Thai Liang Lim/E+ via Getty Images
HALTU VÖKU ÞINNI
Áhrif samfélagsmiðla á unga fólkið áhyggjuefni um heim allan
Á árinu 2025 hafa ríkisstjórnir um heim allan lýst yfir áhyggjum sínum yfir þeim áhrifum sem samfélagsmiðlar hafa á ungt fólk. Eitt land hefur bannað samfélagsmiðlanotkun barna undir 16 ára aldri og önnur lönd íhuga að grípa til sams konar aðgerða.
Það er athyglisvert að sumir unglingar sjá jafnvel að notkun samfélagsmiðla getur verið skaðleg. Rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum á vegum Pew Research Center og var birt í apríl 2025 leiddi í ljós að ‚um helmingur unglinga (48%) telur að samfélagsmiðlar hafi aðallega neikvæð áhrif á krakka á þeirra aldri‘.
Heilbrigðisstarfsmenn hafa varað við áhrifum samfélagsmiðla á geðheilsu ungs fólks. Dr. Vivek Murthy, sem var landlæknir Bandaríkjanna á síðasta ári, sagði: „Geðraskanir hjá ungu fólki eru neyðarástand – og samfélagsmiðlar eiga stóran þátt í því.“
Hvernig geta foreldrar verndað börnin sín fyrir hættunni sem stafar af samfélagsmiðlum? Biblían gefur góð ráð.
Hvað geta foreldrar gert?
Skoðaðu eftirfarandi meginreglur Biblíunnar.
„Skynsamur maður íhugar hvert skref.“ – Orðskviðirnir 14:15.
Hafðu hætturnar í huga og láttu ekki þrýsta á þig að leyfa barninu að nota samfélagsmiðla. Fullvissaðu þig um að barnið þitt hafi nægan þroska til að halda sig við ákveðinn tímaramma, halda heilbrigðri vináttu við aðra og forðast óviðeigandi efni áður en þú leyfir því að nota samfélagsmiðla.
Lestu greinarnar „Ætti barnið mitt að nota samfélagsmiðla?“ og „Kenndu unglingnum örugga notkun samfélagsmiðla“ til að fræðast meira um þetta efni.
„Notið tímann sem best.“ – Efesusbréfið 5:16.
Settu reglur um notkun samfélagsmiðlanna ef þú leyfir barninu þínu að nota þá og útskýrðu hvernig reglurnar eru því til verndar. Vertu vakandi fyrir breytingum á hegðun barnsins sem gætu verið merki um að þú þurfir að takmarka aðgang þess að samfélagsmiðlum.
Notaðu töfluteikninguna Skynsemi á samskiptasíðum til að hjálpa barninu að skilja hvers vegna þarf að setja takmörk.
Fleiri ráð byggð á Biblíunni um hvað foreldrar geta gert er að finna í greininni „Háttsettur læknir varar við áhrifum samfélagsmiðla á ungt fólk – hvað segir Biblían?“
Meira
Biblían segir að núna séu „hættulegir og erfiðir tímar“. (2. Tímóteusarbréf 3:1–5) En hún gefur líka sígild ráð sem geta hjálpað okkur í gegnum erfiðleikana. Í greininni „Unglingum sem glíma við geðræn vandamál fjölgar ört – hvað segir Biblían?“ er listi yfir meira en 20 biblíutengd ráð fyrir foreldra og börn.