi meginreglur hafa hjálpað mörgu flóttafólki:
Biblían segir: „Eigur manns veita honum ekki líf þótt hann búi við allsnægtir.“ – Lúkas 12:15.
Þessi viturlegu orð geta hjálpað þér að ráða við aðstæður þínar: Áföllin hafa vafalaust verið þér erfið og þú finnur sárlega til þess sem þú hefur misst. En hugleiddu stundarkorn hve mikils virði það er fyrir þig að vera á lífi. Það getur auðveldað þér að sætta þig við missinn.
„Lífið er verðmætara en efnislegir hlutir. Við ýmsar aðstæður koma peningar eða eignir að engu gagni.“ – Natalía, Úkraínu.
Biblían segir: „Segðu ekki: ‚Hvers vegna var allt betra áður?‘“ – Prédikarinn 7:10.
Þessi viturlegu orð geta hjálpað þér að ráða við aðstæður þínar: Núverandi aðstæður geta verið mjög erfiðar fyrir þig. Reyndu samt að hugsa ekki of mikið um hvernig þú hafðir það áður. Það dregur úr líkunum á að þú verðir bitur.
„Mér hefur tekist að vera jákvæður með því að sætta mig við þær aðstæður sem ég bý við núna.“ – Eli, Rúanda.
Biblían segir: „Ef við höfum mat og fatnað skulum við því láta okkur það nægja.“ – 1. Tímóteusarbréf 6:8.
Þessi viturlegu orð geta hjálpað þér að ráða við aðstæður þínar: Reyndu að sætta þig við að hafa aðeins helstu nauðsynjar. Ef þú ert nægjusamur dregur það að öllum líkindum úr stressi og kvíða hjá þér.
„Biblían hjálpar mér að sjá efnislega hluti í öðru ljósi og hugsa ekki of mikið um það sem ég þurfti að skilja eftir. Við hjónin erum ánægð með að vera óhult og á lifi.“ – Ívan, Úkraínu.
Biblían segir: „Allt sem þið viljið að aðrir geri fyrir ykkur skuluð þið gera fyrir þá.“ – Matteus 7:12.
Þessi viturlegu orð geta hjálpað þér að ráða við aðstæður þínar: Þér semur líklega betur við aðra ef þú leggur þig fram um að vera þolinmóður og góðviljaður. Það getur dregið úr fordómum og stuðlað að því að samfélagið sé jákvætt í þinn garð.
„Flestir kunna að meta það ef maður sýnir kærleika, góðvild og virðingu. Það stuðlar að góðum samskiptum við heimamenn.“ – Angelo, Srí Lanka.
Biblían segir: „Segið Guði frá öllu sem ykkur liggur á hjarta … Friður Guðs … mun þá vernda hjörtu ykkar og huga.“ – Filippíbréfið 4:6, 7.
Þessi viturlegu orð geta hjálpað þér að ráða við aðstæður þínar: Segðu Guði frá tilfinningum þínum, þörfum, ótta og áhyggjum. Slíkar bænir geta dregið úr kvíða og komið í veg fyrir að þú látir bugast af aðstæðum þínum.
„Ég bið til Guðs þegar ég á í erfiðleikum og hann bænheyrir mig. Það sem ég hef lært af Biblíunni veitir mér hugarfrið.“ – Yol, Suður-Súdan.
„Góð ráð Biblíunnar gefa mér hugarfrið sem ég þarf á að halda til að glíma við þessar erfiðu aðstæður.“ – Valentína, Úkraínu.
„Það styrkir mig að vita að Jehóva Guð skuli lofa bjartri framtíð.“ – Emmanuel, Haítí.
Biblían hefur að geyma fögur loforð um huggun og frið. Langar þig til að vita meira um þau og kanna hvers vegna þú getur treyst þeim? Vottar Jehóva eru meira en fúsir til að veita þér ókeypis aðstoð.
a Samkvæmt skilgreiningu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna teljast þeir flóttamenn og hælisleitendur sem eru vegalausir í eigin landi eða erlendis, jafnvel þótt þeir teljist ekki flóttamenn í lagalegum skilningi.
b Guð heitir Jehóva. (Sálmur 83:18) Sjá greinina „Hver er Jehóva?“