Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w85 1.6. bls. 18–22
  • Breyttu tafarlaust í samræmi við „táknið“!

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Breyttu tafarlaust í samræmi við „táknið“!
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • „Sauðir“ og „hafrar“ eru nú aðgreindir
  • Launin fyrir tímanleg viðbrögð við ‚tákninu‘
  • Hvaða framtíð bíður sauðanna og hafranna?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1996
  • Aukið starf á nærverutíma Krists
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1993
  • Mikill múgur sannra tilbiðjenda — hvaðan eru þeir komnir?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
  • Styðjum bræður Krists dyggilega
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
w85 1.6. bls. 18–22

Breyttu tafarlaust í samræmi við „táknið“!

„Vakið því, þér vitið ekki daginn né stundina.“ — Matteus 25:13.

1. Hvers vegna væri óhyggilegt að vera eins og fávísu meyjarnar í dæmisögu Jesú?

Í LJÓSI hinnar komandi gullaldar, sem bíður endurleystra manna, væri óhyggilegt að hegða sér eins og fávísu meyjarnar fimm í dæmisögu Jesú! Þær voru of seinar á sér og komust ekki inn í „himnaríki.“ Fávísu meyjarnar létu ekki ljós sitt skína á þeim tíma sem nauðsynlegt var. (Matteus 25:1-12) Þegar „þetta fagnaðarerindi um ríkið“ hefur verið prédikað „um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar“ og komið er að ‚endanum‘ munu þær hafa misst af tækifærinu til að eiga hlut í þessari þjónustu sem aldrei verður endurtekin. — Matteus 24:14.

2, 3. (a) Með hvaða áminningu lauk Jesús dæmisögunni um meyjarnar tíu? (b) Hvers vegna er sú áminning enn tímabær og af hverju þarf því hópur ‚hyggnu meyjanna‘ að vera birgur?

2 Þess vegna lauk Jesús Kristur dæmisögu sinni með eftirfarandi hvatningu: „Vakið því, þér vitið ekki daginn né stundina.“ — Matteus 25:1-13.

3 Þessi orð brúðgumans Jesú Krists eru mjög tímabær, einkum núna er liðið er 71 ár af ‚endalokum heimskerfisins.‘ Þótt liðið sé svona langt á ‚endalokatímann‘ veit hópur ‚hyggnu meyjanna‘ enn ekki daginn né stundina er „dyrum“ verður lokað fyrir frekari tækifærum til að komast inn í hið himneska ríki til að vera með brúðgumanum sem þær eru heitbundnar. Þeim er alltaf nauðsynlegt að sýna sig hyggnar meyjar með því að hafa stöðugt nægar birgðir andlegrar olíu. Þar með láta þær ljós sitt skína með því að útbreiða „þetta fagnaðarerindi um ríkið“ um alla jörðina og bera vitni um allan heim þar til „endirinn“ kemur. — Matteus 24:14; Markús 13:10; Opinberunarbókin 14:6, 7.

„Sauðir“ og „hafrar“ eru nú aðgreindir

4. Hvaða dæmisaga, sem er samkvæmt Matteusi síðasti hluti spádóms Jesú um ‚tákn nærveru‘ hans, þarf að rætast?

4 Áður en endalokatími þessa heimskerfis tekur enda þarf að eiga sér stað önnur aðgreining manna sem sé hluti ‚táknsins‘ um að nú standi yfir ‚tími endalokanna.‘ (Daníel 12:4) Það er uppfylling dæmisögu Jesú um sauðina og hafrana, en með henni lýkur Matteus frásögn sinni af hinum mikla spádómi Krists um „tákn“ ósýnilegrar ‚nærveru‘ sinnar og ‚endaloka heimskerfisins.‘

5. Hvenær átti að aðgreina fólk eins og sauði og hafra?

5 Taktu eftir því sem Jesús sagði fyrir um þessa aðgreiningu eins og lesa má í Matteusi 25:31-46. Hann hóf dæmisöguna svo: „Þegar Mannssonurin kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum, og hann mun skilja hvern frá öðrum, eins og hirðir skilur sauði frá höfrum. Sauðunum skipar hann sér til hægri handar, en höfrunum til vinstri.“ Hvað gerist svo? Jesús heldur áfram:

6. Hvað segir hirðirinn og konungurinn við þá sem eru honum á hægri hönd?

6 „Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: ‚Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllum heims. Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín.‘

7. Hvers munu hinir réttlátu sauðumlíku menn spyrja og hverju mun konungurinn svara?

7 Þá munu þeir réttlátu segja: ‚Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan og gáfum þér að eta eða þyrstan og gáfum þér að drekka? Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig? Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín?‘ Konungurinn mun þá svara þeim: ‚Sannlega segi ér yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.‘“

8. (a) Hvað gerðu menn, sem líkjast höfrum, ekki? (b) Hvert mun konungurinn því senda þá, ólíkt hinum réttlátu, sauðumlíku mönnum?

8 „Hafrarnir“ breyta ekki tafarlaust í samræmi við ‚táknið.‘ Þeir gera ekki það sem hópur ‚sauðanna‘ gerir. Því lesum við: „Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: ‚Farið frá mér, bölvaðir, í þann eilífa eld, sem búinn er djöflinum og árum hans. Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka, gestur var ég, en þér hýstuð mig ekki, nakinn, en þér klædduð mig ekki, ég var sjúkur og í fangelsi, en ekki vitjuðuð þér mín.‘ Þá munu þeir svara: ‚Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan eða þyrstan, gestkominn eða nakinn, sjúkan eða í fangelsi, og hjálpuðum þér ekki? Hann mun þá svara þeim: ‚Sannlega segi ér yður: Það allt sem þér gjörðuð ekki einum hinna minnstu bræðra minna, það hafið þér ekki heldur gjört mér.‘ Og þeir munu fara til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs.“

9. Hvaða verkum getur þú glaðst yfir núna meðan dæmisaga Jesú um sauðina og hafrana er að uppfyllast?

9 Líklega átt þú þátt í að uppfylla þessa spádómlegu dæmisögu. Tókst þú eftir því góða sem Jesús nefndi? Hefur þú gert slíkt fyrir ‚bræður‘ hans? Þú getur lýst þig sælan ef þú hefur breytt sem ‚sauður‘ gagnvart þeim!

10. Hvernig gerði Jesús greinarmum á ‚bræðrum‘ sínum og þeim sem sauðirnir og hafrarnir tákna, og hvaða grundvöll gefur Biblían fyrir því?

10 Jesús gerði greinarmun á andlegum „bræðrum“ sínum og þeim sem hegða sér eins og sauðir eða hafrar. Á þeim tímum er þessi dæmisaga uppfyllist eru ‚bræður‘ hans þeir sem hafa líkt eftir honum með því að vígja sig Guði skilyrðislaust. Eins og Jesús hafa þeir látið það opinberlega í ljós með því að láta skírast í vatni. Enn fremur hefur Jehóva, faðir konungsins Jesú Krists, orðið himneskur faðir þeirra með því að geta þá með heilögum anda sínum og gera þá þannig að andlegum „bræðrum“ sonar síns. Það hefur í för með sér að þeir eiga í vændum sæti í hinu himneska ríki með eldri bróður sínum, Jesú Kristi, ‚Konungi konunga og Drottni drottna.‘ (Opinberunarbókin 19:16) Í því sambandi var skrifað um þá: „Því að sá sem helgar og þeir sem helgaðir verða eru allir frá einum komnir. Þess vegna telur hann sér eigi vanvirðu að kalla þá bræður, er hann segir: Ég mun kunnugt gjöra nafn þitt bræðrum mínum, ég mun syngja þér lof mitt í söfnuðinum.“ (Hebreabréfið 2:11, 12) Hér er Sálmur 22:23 heimfærður á hinn dýrlega gerða son Guðs, Jesú Krist.

11. Eru margir af andlegum ‚bræðrum‘ Jesú á jörðinni núna, og hvaða hóp eða ‚söfnuð‘ mynda þeir?

11 Enn eru á jörðinni leifar þessara andlegu „bræðra“ hins ríkjandi konungs Jesú Krists. Sem hópur eða ‚söfnuður‘ mynda þeir ‚trúan og hygginn þjón‘ sem Jesús talaði um í spádómi sínum um ‚endalok heimskerfisins.‘ Hann sagði: „Hver er sá trúi og hyggni þjónn, sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín að gefa þeim mat á réttum tíma? Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur. Sannlega segi ég yður: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.“ — Matteus 24:45-47.

12. (a) Hvað hefur ‚þjónninn‘ gert með framúrskarandi hætti frá 1919? (b) Yfir hvaða „eigur“ hefur ‚þjónninn‘ verið settur? (c) Hverju er ‚þjónninn‘ og starf hans hluti af?

12 Sagan svarar spurningu Jesú um hver sé þessi „þjónn.“ Sem „þjónn“ Jesú starfar ‚söfnuður‘ myndaður af ‚bræðrunum‘ sem Guð hefur gefið honum og enn eru á jörðinni. Hann er sá sami og hópur ‚hyggnu meyjanna.‘ Frá 1919 hefur þessi „þjónn“ á einstakan hátt borið ‚hjúunum‘ á heimili húsbóndans ferska andlega fæðu frá Biblíunni á „réttum tíma.“ Hinn ósýnilegi húsbóndi hefur því sett þennan áreiðanlega ‚þjón‘ „yfir allar eigur sínar“ af andlegu tagi, einkum þær sem tengdar eru prédikun ‚þessa fagnaðarerindis um ríkið‘ um alla jörðina sem hann fer með völd yfir. Þessi vitnisburður um Guðsríki hefur til þessa verið gefinn af vaxandi þrótti! Hinn „trúi og hyggni þjónn“ að verki er mikilvægur hluti ‚táknsins‘ sem sýnir okkur á hvaða tímum við lifum.

13. Síðan hvenær hafa „allar þjóðir“ verið safnaðar saman frammi fyrir konunginum og hvenær byrjaði ‚þjónninn‘ að safna „sauðunum“ við hægri hönd hans?

13 Hinir réttlátu „sauðir“ hafa gert þeim sem mynda hóp ‚þjónsins‘ gott. Hinir táknrænu sauðir og hafrar eru menn af öllum þjóðum sem nú er borið vitni fyrir um Guðsríki. Slíkir sauðir og hafrar tákna því „allar þjóðir“ safnaðar saman frammi fyrir konunginum á hinu himneska hásæti frá og með lokum heiðingjatímanna árið 1914. Árið 1935 er merkisár í sambandi við þessa samansöfnun. Það ár hafði Biblíu- og smáritafélagið Varðturninn, sem ‚þjónninn‘ notaði, 49 deildarskrifstofur víða um heim. Þetta sama ár beindist athygli ‚þjónsins‘ sérstaklega að sauðumlíkum mönnum á jörðinni með það að markmiði að safna þeim við hægri hönd hins ríkjandi konungs Jesú Krists. Þannig eignuðust þessir menn af öllum þjóðum nánara samfélag við þann hóp sem myndaði ‚þjóninn.‘

14. Hvaða nýja skilning fengu hinir réttlátu sauðumlíku menn í ljósi Jóhannesar 10:16, og hversu margar deildarskrifstofur hefur Varðturnsfélagið núna til að þjóna þeim?

14 Þessir réttlátu, sauðumlíku menn áttu ekki lengur að falla í fremur óljósan flokk ‚manna sem Guð hafði velþóknun á.‘ (Lúkas 2:14) Þeir áttu ekki lengur að skoðast sem óákveðinn, óskipulagður flokkur guðhræddra manna meðal allra þjóða — nokkurs konar týndir sauðir. Jesús sagðist myndi safna saman ‚öðrum sauðum‘ og gera þá að ‚einni hjörð‘ með leifum ‚þjónshópsins.‘ (Jóhannes 10:16) Samansöfnun slíkra ‚annarra sauða‘ þaðan í frá er veigamikill þáttur ‚táknsins um endalok heimskerfisins.‘ Og til að þjóna þeim hefur Varðturnsfélagið nú 95 deildarskrifstofur.

Launin fyrir tímanleg viðbrögð við ‚tákninu‘

15. Hvaða kröfu þurfa ‚sauðirnir‘ að uppfylla til að ‚erfa ríkið‘?

15 Samkvæmt dæmisögu Jesu verða hinir réttlátu „sauðir“ að uppfylla vissar kröfur á ‚endalokatíma heimskerfisins.‘ Þeir verða að þekkja og viðurkenna andlega ‚bræður‘ Krists sem mynda hóp ‚trúa og hyggna þjónsins.‘ ‚Sauðirnir‘ verða líka að gera gott þeim sem mynda ‚þjóninn,‘ jafnvel að heimsækja þá þegar þeir sitja í fangelsi bornir röngum sökum. Þetta verða ‚sauðirnir‘ að gera til að njóta blessunar hins himneska föður og til að konungurinn Jesús Kristur bjóði þeim að ‚taka að erfð ríkið sem þeim var fyrirbúið frá grundvöllun heims.‘ — Matteus 25:34.

16. Hvað er konungurinn að bjóða „sauðunum“ með orðunum ‚að erfa ríkið‘ og hvaða stríð eiga þeir að lifa af?

16 Þar eð þessir ‚sauðir‘ eru ekki andlegir ‚bræður‘ konungsins býður hann þeim ekki að sitja í himneskum hásætum og ríkja með sér í þúsundáraríkinu. Með orðunum ‚að taka að erfð ríkið‘ er hann að bjóða þeim að verða þegnar Guðsríkis eftir að hann hefur eytt öllum óguðlegum ríkjum þessa heims í ‚stríðinu á hinum mikla degi Guðs hins alvalda‘ við Harmagedón. (Opinberunarbókin 16:13-16) Margir hinna sauðumlíku, sem nú lifa, munu lifa af þessa styrjöld allra styrjalda og ganga inn í þúsundáraríki Krists án þess að deyja.

17. Hvernig talar konungurinn við ‚sauðina‘ og hvernig eignaðist hann það sem hann eftirlætur þeim?

17 Konungurinn Jesús Kristur talar því um þessa ‚sauði‘ sem börn sín er nú eiga að taka arf frá honum. Með dauða sínum sem fullkominn maður til lausnargjalds fyrir allt mannkynið, afsalaði hann sér voninni um að fá nokkurn tíma að lifa sjálfur í hinni jarðnesku paradís. (lúkas 23:39-43) Að þessu leyti var Jesús, „hinn síðari Adam‘ sem syndgaði og fyrirgerði hinni jarðnesku paradís fyrir alla afkomendur sína. Hinn upprisni Jesús Kristur, sem verður „eilífðarfaðir“ alls hins endurleysta mannheims, hafði því eitthvað til að eftirláta þessum sauðumlíku mönnum á jörðinni. (1. Korintubréf 15:45; Jesaja 9:6, 7) Hin mannlega fjölskylda var stofnuð með ‚hinum fyrsta manni Adam‘ sem átti að búa í paradís og njóta allra þeirra möguleika og tækifæra sem því voru samfara. Þessi glataða paradís á að verða endurreist fyrir tilverknað Guðsríkis í höndum ‚hins síðari Adams,‘ Jesú Krist.

18. Í hvaða skilningi var jarðneskt yfirráðasvæði Guðsríkis ‚búið sauðunum frá grundvöllun heims‘?

18 Adam og Eva eignuðust ekki börn fyrr en þau höfðu verið rekin út úr hinni fyrstu paradís. Annar sonur þeirra, hinn réttláti Abel, var myrtur af fyrsta syni þeirra, Kain. Því var litið svo á að Set, sonur þeirra, kæmi í stað Abels. Með þessum börnum þeirra var mannheimurinn grundvallaður. En áður en það gerðist, þegar foreldrar mannheimsins voru reknir út úr paradís, gaf Jehóva Guð sitt miskunnsama fyrirheit um „sæði“ sem myndi merja eða kremja höfuð hins táknræna höggorms, Satans djöfulsins. Þetta „sæði“ átti að verða konunglegt sæði og var því tengt Guðsríki í samræmi við tilgang og fyrirvitund Guðs. (1. Mósebók 3:15) Þegar höggormurinn Satan og sæði hans er gert óvirkt munu því endurleystir menn ganga inn á yfirráðasvæði Guðsríkis á jörð, verða þegnar himneskrar stjórnar hins sigursæla sæðis sem kremur höggorminn og sæði hans. „Ríkið,“ sem hinir sauðumlíku ‚taka að erfð‘ frá eilífðarföður sínum, Jesú Kristi, er því jarðneskt yfirráðasvæði Guðsríkis sem þeim var „búið frá grundvöllum heims.“

19. Hvers konar byrjun mun hin nýja heimsskipan á jörð fá eftir Harmagedón?

19 Með því að hinir táknrænu hafrar verða afmáðir í Harmagedón munu ‚sauðirnir,‘ sem af lifa, vera réttlátt upphaf hins nýja skipulags í paradís á jörð eftir Harmagedón. Um það sagði Jesús: „Þeir [menn sem líkjast höfrum] munu fara til eilífrar refsingar [verða afmáðir], en hinir réttlátu til eilífs lífs.“ — Matteus 25:46.

20. Hvernig getum við forðast að mistúlka ‚táknið‘?

20 Nú á ‚endalokatíma heimskerfisins‘ frá lokum heiðingjatímanna árið 1914 hefur sýnt sig að ‚sauðirnir‘ og ‚hafrarnir‘ túlka ‚táknið‘ um ‚nærveru‘ Jesú á sitt hvorn veg. Úr því að það er hafið yfir allan vafa að nú eru dómstímar skiptir sú spurning geysilegu máli hvað ‚táknið‘ þýði fyrir okkur. Ef við ættum að láta eigin dómgrein segja okkur það kynnum við að mistúlka ‚táknið.‘ Við ættum því að hugleiða hvað Jesús Kristur sagði að þetta samsetta „tákn“ ætti að segja okkur. Að því er hann sagði ætti það að tákna að núverandi heimsskipan eigi að taka enda bráðlega í ‚mikilli þrengingu,‘ langtum meiri en heimsflóðið á dögum Nóa. — Matteus 24:21.

21. (a) Hvers vegna ættum við að fagna þótt ‚þrengingin mikla‘ sé framundan? (b) Hvaða tækifæri og möguleikar standa ‚sauðunum‘ til boða?

21 En það er ástæða til að gleðjast því að þetta „tákn“ merkir líka að þúsundáraríki Jesú Krists stendur fyrir dyrum, er reiðubúið að taka til starfa eftir að kerfi Satans hér á jörð hefur verið eyðilagt. (Lúkas 21:28) Þú hefur því ómetanlegt tækifæri að njóta verndar Guðs og lifa af þessa ‚miklu þrengingu‘ inn í nýja heimsskipan þar sem réttlæti mun búa að eilífu. Þér stendur til boða sá möguleiki að þurfa aldrei að deyja heldur að geta lifað endalaust í paradís á jörð undir alheimsdrottinvaldi Jehóva Guðs!

22. (a) Hvað munum við gera ef við bregðumst skjótlega og rétt við ‚tákninu‘? (b) Hvernig mun Jesús Kristur vera upphafinn í sambandi við ‚táknið‘?

22 Við skulum því, hvort sem við erum andlegir ‚bræður‘ Krists eða réttlátir ‚sauðir‘ hans, bregðast tafarlaust og rétt við ‚tákninu.‘ Við skulum halda áfram að eiga þátt í að uppfylla þennan merka hluta ‚táknsins‘: „Þetta fagnaðarerindi um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar.“ Þá munum við ekkert hafa að óttast þegar „endirinn“ kemur. Við munum í staðin njóta stórkostlegrar gleði! Þá mun Jesús Kristur líka sannast áreiðanlegur spámaður hins margþætta ‚tákns um endalok heimskerfisins.‘ — Matteus 24:3-25:46.

Getur þú svarað?

◻ Hvenær átti að aðgreina menn eins og sauði og hafra?

◻ Yfir hvaða verkum getur þú glaðst þegar dæmisaga Jesú um sauðina og hafrana er að uppfyllast?

◻ Hverjir eru ‚bræður‘ konungsins og hin ‚trúi og hyggni þjónn‘?

◻ Hvaða kröfur þurfa sauðumlíkir menn að uppfylla til að ‚taka að erfð ríkið‘?

◻ Hvað munum við gera ef við breytum tafarlaust og rétt í samræmi við ‚táknið‘ um ‚nærveru‘ Jesú?

[Rammi á blaðsíðu 21]

Breyttu tafarlaust í samræmi við ‚táknið‘ um ‚nærveru‘ Jesú. Það getur haft í för með sér eilíft líf í paradís.

[Mynd á blaðsíðu 19]

Eins og fjárhirðir skilur sauði frá höfrum er Jesús Kristur núna að skilja fólk í tvo hópa. Ert þú sauðumlíkur maður?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila