Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 41 bls. 188–191
  • Þau voru réttlát í augum Guðs

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þau voru réttlát í augum Guðs
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Elísabet eignast barn
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • Fyrirrennarinn fæðist
    Mesta mikilmenni sem lifað hefur
  • Boð frá himni
    Mesta mikilmenni sem lifað hefur
  • Heiðraður fyrir fæðingu
    Mesta mikilmenni sem lifað hefur
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 41 bls. 188–191

41 SAKARÍA OG ELÍSABET

Þau voru réttlát í augum Guðs

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

ÞETTA var merkilegur dagur í lífi Sakaría. Hans beið sjaldgæft verkefni sem hann hefur ef til vill ekki fengið að sinna nema einu sinni á ævinni. Hann var prestur, einn af fjöldamörgum afkomendum Arons, og nú var röðin komin að honum að færa reykelsi að fórn á gullaltarinu í musterinu. Þetta var mikill viðburður bæði fyrir Sakaría og Elísabetu eiginkonu hans.

Sakaría og Elísabet höfðu verið gift í mörg ár og Jehóva hafði blessað þau á ýmsa vegu en eitt þráðu þau sem virtist utan seilingar. Þau langaði til að eignast börn en barneignir skiptu þjóna Guðs miklu máli á þeim tíma. Sakaría og Elísabet „voru bæði orðin gömul“. En Biblían lýsir þeim sem réttlátum í augum Guðs. Þau héldu áfram að biðja til Guðs í trausti þess að hann myndi bænheyra þau jafnvel þótt það virtist engin von um að þau fengju ósk sína uppfyllta.

Sakaría gekk inn í helgidóminn á meðan mannfjöldinn bað til Guðs fyrir utan. Í kyrrðinni í þessum mikla sal birtist honum allt í einu vera sem stóð við hliðina á reykelsisaltarinu – það var engill Jehóva! Hann sagði Sakaría að Guð hefði heyrt bænir hans og að þau Elísabet myndu eignast son. Drengurinn átti að heita Jóhannes. Hann myndi hafa ‚anda og kraft Elía‘ þegar hann næði fullorðinsárum. Hann myndi vinna mikilvægt starf og búa fólk undir að snúa aftur til Jehóva.

Sakaría efaðist stórlega um að þetta gæti gerst og bað engilinn um tákn. Engillinn setti ofan í við hann og sagði: „Ég er Gabríel sem stend frammi fyrir Guði.“ Það var engin ástæða til að draga orð þessa volduga þjóns Jehóva í efa. Gabríel bætti við að Sakaría yrði mállaus þangað til loforð Guðs rættust. Þegar Sakaría kom út úr helgidóminum þurfti hann því að nota bendingar til að lýsa því sem hann hafði upplifað.

Barnlaus eldri hjón fá boðskap frá Guði sem breytir lífi þeirra.

Sakaría tókst einhvern veginn að útskýra fyrir Elísabetu hvað hafði gerst. „Nokkrum dögum síðar“ varð hún barnshafandi. Hún hélt sig heima fyrir í fimm mánuði en í sjötta mánuðinum kom ættingi í heimsókn – María dóttir Elí frá Nasaret. Um leið og María kom inn sparkaði barnið í kviði Elísabetar af gleði. Elísabet fylltist heilögum anda og var innblásið að kalla Maríu ‚móður Drottins síns‘. Hún vissi að María bar undir belti barnið sem myndi verða Messías. Elísabet var ekki öfundsjúk heldur reyndi að hvetja ungu konuna fyrir verkefnið sem hún átti fram undan.

Þegar Elísabet hafði fætt drenginn komu ættingjar hennar og nágrannar í heimsókn. Þeir reyndu að fá hana til að láta hann heita í höfuðið á föður hans. En Elísabet vissi hvað Gabríel hafði sagt við manninn hennar: „Þú skalt láta hann heita Jóhannes.“ Hún hafnaði því tillögu fólksins og sagði: „Nei, hann á að heita Jóhannes.“ Fólkið var ekki ánægt með það og sneri sér til Sakaría. Hann var enn þá mállaus svo að hann skrifaði á spjald: „Hann heitir Jóhannes.“ Samstundis fékk hann málið aftur.

Sakaría skrifar á spjald. Elísabet situr hjá honum með barnið í fanginu. Þau eru umkringd nágrönnum og ættingjum sem fylgjast náið með Sakaría.

Sakaría fylltist nú heilögum anda og bar fram spádóm. Honum var innblásið að flytja spámannlegan boðskap um von, frelsun og miskunn Guðs. Hann sagði að Jóhannes sonur sinn myndi „ganga á undan Jehóva til að greiða veg hans“. Og þannig fór. Jóhannes skírari var fyrirrennari Messíasar og bjó fólk undir að taka við boðskap hans um ríki Guðs.

Koma Messíasar hafði í för með sér miklar breytingar á samskiptum þjóna Guðs við þá sem tilbiðja hann ekki eða eru andsnúnir honum. Fyrr á öldum höfðu margir þjónar Guðs sýnt hugrekki með því að beita vopnum og berjast gegn óvinum hans á jörð. En nú voru nýir tímar í vændum og Jehóva bað þjóna sína ekki lengur að heyja stríð af þessu tagi. Þeir þurftu samt að vera hugrakkir. Þeir sem tækju trú á Messías þyrftu að nota tunguna, eins og Sakaría og Elísabet, til að lofa Jehóva Guð og flytja fagnaðarboðskapinn um Jesú Krist.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • Lúkas 1:5–25, 36–45, 57–80

Til umræðu:

Hvernig sýndu Sakaría og Elísabet hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Sakaría og Elísabet voru auðvitað ófullkomin. Af hverju segir samt í Biblíunni að þau hafi ‚lifað óaðfinnanlega eftir öllum boðorðum og lögum Jehóva‘? (Lúk. 1:6; it „Óaðfinnanlegur“ gr. 2 – wcgr)

  1. 2. Hvað segir í Biblíunni um Gabríel? (it „Gabríel“ gr. 2, 3 – wcgr) A

Samsett mynd: 1. Engillinn Gabríel er á himnum og horfir upp. 2. Hann flytur Daníel boðskap. 3. Hann flytur Sakaría boðskap. 4. Hann flytur Maríu boðskap.

Mynd A

Mynd A

  1. 3. Gabríel sagði Sakaría að sonur hans ætti að heita Jóhannes. Hvað merkir nafnið Jóhannes? (it „Jóhannes“ gr. 1 – wcgr)

  2. 4. Missti Sakaría bæði mál og heyrn? (w08 15.3. 30 gr. 6)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Rabbínar Gyðinga á dögum Sakaría leyfðu að maður skildi við konu sína ef hún ól honum ekki börn. Hvað geta eiginmenn lært um tryggð af Sakaría? B

    Samsett mynd: Eiginmaður heldur tryggð við konuna sína áratugum saman. 1. Þau hjónin á brúðkaupsdeginum. 2. Einhverju síðar boða þau trúna saman á afskekktu svæði. 3. Núna eru þau saman í trillustarfi. Konan situr í rafdrifnum hjólastól og er með súrefniskút. Maðurinn stendur hjá henni með höndina á öxl hennar.

    Mynd B

  • Elísabet studdi ákvörðun eignmanns síns þrátt fyrir þrýsting nágranna og ættingja. (Lúk. 1:58–61) Hvað geta eiginkonur lært af henni?

  • Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og Sakaría og Elísabet?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Sakaría og Elísabetu ef þau fá jarðneska upprisu?a

Skoðaðu meira

Sjáðu hvernig Sakaría fær málið aftur og lofar Guð.

„Hann heitir Jóhannes“ (6:59)

Hvernig fékk María styrk frá Jehóva þegar hún heimsótti Elísabetu og hvað getum við lært af því?

„‚Hann mun styrkja ykkur‘ – hvernig?“ (w23.10 14–15 gr. 10–14)

a Ef Sakaría og Elísabet dóu fyrir hvítasunnu árið 33 fá þau jarðneska upprisu.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila