Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • bm kafli 24 bls. 27–28
  • Páll skrifar söfnuðunum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Páll skrifar söfnuðunum
  • Biblían — hver er boðskapur hennar?
  • Svipað efni
  • Leiðbeiningar um trú, hegðun og kærleika
    Biblían — hver er boðskapur hennar?
  • Páll í Róm
    Biblíusögubókin mín
  • Allir spámennirnir báru honum vitni
    Tilbiðjum hinn eina sanna Guð
  • Sæði höggormsins — hvernig afhjúpað?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1996
Sjá meira
Biblían — hver er boðskapur hennar?
bm kafli 24 bls. 27–28
Páll les fyrir bréf í stofufangelsi.

24. KAFLI

Páll skrifar söfnuðunum

Bréf Páls styrkja kristna söfnuðinn.

HINN nýstofnaði kristni söfnuður á að gegna mikilvægu hlutverki í því að vilji Jehóva nái fram að ganga. En það líður ekki á löngu áður en frumkristnir menn sæta árásum. Verða þeir Guði trúir í utanaðkomandi ofsóknum og gagnvart lúmskari hættum innan frá? Í Nýja testamentinu er að finna 21 bréf þar sem gefin eru góð ráð og hvatningarorð.

Fjórtán af þessum bréfum, frá Rómverjabréfinu til Hebreabréfsins, voru skrifuð af Páli postula. Bréfin eru nefnd eftir þeim sem þau eru stíluð á, hvort sem það eru söfnuðir eða einstaklingar. Lítum á sumt af því sem Páll fjallar um í bréfum sínum.

Leiðbeiningar um hegðun og siðferði. Þeir sem stunda saurlifnað, hórdóm og aðrar grófar syndir „munu ekki erfa Guðs ríki“. (Galatabréfið 5:​19-21; 1. Korintubréf 6:​9-11) Þeir sem tilbiðja Guð verða að vera sameinaðir óháð þjóðerni. (Rómverjabréfið 2:11; Efesusbréfið 4:​1-6) Þeir eiga að gefa fúslega af sjálfum sér til að hjálpa þurfandi trúsystkinum. (2. Korintubréf 9:⁠7) „Biðjið án afláts,“ hvetur Páll. Kristnir menn eru hvattir til að úthella hjörtum sínum fyrir Jehóva í bæn. (1. Þessaloníkubréf 5:17; 2. Þessaloníkubréf 3:1; Filippíbréfið 4:​6, 7) Til að Guð heyri bænir þarf að biðja í trú. — Hebreabréfið 11:⁠6.

Hvernig dafna fjölskyldur best? Eiginmaður á að elska eiginkonu sína eins og eigin líkama. Eiginkona á að bera djúpa virðingu fyrir eiginmanni sínum. Börn eiga að hlýða foreldrum sínum því að það er Guði þóknanlegt. Foreldrar þurfa að leiðbeina og kenna börnunum í kærleika í samræmi við meginreglur Guðs. — Efesusbréfið 5:22–6:4; Kólossubréfið 3:​18-21.

Kort yfir staði þar sem Páll skrifaði bréf.

Hjálp til að skilja fyrirætlun Guðs. Mörg ákvæði Móselaganna höfðu það hlutverk að vernda Ísraelsmenn og leiðbeina þeim þangað til Kristur kæmi. (Galatabréfið 3:24) Kristnir menn þurfa hins vegar ekki að halda lögmálið til að tilbiðja Guð. Hebreabréfið er ætlað kristnum mönnum sem voru Gyðingar að uppruna. Þar varpar Páll ljósi á þýðingu lögmálsins og skýrir hvernig fyrirætlun Guðs kom fram í Kristi. Páll bendir á að margt í lögmálinu hafi haft spádómlega þýðingu. Dýrafórnirnar fyrirmynduðu til dæmis fórn Jesú en hún er forsenda þess að fá syndir sínar fyrirgefnar. (Hebreabréfið 10:​1-4) Með dauða Jesú felldi Guð lagasáttmálann úr gildi því að hans var ekki lengur þörf. — Kólossubréfið 2:​13-17; Hebreabréfið 8:⁠13.

Söfnuður á fyrstu öldinni hlustar á upplestur á einu af bréfum Páls.

Leiðbeiningar um skipulag safnaðarins. Karlmenn, sem fara með forystu í söfnuðinum, þurfa að hafa gott siðferði og uppfylla þær hæfniskröfur sem gerðar eru í Biblíunni. (1. Tímóteusarbréf 3:​1-10, 12, 13; Títusarbréfið 1:​5-9) Þeir sem tilbiðja Jehóva Guð eiga að safnast saman reglulega til að uppörva hver annan. (Hebreabréfið 10:​24, 25) Samkomur eiga að vera fræðandi og uppbyggilegar. — 1. Korintubréf 14:​26, 31.

Þegar Páll skrifar Tímóteusi síðara bréfið er hann kominn aftur til Rómar. Hann situr í fangelsi og bíður dóms. Aðeins fáeinir hugrakkir trúbræður taka þá áhættu að heimsækja hann. Páll veit að hann á skammt eftir ólifað. „Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna,“ segir hann. (2. Tímóteusarbréf 4:⁠7) Hann deyr sennilega píslarvættisdauða skömmu síðar. En bréf hans eru þjónum Guðs til leiðsagnar enn þann dag í dag.

— Byggt á Rómverjabréfinu, 1. Korintubréfi, 2. Korintubréfi, Galatabréfinu, Efesusbréfinu, Filippíbréfinu, Kólossubréfinu, 1. Þessaloníkubréfi, 2. Þessaloníkubréfi, 1. Tímóteusarbréfi, 2. Tímóteusarbréfi, Títusarbréfinu, Fílemonsbréfinu og Hebreabréfinu.

  • Hvaða leiðbeiningar er að finna um hegðun og siðferði í bréfum Páls?

  • Hvernig varpar Páll ljósi á fyrirætlun Guðs með Krist?

  • Hvaða leiðbeiningar gaf Páll um skipulag safnaðarins?

HVER ER FYRIRHEITNI NIÐJINN?

Eftir að Adam og Eva syndguðu talaði Guð á líkingamáli við höggorminn og sagði: „Ég set fjandskap milli þín og konunnar og milli þinna niðja og hennar niðja. Þeir skulu merja höfuð þitt og þú skalt höggva þá í hælinn.“ (1. Mósebók 3:15) Satan djöfullinn er ‚hinn gamli höggormur‘ eins og fram kemur í Biblíunni. (Opinberunarbókin 12:⁠9) En hvern eða hverja er átt við þegar talað er um niðja konunnar, frelsarann? Það var leyndardómur sem var opinberaður smám saman í aldanna rás.

Um 2.000 árum eftir að Adam og Eva syndguðu gaf Jehóva til kynna að fyrirheitni niðjinn kæmi af ætt Abrahams. (1. Mósebók 22:​17, 18) Öldum síðar benti Páll postuli á að aðalniðjinn væri Messías, Jesús Kristur. (Galatabréfið 3:16) Þegar Jesús var tekinn af lífi var hann í táknrænum skilningi höggvinn „í hælinn“ eins og það er orðað í 1. Mósebók 3:15. En Jehóva reisti hann upp frá dauðum og var hann þá ‚lifandi gerður í anda‘. — 1. Pétursbréf 3:⁠18.

Guð hafði einnig fyrirhugað að 144.000 manns myndu tilheyra þessum niðjum. (Galatabréfið 3:29; Opinberunarbókin 14:⁠1) Þeir eru reistir upp sem andaverur og erfa ríkið á himnum ásamt Kristi. — Rómverjabréfið 8:​16, 17.

Jesús er nú voldugur konungur á himnum og útrýmir bráðlega Satan og niðjum hans, það er að segja illum mönnum og öndum sem fylgja honum. (Jóhannes 8:44; Efesusbréfið 6:12) Jesús færir síðan öllum hlýðnum mönnum frið og fögnuð. Hann mer „höfuð“ höggormsins svo að hann líður undir lok. — Hebreabréfið 2:14.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila