FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | 1. MÓSEBÓK 40–41
Jehóva frelsar Jósef
Jósef þurfti að þola erfiðleika sem þræll og fangi í um 13 ár áður en Jehóva frelsaði hann. Í stað þess að verða bitur notaði Jósef þessa reynslu til að verða betri maður. (Sl 105:17–19) Hann vissi að Jehóva myndi aldrei yfirgefa hann. Hvernig gerði Jósef gott úr aðstæðunum?
Hann sýndi að hann var vinnusamur og að honum var treystandi. Þess vegna blessaði Jehóva hann. – 1Mó 39:21, 22.
Hann var hugulsamur við aðra í stað þess að leggja á ráðin um að hefna sín á þeim sem höfðu farið illa með hann. – 1Mó 40:5–7.
Hvernig hjálpar reynsla Jósefs mér að vera þolgóður í erfiðleikum?
Hvernig get ég gert gott úr aðstæðum mínum þangað til Jehóva losar mig við öll vandamál í Harmagedón?