Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 janúar bls. 26–31
  • Verum vingjarnleg þegar við tölum um sannleikann

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Verum vingjarnleg þegar við tölum um sannleikann
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • HVAR FINNUM VIÐ SANNLEIKANN?
  • HVERS VEGNA ÆTTUM VIÐ AÐ TALA UM SANNLEIKANN?
  • HVERNIG ÆTTUM VIÐ AÐ TALA UM SANNLEIKANN?
  • HVENÆR ÆTTUM VIÐ AÐ TALA UM SANNLEIKANN?
  • Berðu kennsl á sannleikann?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2024
  • Svaraðu eftirfarandi spurningum
    Dagskrá svæðismóts með farandhirði 2025-2026
  • „Guð sannleikans“ stendur alltaf við orð sín
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Viðurkennum auðmjúk að við vitum ekki allt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 janúar bls. 26–31

30. MARS–5. APRÍL 2026

SÖNGUR 76 Hvaða kennd finnur þú?

Verum vingjarnleg þegar við tölum um sannleikann

„Jehóva, Guð sannleikans.“ – SÁLM. 31:5.

Í HNOTSKURN

Við fáum ráð til að tala við aðra um sannleikann á þann hátt sem nær bestum árangri.

1. Hvað þurfum við að gera til að tilheyra fjölskyldu Jehóva?

ÞEGAR við hittum trúsystkini okkar í fyrsta skipti spyrjum við gjarnan: „Hvernig kynntist þú sannleikanum?“ Sumir svara því þannig að þeir hafi verið „aldir upp í sannleikanum“. Aðrir gætu sagt að þeir hafi nýlega „komið inn í sannleikann“. Við tökum þannig til orða vegna þess að sannleikurinn í orði Guðs hefur áhrif á allt líf okkar. Það er af því að við vitum að við getum aðeins tilheyrt fjölskyldu Jehóva ef við sýnum að við elskum sannleikann og lifum í samræmi við hann. Það felur meðal annars í sér að vera heiðarleg í því sem við segjum og gerum. – Sálm. 15:1–3.

2. (a) Hvaða álit hafði fólk á Jesú? (b) Hvaða áhrif myndi sannleikurinn sem Jesús kenndi hafa á fólk?

2 Jesús talaði alltaf sannleika. Óvinir hans viðurkenndu að hann væri heiðarlegur jafnvel þegar það sem hann þurfti að segja var óvinsælt. (Matt. 22:16) Hann sagði um áhrifin af kennslu sinni: „Ég kom til að valda sundrung, setja son upp á móti föður sínum, dóttur á móti móður sinni og tengdadóttur á móti tengdamóður sinni.“ (Matt. 10:35) Jesús vildi ekki að fólk brygðist neikvætt við boðskapnum sem hann og fylgjendur hans fluttu en hann var raunsær. (Matt. 23:37) Hann vissi að boðskapurinn skipti fólki í tvo hópa, þá sem elska sannleika Biblíunnar og þá sem gera það ekki. – 2. Þess. 2:9–11.

3. Hvað er til umfjöllunar í þessari námsgrein?

3 Eins og Jesús reynum við að vera heiðarleg með því að tala alltaf sannleika, jafnvel þótt við verðum óvinsæl fyrir það. Og við boðum og kennum sannleika Biblíunnar jafnvel þótt einhverjir kunni að verða reiðir vegna þess sem við segjum. Þurfum við þá ekki að leiða hugann að því hvernig við kynnum sannleikann? Jú, svo sannarlega. Í þessari námsgrein fáum við fyrst svar við spurningunni: Hvar finnum við sannleikann? Síðan fáum við svar við skyldum spurningum: Hvers vegna, hvernig og hvenær ættum við að tala um sannleikann? Svörin við þessum spurningum hjálpa okkur enn frekar að vera vingjarnleg þegar við tölum um sannleikann, það er að segja að tala af háttvísi og á réttum tíma.

HVAR FINNUM VIÐ SANNLEIKANN?

4. Hvers vegna segjum við að Jehóva sé uppspretta sannleikans?

4 Jehóva er uppspretta sannleikans. Allt sem hann segir er sannleikur. Til að mynda er allt satt sem hann segir um hvað sé rétt og hvað sé rangt. (Sálm. 19:9; 119:142, 151) Allt sem hann segir um framtíðina á eftir að verða að veruleika. (Jes. 55:10, 11) Hann svíkur aldrei loforð sín. (4. Mós. 23:19) Það er óhugsandi að Jehóva fari með lygi. (Hebr. 6:18) Það er ekki að ástæðalausu að hann er nefndur „Guð sannleikans“. – Sálm. 31:5.

5. Hvers vegna er ekki erfitt að finna „Guð sannleikans“? Skýrðu svarið. (Postulasagan 17:27)

5 Það er ekki erfitt að finna Jehóva, „Guð sannleikans“, þótt sumir haldi því fram. Allt í kringum okkur eru sannanir fyrir því að hann sé til. (Rómv. 1:20) Þegar Páll postuli talaði við hóp menntamanna í Aþenu sagði hann að Guð vildi að við ‚fyndum hann‘ og að hann væri „ekki langt frá neinum okkar“. (Lestu Postulasöguna 17:27.) Raunin er sú að Jehóva dregur til sín auðmjúkt fólk sem leitar að sannleikanum. – Jóh. 6:44.

6. Nefndu sumt af því sem Biblían kennir og hvers vegna þú ert þakklátur fyrir að þekkja þessi sannindi.

6 Ein leið til að finna Jehóva er að lesa og hugleiða Biblíuna. Þeir sem skrifuðu hana voru innblásnir af heilögum anda Guðs. (2. Pét. 1:20, 21) Allt sem stendur í Biblíunni er því sannleikur sem við getum treyst, þar með talið það sem hún segir um uppruna alheimsins og lífið á jörðinni. (1. Mós. 1:1, 26) Við getum treyst því sem hún segir um hvers vegna við syndgum öll og hvers vegna svo margir þjást og deyja. (Rómv. 5:12; 6:23) Við getum treyst því algerlega þegar hún segir að Jehóva muni, fyrir atbeina sonar síns, bæta allan þann skaða sem Satan, „faðir lyginnar“, hefur valdið. (Jóh. 8:44; Rómv. 16:20) Og við getum treyst loforði Biblíunnar um að Jesús muni eyða hinum illu, reisa til lífs hina dánu, gera jörðina að paradís og hjálpa mannkyninu til fullkomleika. (Jóh. 11:25, 26; 1. Jóh. 3:8) Jehóva hefur gefið okkur stórkostlegt tækifæri! Hann hefur kennt okkur sannleikann og gefið okkur tækifæri til að hjálpa öðrum að kynnast honum líka. – Matt. 28:19, 20.

HVERS VEGNA ÆTTUM VIÐ AÐ TALA UM SANNLEIKANN?

7, 8. Skiptir máli hver er hvöt okkar til að tala sannleikann? Nefndu dæmi. (Markús 3:11, 12) (Sjá einnig myndir.)

7 Eins og áður hefur verið nefnt verðum við að tala sannleika til að geta tilheyrt fjölskyldu Jehóva. En til að gleðja hann verðum við að gera meira en það. Það skiptir Jehóva máli hvers vegna við tölum sannleika. Skoðum hvað gerðist á meðan Jesús þjónaði á jörðinni. (Lestu Markús 3:11, 12.) Stór hópur fólks safnaðist í kringum hann þegar hann boðaði trúna nálægt Galíleuvatni. Þeirra á meðal voru nokkrir haldnir illum öndum sem féllu fram fyrir honum og hrópuðu: „Þú ert sonur Guðs!“ Hvers vegna sögðu illu andarnir sannleikann um Jesú? Markmið þeirra gæti hafa verið að ávinna sér traust þeirra sem hlustuðu og koma síðan í veg fyrir að þeir þjónuðu Jehóva. Illu andarnir sögðu satt og rétt frá en hvatir þeirra voru eigingjarnar. Jesús þekkti hvatir þeirra og var ekki ánægður. Hann skipaði þeim reyndar að hætta að tala um hann.

8 Hvað getum við lært af þessari frásögu? Hvatir okkar til að segja sannleikann skipta Jehóva máli. Það er því mjög mikilvægt að við kennum öðrum sannleikann um Jehóva af hreinum hvötum, vegna þess að við elskum hann. Og ef við fáum hrós fyrir það beinum við því til Jehóva. – Matt. 5:16; samanber Postulasöguna 14:12–15.

Myndir sem sýna ólíkar aðferðir systur við að stýra biblíunámskeiði með ungri konu. 1. Systirin talar um sjálfa sig og Biblían liggur á grúfu á borðinu. 2. Systirin heldur á Biblíunni og sýni nemandanum vers úr henni.

Að hverjum beinirðu athyglinni þegar þú kennir sannleikann? (Sjá 7. og 8. grein.)


9. Hvað ættum við að forðast og hvers vegna?

9 Skoðum aðrar aðstæður þar sem við þurfum að forðast að sækjast eftir upphefð. Segjum að bróðir í ábyrgðarstöðu treysti okkur fyrir trúnaðarupplýsingum og við segjum síðan öðrum frá þeim. Ef sá kemst síðar að því að þær voru sannar gæti honum fundist mikið til okkar koma og álitið að okkur væri oft treyst fyrir trúnaðarupplýsingum. Við gætum orðið merkilegri í augum hans – en ekki í augum Jehóva. (Orðskv. 11:13) Hvers vegna? Við sögðum ekki bara frá trúnaðarupplýsingum heldur sögðum við líka sannleikann af röngum hvötum.

HVERNIG ÆTTUM VIÐ AÐ TALA UM SANNLEIKANN?

10. Hvað er átt við með orðalaginu „vingjarnleg í tali“? (Kólossubréfið 4:6)

10 Lestu Kólossubréfið 4:6. Páll postuli minnti trúsystkini sín í Kólossu á að vera „alltaf vingjarnleg í tali“. Hvað átti hann við? Frummálsorðið sem er þýtt „vingjarnleg“ gefur til kynna þá hugmynd að það sem við segjum ætti bæði að koma áheyrandanum að gagni og vera vingjarnlegt og aðlaðandi.

11, 12. Hvers vegna þurfum við að sýna aðgát þegar við kennum sannleikann? Lýstu með dæmi. (Sjá einnig myndir.)

11 Við þurfum að fara eftir leiðbeiningum Páls um að vera vingjarnleg þegar við kennum öðrum sannleikann. Biblían líkir sannleikanum sem hún hefur að geyma við beitt sverð sem getur skilið að sál og anda. Hann getur með öðrum orðum afhjúpað innstu tilfinningar okkar og hvatir. (Hebr. 4:12) En ef við notum Biblíuna ekki af leikni gætum við hæglega móðgað fólk og reitt það að óþörfu til reiði. Hvernig gæti það gerst?

12 Ímyndum okkur að við hittum einlægan mann í boðuninni sem biður frammi fyrir líkneskjum og heldur upp á jól og páska með fjölskyldunni. Við gætum notað Biblíuna til að sýna honum hversu heimskulegt er að biðja til líflausra líkneskja og sýnt fram á að jól og páskar séu heiðnar hátíðir. (Jes. 44:14–20; 2. Kor. 6:14–17) Ef við gerðum þetta í fyrstu heimsókn værum við vissulega að segja sannleikann en við værum ekki að nota orð Guðs af leikni.

Myndir sem sýna ólíkar aðferðir hjóna við að boða manni trúna við dyrnar hjá honum. Fjölskyldan hans er fyrir innan að skreyta jólatré. 1. Hjónin sýna manninum greinina „Hvað segir Biblían um jólin?“ á jw.org. Maðurinn stendur þungur á svip með krosslagðar hendur. 2. Hjónin sýna manninum greinina „Hvað felst í að vera góður pabbi?“ á jw.org. Maðurinn hlustar brosandi á þau.

Hvernig geturðu kennt sannleikann af leikni? (Sjá 11. og 12. grein.)a


13. Hvernig getum við kryddað mál okkar með salti?

13 Páll sagði líka að við ættum að krydda það sem við segjum með salti. Hann átti þó ekki við að við ættum að dulbúa sannleikann eða fela hann. Hann var öllu heldur að hvetja okkur til að krydda mál okkar þannig að sannleikurinn höfði til áheyrandans. (Job. 12:11) Þetta getur verið áskorun. Þegar við kryddum mat gerum við kannski ráð fyrir að öðrum finnist gott það sem okkur finnst gott. Við gætum á líkan hátt álitið að það höfði til allra hvernig við tölum. En sú er ekki raunin. Fólk með ákveðinn menningarlegan bakgrunn hefur til dæmis tilhneigingu til að segja skoðun sína umbúðalaust, jafnvel þegar það talar við sér eldra fólk. Fólki af annarri menningu gæti þótt slík framkoma óviðeigandi, jafnvel móðgandi. Páll sagði að við þyrftum að vita hvernig við ættum „að svara hverjum manni“. Það þýðir að við ættum ekki að krydda það sem við segjum í samræmi við okkar smekk eða menningarlegan bakgrunn heldur í samræmi við smekk áheyrandans.

HVENÆR ÆTTUM VIÐ AÐ TALA UM SANNLEIKANN?

14. Kenndi Jesús lærisveinum sínum allt sem hann vissi þegar hann var á jörð? Skýrðu svarið.

14 Jesús talaði alltaf vingjarnlega við fylgjendur sína og hann kenndi þeim margt. (Mark. 6:34) En þeir áttu samt enn margt ólært. Jesús reyndi ekki að kenna þeim allt sem hann vissi. Hann tók tillit til takmarka þeirra. Hann skildi að þetta var ekki rétti tíminn fyrir þá til að læra sum sannindi. Hann sagði að þeir gætu ekki meðtekið þau enn þá. (Jóh. 16:12) Hvað lærum við af því?

15. Verðum við að kenna biblíunemendum okkar strax allt sem við vitum? Skýrðu svarið. (Orðskviðirnir 25:11) (Sjá einnig mynd.)

15 Við getum lært af Jesú að þótt við þekkjum sannleika Biblíunnar þurfum við ekki að kenna strax allt sem við vitum. Hvernig getum við líkt eftir Jesú? Við þurfum að taka tillit til aðstæðna fólks. Leiðum hugann aftur að manninum sem heldur jól og páska með fjölskyldu sinni. Við vitum að þessar hátíðir eru af heiðnum uppruna og Guð leggur ekki blessun sína yfir þær. En ímyndum okkur að maðurinn byrjaði að kynna sér Biblíuna fáeinum vikum fyrir jól. Væri vingjarnlegt af okkur að sýna honum það sem Biblían segir um heiðnar hátíðir og vænta þess að hann hætti strax að halda jól? Sumir nemendur eru að vísu fljótir að fara eftir því sem þeir læra frá Biblíunni. En aðrir þurfa lengri tíma til að breyta hugsunarhætti sínum og verkum. Við getum hjálpað biblíunemendum okkar að taka framförum ef við segjum þeim á réttum tíma það sem þeir þurfa að vita, það er að segja þegar þeir eru í stakk búnir til að taka við því. – Lestu Orðskviðina 25:11.

Hjónin af fyrri mynd kenna manninum heima hjá honum með hjálp bæklingsins „Von um bjarta framtíð“. Jólatréð er í herberginu.

Líktu eftir Jesú þegar þú ákveður hvenær þú ættir að tala um sannleikann og hversu mikið þú ættir að segja. (Sjá 15. grein.)


16. Hvernig getum við hjálpað biblíunemanda ‚að halda áfram að ganga á vegi sannleikans‘?

16 Fátt veitir okkur meiri gleði en að aðstoða aðra við að læra sannleikann um Jehóva. Við getum hjálpað þeim ‚að halda áfram að ganga á vegi sannleikans‘ ef við sjálf erum þeim gott fordæmi. (3. Jóh. 3, 4) Fullvissaðu þig um að líf þitt sýni að þú trúir loforðunum í orði Guðs. Vertu viss um að þú talir um sannleikann af réttum hvötum. Talaðu vingjarnlega af nærgætni og hlýju og á réttum tíma þegar þú kennir sannleikann. Og beindu öllu hrósi sem þú færð til Jehóva. Þegar þú gerir það sýnirðu að þú tilheyrir Jehóva, Guði sannleikans.

HVAÐ LÆRÐIRÐU AF EFTIRFARANDI BIBLÍUVERSUM?

  • Postulasögunni 17:27.

  • Kólossubréfinu 4:6.

  • Orðskviðunum 25:11.

SÖNGUR 160 Gleðitíðindi

a MYND: Á fyrri myndinni sér bróðir jólatré hjá húsráðandanum og sýnir honum grein um heiðinn uppruna jólanna. Á seinni myndinni sýnir bróðirinn húsráðandanum grein sem hefur að geyma hagnýt ráð fyrir feður. Hvor nálgunin ætli sé áhrifaríkari?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila