Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 júní bls. 14–19
  • Njótum góðs af því að tilheyra starfshópi

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Njótum góðs af því að tilheyra starfshópi
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • UMSJÓNARMAÐUR STARFSHÓPS OG AÐSTOÐARMAÐUR HANS
  • LEGGÐU ÞITT AF MÖRKUM TIL AÐ STARFSHÓPNUM GANGI VEL
  • NJÓTUM GÓÐS AF ÞVÍ AÐ TILHEYRA STARFSHÓPI
  • Hvernig getur starfshópurinn verið okkur til góðs?
    Ríkisþjónusta okkar – 2012
  • Samansafnanir fyrir boðunarstarfið
    Ríkisþjónusta okkar – 2009
  • Hópstarf er ánægjulegt
    Ríkisþjónusta okkar – 2003
  • Bóknámsumsjónarmenn sýna persónulegan áhuga
    Ríkisþjónusta okkar – 2002
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 júní bls. 14–19

24.–30. ÁGÚST 2026

SÖNGUR 65 Sækjum fram

Njótum góðs af því að tilheyra starfshópi

„Ég vil lofa Jehóva af öllu hjarta í hópi réttlátra.“ – SÁLM. 111:1.

Í HNOTSKURN

Fjallað er um hvaða gagn við getum haft af því að tilheyra starfshópi.

1, 2. Hvað finnst mörgum um það að fá að tilheyra starfshópi?

MANSTU eftir deginum sem samþykkt var að þú værir orðinn boðberi fagnaðarboðskaparins? Þetta var ánægjulegur dagur því að nú tilheyrðir þú fjölmennum hópi fólks sem lofar nafn Jehóva. (Sálm. 148:1, 2, 12, 13) En þennan sama dag varstu kannski líka kominn í annan hóp með miklu færri bræðrum og systrum – starfshópinn. Starfshóparnir gegna mikilvægu hlutverki í að hjálpa okkur að boða fagnaðarboðskapinn um ríkið „um alla jörðina“. – Matt. 24:14.

2 Hvað finnst þér um að tilheyra starfshópi? Systir sem heitir Wendya segir: „Þessi ráðstöfun hefur haft mikil áhrif á boðunina hjá mér. Ég hef lært nýjar boðunar- og kennsluaðferðir af öðrum, hef fengið hjálp til að setja mér markmið í þjónustu Jehóva og ná þeim og eignast trausta vini.“ Rich segir: „Það er mjög gefandi að sjá um starfshóp. Sumir boðberar aðstoða einstakling þannig að hann verði hæfur til að skírast en umsjónarmaðurinn fær tækifæri til að hjálpa honum að taka framförum í mörg ár eftir það.“ Systir sem heitir Dinah segir: „Það er fábært að tilheyra starfshópi. Ég lít á hópinn sem fjölskyldu mína.“

3. Um hvað er rætt í þessari grein?

3 Í þessari grein byrjum við á því að ræða hvaða hlutverki umsjónarmaður starfshópsins og aðstoðarmaður hans gegna og könnum hvernig þeir annast þá sem tilheyra hópnum. Síðan skoðum við hvernig við getum stutt hvert annað í hópnum. Að lokum fjöllum við um hvernig við getum notið góðs af þessu fyrirkomulagi.

UMSJÓNARMAÐUR STARFSHÓPS OG AÐSTOÐARMAÐUR HANS

4. (a) Hvert er aðalverkefni þeirra sem sjá um starfshóp? (b) Hvernig annast umsjónarmaður þá sem eru í hópnum hans? (Sjá rammann „Hugmyndir fyrir umsjónarmann starfshóps“.)

4 Umsjónarmaður starfshóps er öldungurb sem öldungaráðið hefur falið að hjálpa hópi boðbera að styrkja sambandið við Jehóva og verða færari boðberar og kennarar. Hvernig fer hann að því? Í fyrsta lagi sýnir hann hverjum og einum í hópnum áhuga. (Orðskv. 27:23) Hann er vakandi fyrir velferð þeirra og heldur góðu sambandi við þá. Það auðveldar honum að hvetja þá, styðja þá tilfinningalega og aðstoða þá eftir þörfum. (Orðskv. 12:25; Jes. 32:2; Jak. 2:15–17) Í öðru lagi hjálpar hann öllum að taka sem mestan þátt í boðuninni. Hann tekur góða forystu í að boða trúna, sérstaklega um helgar. Hann starfar reglulega með öllum í hópnum til að hvetja þá og þjálfa. Stöku sinnum getur verið að hann komist ekki í boðunina en þá sér hann til þess að aðstoðarmaður hans eða annar hæfur boðberi hlaupi í skarðið. Í þriðja lagi hjálpar hann skírðum bræðrum að taka framförum þannig að þeir geti tekið að sér ábyrgðarstörf í söfnuðinum. (1. Tím. 3:1) Hann hrósar þeim einlæglega, gefur þeim biblíuleg ráð og þjálfar þá svo að þeir geti með tíð og tíma orðið safnaðarþjónar og öldungar. Umsjónarmaður starfshóps gegnir mjög mikilvægu hlutverki. Þess vegna velur öldungaráðið þá sem eru best til þess fallnir að sjá um starfshópana.

Hugmyndir fyrir umsjónarmann starfshóps

  • Hafðu samansafnanir stuttar, ekki lengri en sjö mínútur, þannig að boðberarnir komist fljótt út í boðunina.

  • Starfaðu með eins mörgum boðberum í hópnum og þú getur, þar á meðal þeim sem eru ekki í aðstöðu til að mæta reglulega í samansafnanir. Kannski geturðu starfað með þessum boðberum á öðrum degi eða kvöldi.

  • Hvettu og uppörvaðu alla í hópnum reglulega. Þú getur farið í hirðisheimsóknir til boðberanna eða rætt við þá í ríkissalnum eða á öðrum hentugum stað. Það er líka hægt að hvetja og uppörva með símtali eða bréfi.

  • Þjálfaðu bræður svo að þeir geti nýtt krafta sína sem best og orðið hæfir til að taka á sig meiri ábyrgð.

  • Hugsaðu um þá sem eru í hópnum þínum þó að þið séuð með sameiginlega samansöfnun með öðrum hópum.

5. Hvað eiga sumir umsjónarmenn starfshópa við að glíma?

5 Það getur reynt á að sjá um starfshóp og annast hann vel. Jörg sér um hóp í söfnuði í Þýskalandi. Eins og margir öldungar er hann með fleiri en eitt verkefni í söfnuðinum. Hann segir: „Það reynir á að sinna öllum verkefnunum vel. Ég á ekki auðvelt með að ná því markmiði mínu að hafa samband við alla í hópnum.“ Abel, sjötugur öldungur í Úganda, segir: „Það eru mjög fáir öldungar og safnaðarþjónar í söfnuðinum okkar. Þess vegna eru starfshóparnir frekar stórir. Mér finnst erfitt að sinna öllum boðberunum eins oft og ég vildi.“ Og Obed, sem er öldungur í Súrínam, segir: „Ég hef ánægju af því að kenna bræðrum að sinna verkefnum. En það kostar tíma og krafta og árangurinn sést ekki alltaf strax. Þar af leiðandi situr það oft á hakanum.“ Hvað getur hjálpað öldungum sem eiga við þetta eða eitthvað svipað að glíma?

6. Hvernig hjálpar það umsjónarmönnum að starfshóparnir séu frekar litlir?

6 Ef hægt er ættu starfshóparnir að vera tiltölulega litlir þannig að umsjónarmaðurinn geti kynnst öllum vel og hjálpað þeim að eiga sterkt samband við Jehóva. En hvað ef það eru fáir öldungar í söfnuðinum? Í stað þess að hafa hópana svo stóra að umsjónarmaðurinn geti ekki sinnt verkefni sínu sem skyldi gæti öldungaráðið falið safnaðarþjóni að sjá tímabundið um hóp. Ef hóparnir eru frekar litlir eiga umsjónarmennirnir auðveldara með að sinna bræðrum sínum og systrum sem er mikilvægasta verkefni þeirra.

7. Hvað getur sá sem sér um hóp í söfnuði með fáum öldungum gert til að vel sé séð um alla í hópnum? (1. Pétursbréf 5:2) (Sjá einnig mynd.)

7 Ef þú sérð um hóp í söfnuði með fremur fáum öldungum skaltu einbeita þér að því að kenna aðstoðarmanni þínum þannig að hann geti hjálpað þér að annast bræður og systur í hópnum. (Lestu 1. Pétursbréf 5:2.) Gefðu honum ákveðin verkefni í hópnum. Stundum geturðu beðið hann að sjá um hópinn í boðuninni. Ræðið saman hvernig þið getið hjálpað hverjum og einum að taka framförum. Taktu aðstoðarmanninn með í hirðisheimsóknir og leiðbeindu honum fyrir og eftir heimsóknirnar. Með tíð og tíma gæti hann orðið hæfur til að sjá um starfshóp. (2. Tím. 2:2) Þú gætir líka beðið duglega boðbera í hópnum að aðstoða aðra. Brautryðjendur og aðrir reyndir boðberar geta starfað með þeim sem eru nýir og óreyndari. Þeir geta hjálpað hinum að hefja samræður í boðuninni, fara í endurheimsóknir eða halda biblíunámskeið. Ræðum nú um þrennt sem við getum öll gert til að stuðla að því að vel gangi í starfshópnum.

Umsjónarmaður starfshóps þjálfar bróður og notar bæklinginn „Elskum fólk og gerum það að lærisveinum“.

Umsjónarmaður starfshóps getur þjálfað safnaðarþjón í hópnum, til dæmis með því að biðja hann að sjá um samansöfnun. (Sjá 7. grein.)


LEGGÐU ÞITT AF MÖRKUM TIL AÐ STARFSHÓPNUM GANGI VEL

8. Hvernig getum við stuðlað að því að hópnum okkar gangi vel? (Rómverjabréfið 1:12)

8 Starfaðu með hópnum. Við getum „uppörvað hvert annað“ með því að boða trúna saman. (Lestu Rómverjabréfið 1:12.) Það getur líka skapað ákveðið öryggi fyrir hópinn og veitt boðberunum sjálfstraust. Ef vinnan kemur oft í veg fyrir að þú getir starfað með hópnum gætirðu kannski beðið vinnuveitandann um að fá að hliðra til. Viðbrögðin gætu komið þér á óvart. (Neh. 2:4–6) Ef heilsubrestur eða aldur gerir þér erfitt fyrir að mæta í samansöfnun gætirðu kannski rætt það við umsjónarmann hópsins. Ef til vill getur hann boðið þér að tengjast samansöfnuninni með fjarfundabúnaði og að skrifa bréf eða fara í símastarf með einhverjum í hópnum. Ertu ungur og hraustur en finnst samt erfitt að taka reglulega þátt í boðuninni? Gætirðu ákveðið fast samstarf með einhverjum í hópnum? Þú gætir þurft að forgangsraða öðruvísi eða reynt að nota tímann betur en þú gerir. (Rómv. 12:11; Kól. 4:5) Það er þess virði. Ræddu málið við Jehóva í bæn. Hann getur gefið þér „bæði löngun og kraft“ til þess. – Fil. 2:13.

9. Hvernig getum við stuðlað að hlýju og kærleiksríku andrúmslofti í starfshópnum okkar? (Rómverjabréfið 12:13)

9 Vertu gestrisinn. Við stuðlum að hlýju og kærleiksríku andrúmslofti í starfshópnum okkar með því að ‚temja okkur gestrisni‘. (Lestu Rómverjabréfið 12:13.) Getum við boðið starfshópnum að koma saman á heimili okkar? Í sumum söfnuðum skiptast hóparnir á að bjóða gestkomandi ræðumanni í mat. Þegar röðin kemur að ákveðnum hópi hittast nokkrir í hópnum til að borða og eiga saman góða stund, hvort sem ræðumaðurinn getur komið eða ekki. Sérbrautryðjandi sem heitir Sarah segir: „Ég verð taugaóstyrk þegar ég fæ matargesti þannig að ég hef þetta mjög einfalt. Ég reyni að hugsa um að kynnast fólki betur í staðinn fyrir að hafa áhyggjur af matnum.“ Þegar við leggjum okkur fram um að vera kærleiksrík og gestrisin í starfshópnum tengjumst við Jehóva og hvert öðru nánari böndum. – Neh. 8:10; Post. 20:35.

10. Hvað getum við gert ef okkur langar til að bæta okkur á einhverju sviði boðunarinnar? (Orðskviðirnir 1:5; 27:17) (Sjá einnig mynd.)

10 Eigðu frumkvæðið. Því færari sem við erum að boða og kenna því líklegra er að við höfum ánægju af því að starfa með hópnum. Langar þig til að bæta þig á einhverju sviði boðunarinnar? Væri þá ekki sniðugt að biðja einhvern í hópnum um aðstoð – kannski brautryðjanda eða reyndan boðbera? (Lestu Orðskviðina 1:5; 27:17.) Segðu umsjónarmanni starfshópsins frá markmiði þínu. Hann getur kannski hjálpað þér að ná því. Þú gætir líka beðið einhvern annan um aðstoð. Heather gerði það. Þótt feimin væri bað hún brautryðjandasystur að hjálpa sér að fara í endurheimsóknir. „Hún var hlýleg og bauð mér fast samstarf,“ segir Heather. „Hún hjálpaði mér meira að segja að koma í gang biblíunámskeiði hjá konu sem ég heimsótti. Ég er mjög ánægð að ég skyldi biðja um aðstoð því að nú hef ég aftur gaman af því að fara í boðunina.“ Við getum greinilega gert margt til þess að vel gangi í starfshópnum.

Ung systir biður eldri og reyndari systur um samstarf.

Þar sem starfshópurinn er lítill býður hann okkur upp á tækifæri til að kynnast og boða trúna saman. (Sjá 10. grein.)


NJÓTUM GÓÐS AF ÞVÍ AÐ TILHEYRA STARFSHÓPI

11, 12. Hvernig getum við notið góðs af því að tilheyra starfshópi? Segðu frá dæmi.

11 Sterkari trú og tengsl við Jehóva. Við getum öll notið góðs af því að tilheyra starfshópi. Umsjónarmaður hópsins getur til dæmis hvatt og uppörvað þá sem Jehóva lætur sér sérstaklega annt um – ekkjur, munaðarlausa og aldraða – þegar þeir eiga við erfiðleika að glíma. (1. Þess. 2:8; Jak. 1:27) Við fáum líka nauðsynlega þjálfun í ýmsum greinum boðunarinnar og kennslunnar. Skírðir bræður geta fengið þjálfun til að taka að sér ábyrgðarstörf í söfnuðinum. – 1. Tím. 3:10.

12 Wendy, sem áður er nefnd, naut góðs af starfshópnum sem hún tilheyrði. „Pabbi var á móti sannleikanum,“ segir hún, „og oft gat mamma ekki farið í boðunina um helgar með starfshópnum út af því. Ég mátti það hins vegar og gerði það. Eldri brautryðjandasystir tók mig að sér og kenndi mér ýmislegt sem hefur nýst mér bæði í boðuninni og söfnuðinum. Ég man eftir nokkrum skiptum þegar umsjónarmaður starfshópsins gaf mér biblíuleg ráð sem hafa hjálpað mér allt fram á þennan dag.“

13. Hvaða stuðning getum við fengið í starfshópnum okkar? (Sjá einnig mynd.)

13 Tilfinningalegur stuðningur. Við myndum sterk tengsl við þá sem eru með okkur í hópnum þegar við störfum með þeim „hlið við hlið“ í boðuninni. (Fil. 1:27) Þar sem hópurinn er lítill getur verið auðveldara fyrir þá sem eru feimnir eða kvíðnir í fjölmenni að eignast nána vini þar. (2. Kor. 6:13) Við getum reitt okkur á stuðning þessara vina á erfiðum stundum, eins og þegar við erum veik, niðurdregin eða höfum misst ástvin. (1. Þess. 5:14) Vafalaust höfum við enn ríkari þörf fyrir góða vini í framtíðinni. (Matt. 24:21) Við losnum kannski ekki við vandamálin en þau verða viðráðanlegri þegar við vitum að við getum treyst á bræður og systur sem elska okkur og styðja. – Orðskv. 17:17.

Systurnar á fyrri myndinni fara saman út á svæðið eftir samansöfnun. Bræður og systur úr sama starfshópi fara einnig út á svæðið.

Tvær systur í sama starfshópi fara saman í boðunina. (Sjá 13. grein.)


14. Hvernig geta umsjónarmenn starfshópanna hjálpað okkur ef hamfarir verða eða neyðarástand skapast?

14 Aðstoð á neyðarstund. Starfshópurinn getur komið okkur til aðstoðar ef við veikjumst alvarlega, farsótt brýst út, náttúruhamfarir verða, við erum ofsótt eða efnahagshrun verður. Umsjónarmenn hópanna eru tilbúnir til að hjálpa okkur ef eitthvað slíkt gerist. Segjum að það verði náttúruhamfarir. Umsjónarmennirnir sjá þá um að hafa samband við allar fjölskyldur í hópunum og kanna þarfir þeirra. Vantar læknisaðstoð, mat, vatn, húsaskjól eða föt? Þegar það liggur fyrir geta umsjónarmennirnir útvegað það sem þarf. Þeir ræða einnig við starfsnefnd safnaðarins hverjir í hópnum þeirra þurfi sérstaka aðstoð við aðstæður sem þessar og gera ráðstafanir til að hjálpa þeim. Starfshópurinn er okkur mikil hjálp ef hamfarir verða eða neyðarástand skapast.

15. Hvað sameinar okkur öll í söfnuði Jehóva?

15 Söfnuður Jehóva er stór eins og fram hefur komið. Í himneska hlutanum eru hundruð milljóna, jafnvel milljarðar, trúfastra andavera. Í jarðneska hlutanum eru rúmlega níu milljónir manna og þeim fjölgar dag frá degi. (Sak. 8:23; Opinb. 5:11) Allir tilbiðjendur Jehóva eru sameinaðir í því verki að boða fagnaðarboðskapinn um ríki Guðs. (Opinb. 14:6, 7) Við skulum nýta okkur starfshópinn til fulls – ráðstöfun sem hjálpar okkur að lofa Jehóva af öllu hjarta. – Sálm. 111:1.

HVERJU SVARAR ÞÚ?

  • Hvernig annast umsjónarmaður starfshóps og aðstoðarmaður hans hópinn?

  • Hvernig getum við lagt okkar af mörkum til að vel gangi í starfshópnum?

  • Hvernig getum við notið góðs af því að tilheyra starfshópi?

SÖNGUR 61 Áfram, vottar Guðs

a Sumum nöfnum er breytt.

b Ef þörf krefur má hæfur safnaðarþjónn sjá um hóp þar til öldungur getur tekið við. Hann er ekki kallaður umsjónarmaður starfshóps því að hann er ekki umsjónarmaður í söfnuðinum heldur annast starfshóp undir leiðsögn öldunganna.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila