Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • brw921101 bls. 8–9
  • Börn í Síló – góð og slæm

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Börn í Síló – góð og slæm
  • Varðturninn: Börn í Síló – góð og slæm
  • Svipað efni
  • Hugrakkur drengur sem flutti boðskap Jehóva
    Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Lítill drengur þjónar Guði
    Biblíusögubókin mín
  • Loforð Jefta
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Samúel hélt áfram að breyta rétt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2008
Sjá meira
Varðturninn: Börn í Síló – góð og slæm
brw921101 bls. 8–9

Lífið í fyrirheitna landinu

Börn í Síló – góð og slæm

ÞEGAR þú hugsar um borgir, bæi og önnur svæði fyrirheitna landsins, koma þá upp í hugann þekktir karlar og konur sem bjuggu þar? Örugglega, þar sem Biblían segir aðallega frá fullorðnu fólki sem þá var uppi. En hvað með börnin á þeim tíma? Manstu eftir einhverjum frásögum sem fjalla um börn?

Landslagsmyndin að ofan getur hjálpað okkur að lifa okkur inn í aðstæður þar sem börn og ungmenni komu við sögu. Sum þeirra voru góðar fyrirmyndir fyrir kristið fólk en önnur víti til varnaðar. Á ávölu hæðinni fyrir miðju myndarinnar stóð Síló.

Þegar Ísraelsmenn komu inn í fyrirheitna landið slógu þeir fyrst upp tjaldbúð Guðs í Gilgal í grennd við Jeríkó. (Jósúabók 4:19) En þessi heilaga tjaldbúð, sem var miðstöð tilbeiðslunnar, var flutt til Síló þegar landinu var skipt. (Jósúabók 18:1) Síló stóð um 30 kílómetra norður af Jerúsalem í fjalllendi Efraíms. Karlar og konur um allt Ísraelsland ferðuðust til Síló. Dalurinn fyrir sunnan staðinn þar sem tjaldbúðin líklega stóð rúmaði mikinn mannfjölda. (Jósúabók 22:12) Sérðu fyrir þér að börn hafi líka verið þarna?

Sum börn komu til Síló. Þekktasta dæmið er Samúel. Foreldrar hans, Elkana og Hanna, bjuggu í bæ handan við hæðirnar í vestri. Þau ferðuðust til Síló á hverju ári og líklega voru börn hinnar eiginkonu Elkana með í för. Þegar fram liðu stundir svaraði Jehóva bæn Hönnu og gaf henni son sem þau nefndu Samúel. Síðar fóru þau Elkana með hann til Síló til að búa þar svo að hann gæti þjónað í tjaldbúðinni með Elí æðstapresti. – 1. Samúelsbók 1:1–2:11.

Drengurinn átti ýmsum skyldum að gegna í húsi Guðs og hann hefur örugglega notið þess að ganga um hæðirnar í kring. (1. Samúelsbók 3:1, 15) Sumar þeirra voru í stöllum og fullar af ólívutrjám eins og sjá má á myndinni á bls. 9. Þarna er líka lítill varðturn hlaðinn úr grjóti. Bændur og hirðar gátu staðið í slíkum varðturni og gætt hjarða sinna og akra. Sérðu Samúel fyrir þér príla upp í einn slíkan? (Samanber 2. Kroníkubók 20:24) Þetta var góður útsýnisstaður til að koma auga á villt dýr.

Í þá daga var meiri trjágróður en nú á þessum slóðum, jafnvel skógar þar sem villidýr höfðust við. (Jósúabók 17:15, 18) Við sjáum það af atviki sem gerðist þegar Elísa var orðinn aðalspámaður Guðs. Elísa ferðaðist frá Jeríkó upp til Betel svo að hann var á þessu svæði, um 16 kílómetra suður af Síló. Hvernig móttökur fékk hann hjá fólkinu í Betel sem var orðin miðstöð gullkálfsdýrkunar? (1. Konungabók 12:27–33; 2. Konungabók 10:29) Fullorðna fólkið var eftir öllu að dæma andsnúið spámanni Jehóva og það hefur smitast yfir á börnin þeirra.

Síðari Konungabók 2:23, 24 segir okkur að hópur ungmenna hafi gert grín að spámanni Guðs og sagt: „Burt með þig, skalli! Burt með þig, skalli!“ Elísa „formælti þeim í nafni Jehóva. Þá komu tvær birnur út úr skóginum og rifu sundur 42 af drengjunum.“ Þessir sýrlensku brúnbirnir geta verið stórhættulegir ef þeim verður bilt við eða húnum þeirra virðist ógnað. (2. Samúelsbók 17:8; Orðskviðirnir 17:12; 28:15) Jehóva notaði þá til að fullnægja dómi sínum yfir þessum ungmennum sem fyrirlitu fulltrúa hans og þar af leiðandi Jehóva sjálfan.

Að barn skuli hafa átt á hættu að mæta villidýri á hæðunun umhverfis Síló undirstrikar enn frekar hversu mikla trú foreldrar Samúels sýndu þegar þeir komu með hann til að þjóna í tjaldbúðinni.

Annar sannur tilbiðjandi Jehóva hafði áður sýnt sams konar trú og hollustu – Jefta dómari. Hann bjó í fjalllendi Gíleaðs austan megin við Jórdan. Hann bað Jehóva um hjálp til að sigra óvini sína, Ammóníta, og hét því að færa Jehóva að fórn þann fyrsta sem kæmi út úr húsi hans til að taka á móti honum þegar hann sneri heim. Það reyndist vera ógift dóttir hans. Hann fór því með einkadóttur sína til helgidómsins í Síló þar sem hún bjó og þjónaði trúfastlega árum saman. – Dómarabókin 11:30–40.

Trúfestin og hollustan sem Samúel og dóttir Jefta sýndu í Síló er í algerri andstæðu við hegðun ungmennanna 42 sem komu illa fram við spámann Jehóva og gerðu grín að honum á svipuðum slóðum. – Samanber 1. Korintubréf 10:6, 11.

[Rétthafi myndar á bls. 8]

Pictorial Archive (Near Eastern History) Est.

[Rétthafi myndar á bls. 9]

Pictorial Archive (Near Eastern History) Est.

[Rétthafi myndar á bls. 9]

Safari Zoo, Ramat-Gan, Tel Aviv

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila