Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w92 1.4. bls. 4–7
  • Það sem Guðsríki getur þýtt fyrir þig

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Það sem Guðsríki getur þýtt fyrir þig
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1992
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Hvernig Jesús leit á Guðsríki
  • Guðsríki innra með okkur?
  • Hvenær það myndi koma
  • Hvernig Guðsríki kemur
  • Blessun Guðsríkis
  • Það sem Jesús kenndi um ríki Guðs
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2010
  • Um ríki Guðs
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2008
  • Guðsríki er við völd
    Þekking sem leiðir til eilífs lífs
  • Sannleikurinn um ríki Guðs
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2020
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1992
w92 1.4. bls. 4–7

Það sem Guðsríki getur þýtt fyrir þig

JESÚS KRISTUR kenndi fylgjendum sínum að biðja: „Til komi þitt ríki.“ (Matteus 6:10) Hversu oft hafa ekki þeir sem játa sig fylgjendur Jesú ávarpað Guð með þessum orðum!

En Jesús gerði meira en að kenna lærisveinum sínum að biðja um að Guðsríki kæmi. Hann gerði Guðsríki að meginefni prédikunar sinnar. Encyclopædia Britannica bendir þannig á að Guðsíki „sé yfirleitt álitið meginstefið í kennslu Jesú.“

Hvað eru fylgjendur Krists eiginlega að biðja um þegar þeir biðja þess að Guðsríki komi? Hvað getur Guðsríki þýtt fyrir þá og fyrir þig? Og hvernig leit Jesús á það?

Hvernig Jesús leit á Guðsríki

Jesús talaði oft um sig sem „Mannssoninn.“ (Matteus 10:23; 11:19; 16:28; 20:18, 28) Það minnir okkur á orð Daníel um ‚mannsson.‘ Daníel sagði um ókominn atburð á himnum: „Ég horfði í nætursýnunum, og sjá, einhver kom í skýjum himins, sem mannssyni líktist. Hann kom þangað, er hinn aldraði var fyrir, og var leiddur fyrir hann. Og honum var gefið vald, heiður og ríki, svo að honum skyldu þjóna allir lýðir, þjóðir og tungur.“ — Daníel 7:13, 14.

Jesús sagði postulum sínum um þann tíma er hann myndi taka við stjórnvaldi: „Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni . . . [munu] allar þjóðir . . . safnast frammi fyrir honum, og hann mun skilja hvern frá öðrum, eins og hirðir skilur sauði frá höfrum. . . . Og þeir [ranglátir] munu fara til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs.“ — Matteus 19:28; 25:31, 32, 46.

Þessi spádómsorð um hásæti og allar þjóðir gefa til kynna að Guðsríki sé stjórn þar sem Jesús og fylgjendur hans fara með völd yfir mannkyninu. Sú stjórn skyldi hafa vald til að uppræta hina ranglátu. Undir stjórn Guðsríkis myndu þeir sem hneigðust til réttlætis hins vegar hljóta eilíft líf af gjöf frá Guði.

Ljóst er því að ríki Guðs er himnesk stjórn sem Guð kemur á laggirnar. Guðsríki er ekki kirkjan og Biblían gefur ekkert tilefni til að túlka það á veraldlega vísu. Og stjórn af hendi Guðs getur ekki verið eitthvað sem einungis býr í hjarta mannsins. Þar eð Guðsríki er stjórn verður það ekki eitthvað í hjarta okkar þegar við tökum kristni. En hvers vegna halda sumir að Guðsríki sé eitthvert ástand hjartans?

Guðsríki innra með okkur?

Sumir telja að Guðsríki sé í hjörtum okkar vegna þess hvernig Lúkas 17:21 er orðað í sumum biblíuþýðingum. Samkvæmt meginmáli íslensku biblíunnar frá 1981 sagði Jesús þar: „Guðs ríki er innra með yður.“

The Interpreter’s Dictionary of the Bible segir um þetta: „Þótt oft sé vitnað í þetta sem dæmi um ‚dulúð‘ eða ‚andlega hneigð‘ Jesú byggist sú túlkun fyrst og fremst á hinni gömlu þýðingu: ‚innra með yður,‘ . . . sem er því miður túlkað . . . sem eintala; ‚yður‘ . . . er í fleirtölu (Jesús er að ávarpa faríseana — vers 20) . . . Sú kenning að ríki Guðs sé innra hugarástand eða persónulegt hjálpræði gengur í berhögg við samhengi þessa vers og einnig alla framsetningu hugmyndarinnar í Nýjatestamentinu.“

Neðanmálsathugasemd í íslensku biblíunni sýnir hvernig má þýða orð Jesú: „Guðs ríki er meðal yðar.“ Margar aðrar biblíuþýðingar nota svipað orðalag. (Sjá The New English Bible, The Jerusalem Bible, Revised Standard Version) Samkvæmt Nýheimsþýðingunni sagði Jesús: „Guðsríki er mitt á meðal ykkar.“ Jesús átti ekki við það að Guðsríki væri í hjörtum hinna drambsömu farísea sem hann var að ávarpa. Hann átti við það að hann, Jesús, hinn langþráði, tilnefndi konungur, væri mitt á meðal þeirra. Nokkur tími myndi hins vegar líða uns Guðsríki kæmi.

Hvenær það myndi koma

Ýmsir fylgjendur Jesú Krists hafa verið valdir sem meðstjórnendur hans í hinu himneska Messíasarríki. Líkt og Jesús deyja þeir trúfastir Guði og eru reistir upp sem andaverur til himna. (1. Pétursbréf 3:18) Þessir konungar og prestar eru tiltölulega fáir, 144.000, og keyptir út úr mannkyninu. (Opinberunarbókin 14:1-4; 20:6) Trúfastir postular Jesú eru í hópi meðstjórnenda hans. — Lúkas 12:32.

Einhverju sinni er Jesús talaði við fylgjendur sína gaf hann þetta loforð: „Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Mannssoninn koma í ríki sínu.“ (Matteus 16:28) Athyglisvert er að næsta vers gefur til kynna að fyrirheit Jesú hafi ræst fáeinum dögum síðar. Þá fór hann með þrjá af lærisveinum sínum upp á fjall þar sem hann ummyndaðist fyrir augum þeirra og þeir sáu hann þannig í sýn í dýrð Guðsríkis. (Matteus 17:1-9) En Guðsríki var ekki stofnsett á þeim tíma. Hvað átti að gerast?

Ein af dæmisögum Jesú gefur til kynna að hann yrði ekki settur tafarlaust í hásæti sem Messíasarkonungur. Við lesum í Lúkasi 19:11-15: „Hann [sagði] dæmisögu, því að hann var í nánd við Jerúsalem, og þeir ætluðu, að Guðs ríki mundi þegar birtast. Hann sagði: ‚Maður nokkur tiginborinn fór í fjarlægt land til þess að taka við konungdómi og koma síðan aftur. Hann kallaði tíu þjóna sína, seldi þeim í hendur tíu pund og sagði við þá: „Verslið með þetta, þangð til ég kem.“ . . . Nú kom hann aftur og hafði tekið konungdóm. Þá lét hann kalla fyrir sig þjóna þá er hann hafði selt féð í hendur, til þess að vita, hvað hver hefði grætt.‘“

Á þeim dögum tók það allnokkurn tíma að ferðast frá Ísrael til Rómar, bíða í borginni uns konungdómur hefði verið tryggður og snúa svo aftur til heimalands síns sem konungur. Jesús var ‚tiginborni maðurinn.‘ Hann átti að taka við konungdómi af hendi föður síns á himnum en yrði ekki tafarlaust settur í hásæti sem Messíasarkonungur. Fylgjendur hans myndu versla með því að halda áfram því starfi að boða fagnaðarerindið um ríkið um töluverðan tíma áður en hann sneri aftur sem konungur.

Hvernig Guðsríki kemur

Um hvað eru þeir sem elska Guð að biðja þegar þeir biðja þess að Guðsríki komi? Þeir eru í rauninni að biðja um að hið himneska ríki gangi fram með því að eyða stjórnkerfum sem menn hafa búið til en þau hafa ekki staðið við fyrirheit sín um að koma á sönnum friði og velsæld. Spámaðurinn Daníel vísaði til þess er hann skrifaði: „Á dögum þessara konunga mun Guð himnanna hefja ríki, sem aldrei skal á grunn ganga, og það ríki skal engri annarri þjóð í hendur fengið verða. Það mun knosa og að engu gjöra öll þessi ríki, en sjálft mun það standa að eilífu.“ (Daníel 2:44) Hvenær átti það að gerast?

Jesús sagði fyrir að það myndi gerast innan þeirrar kynslóðar er sæi óvenjuleg umbrot í málefnum manna. Jesús sagði fyrir samsett „tákn“ nærveru sinnar er felast skyldi í fordæmislausum hernaði, jarðskjálftum, hungursneyð og drepsóttum — já, og prédikun fagnaðarerindisins um ríki Guðs um allan heim. — Matteus 24. og 25. kafli; Markús 13. kafli; Lúkas 21. kafli.

Spádómur Jesú fjallar um atburði sem eiga sér stað núna — á 20. öldinni. Þess vegna er þess ekki langt að bíða að Guðsríki færi mannkyninu stórkostlega blessun. Þú getur verið í hópi þeirra sem njóta góðs af stjórn Guðsríkis. En hvað getur Guðsríki þýtt fyrir þig og ástvini þína?

Blessun Guðsríkis

Hamingja mun ríkja um víða veröld. Undir ‚nýjum himni‘ — hinu himneska ríki — verður ‚ný jörð,‘ alþjóðlegt mannfélag hlýðinna þegna Guðsríkis. „Guð sjálfur mun vera hjá þeim,“ skrifaði Jóhannes postuli. „Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra.“ Enginn mun hafa ástæðu til að vera neitt annað en hamingjusamur þá því að „hvorki harmur né vein né kvöl er framar til.“ — Opinberunarbókin 21:1-4.

Dauðinn verður ekki til framar. Þessi hræðilegi sorgarvaldur mun ekki framar ræna okkur ættingjum og ástvinum. „Dauðinn er síðasti óvinurinn, sem verður að engu gjörður.“ (1. Korintubréf 15:26) Hvílík gleði þegar upprisa þeirra sem Guð man eftir kemur í stað útfara! — Jóhannes 5:28, 29.

Sjúkdómar og fötlun víkja fyrir fullu heilbrigði. Sjúkrarúm verða ekki lengur full af fólki með líkamlega eða huglæga sjúkdóma. Læknirinn mikli, Jesús Kristur, mun beita verðmæti lausnarfórnar sinnar „til lækningar þjóðunum.“ (Opinberunarbókin 22:1, 2; Matteus 20:28; 1. Jóhannesarbréf 2:1, 2) Lækningar hans á jörðinni voru einungis sýnishorn af því sem hann mun gera fyrir milligöngu ríkis síns. — Samanber Jesaja 33:24; Matteus 14:14.

Ríkulegt matvælaframboð. Eins og sálmaritarinn sagði verða ‚gnóttir korns í landinu, á fjallatindunum.‘ (Sálmur 72:16) Spádómur Jesaja bætir hér við: „[Jehóva] allsherjar mun á þessu fjalli búa öllum þjóðum veislu með krásum, veislu með dreggjavíni, mergjuðum krásum og skírðu dreggjavíni.“ (Jesaja 25:6) Víst er að hungursneyð mun ekki setjast að jarðarbúum undir stjórn Guðsríkis.

Öll jörðin verður paradís. Þannig mun rætast loforð Jesú við iðrunarfullan illvirkja: ‚Þú munt vera með mér í paradís.‘ (Lúkas 23:43) Þú getur líka hlotið eilíft líf á þessari jörð, jörð sem hefur verið hreinsuð af illsku og beytt í unaðslegan lystigarð sem teygir sig um allan hnöttinn. — Jóhannes 17:3.

Öllu hlýðnu mannkyni standa þessar unaðslegu framtíðarhorfur til boða. Innblásið orð Jehóva, Biblían, fullvissar okkur um það. Og það er það sem Guðsríki getur þýtt fyrir þig.

[Mynd á blaðsíðu 7]

Trúir þú því sem Jesús sagði um ríki Guðs?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila