Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g99 8.10. bls. 12–14
  • Hvernig get ég sigrast á áhyggjum mínum af því að fitna?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig get ég sigrast á áhyggjum mínum af því að fitna?
  • Vaknið! – 1999
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Að horfa í spegilinn
  • Að skilgreina sanna fegurð
  • Opnaðu þig
  • Sýndu þolinmæði — batinn tekur sinn tíma
  • Hvað ef mér líkar ekki útlit mitt?
    Spurningar unga fólksins — svör sem duga, 2. bindi
  • Hvers vegna hef ég stöðugar áhyggjur af því að fitna?
    Vaknið! – 1999
  • Er ég með átröskun?
    Vaknið! – 2007
  • Hvernig fer ég að því að léttast?
    Ungt fólk spyr
Sjá meira
Vaknið! – 1999
g99 8.10. bls. 12–14

Ungt fólk spyr . . .

Hvernig get ég sigrast á áhyggjum mínum af því að fitna?

„Líf mitt snýst um það hvort ég eigi að smyrja samlokuna mína með majónesi eða ekki. Hvernig get ég einbeitt mér að öðru þegar ég er gagntekin af majónesi? Lokaniðurstaðan? — ekkert majónes — það inniheldur of margar hitaeiningar. Lystarstolið sigrar aftur. Ég tapa.“ — Jaimee.

MILLJÓNIR ungmenna þjást af átröskun.a Flest þeirra ætluðu aldrei að svelta sig (lystarstol) eða lenda í þeim farvegi að háma í sig mat og kasta honum síðan upp (lotugræðgi). Margir byrjuðu aðeins á að setja sér það markmið að léttast um nokkur kíló. Fyrr en varði voru þeir fastir í undarlegum vítahring þar sem þeir annaðhvort sveltu sig eða borðuðu yfir sig. „Ég fór í þessa megrun til að hafa stjórn á þyngdinni, en núna stjórnar hún mér,“ segir Jaimee.

Hvað geturðu gert ef þú ert haldin þráhyggju um mat og líkamsþyngd? Í fyrsta lagi skaltu gera þér ljóst að margir aðrir unglingar hafa átt í baráttu við átröskun og borið sigur úr býtum! En hvernig?

Að horfa í spegilinn

Að sætta sig við útlitið er stór þáttur þess að sigra í baráttunni gegn átröskun. „Flestir sem haldnir eru átröskun hafa bjagaða sjálfsmynd,“ segir bókin Changing Bodies, Changing Lives. „Þeir skynja ekki líkama sína á raunhæfan hátt og eru ákaflega dómharðir á sjálfa sig, sérstaklega hvað varðar útlitið.“

Sumir unglingar byggja sjálfsmynd sína að öllu leyti á vaxtarlaginu; þeim finnst hörmung að sjá minnsta lýti. „Ég þoli ekki hvað ég er feit,“ segir Vigdís sem er 17 ára. „Ég er svo breið um mittið að ég get aldrei verið í neinu aðskornu.“ Jafnvel eftir að hafa lést um 10 kíló var Vigdís ekki ánægð. Annaðhvort neitaði hún að borða eða hámaði í sig mat og kastaði honum síðan upp.

Vissulega er ekki rangt að hafa einhvern áhuga á útliti sínu. Því til stuðnings er athyglisvert að sjá að Biblían talar vel um vaxtarlag og útlit nokkurra kvenna og karla, þeirra á meðal Söru, Rakelar, Jósefs, Davíðs og Abígail.b Biblían segir jafnvel að hjúkrunarkona Davíðs, Abísag, hafi verið „forkunnar fríð.“ — 1. Konungabók 1:4.

Að skilgreina sanna fegurð

En Biblían leggur ekki aðaláherslu á útlit og vaxtarlag heldur dásamar ‚hinn hulda mann hjartans.‘ (1. Pétursbréf 3:4) Það er hinn innri maður sem gerir okkur annaðhvort aðlaðandi eða fráhrindandi í augum Guðs og manna. — Orðskviðirnir 11:20, 22.

Tökum Absalon, son Davíðs konungs, sem dæmi. Biblían segir: „Í öllum Ísrael var enginn maður eins fríður og Absalon, og fór mikið orð af því. Frá hvirfli til ilja voru engin lýti á honum.“ (2. Samúelsbók 14:25) Samt var þessi ungi maður svikull. Stolt og metnaður knúði hann til að reyna að hrifsa til sín völdin af útnefndum konungi Jehóva Guðs. Biblían gefur því ekki fallega mynd af Absalon heldur lýsir honum sem blygðunarlausum, sviksömum, grimmum og hatursfullum.

Sönn fegurð eða myndarleiki veltur því ekki á líkamlegu útliti. Biblían segir að gefnu tilefni: „Afla þér visku, afla þér hygginda fyrir allar eigur þínar! Hún mun setja yndislegan sveig á höfuð þér, sæma þig prýðilegri kórónu.“ — Orðskviðirnir 4:7, 9.

Átröskun á að vísu rætur sínar að rekja til einhvers meira en aðeins óánægju með útlitið. Heimildarrit segir: „Fólk sem er haldið mataráráttu og verður átröskun að bráð eins og lystarstoli, lotugræðgi og ofáti, hefur yfirleitt lítið sjálfsálit — það hefur ekki mikið álit á eigin ágæti og finnst að aðrir meti það ekki heldur að verðleikum.“

Margt getur stuðlað að litlu sjálfsáliti. Við upphaf kynþroskaskeiðsins, til dæmis, geta óvissublendnar tilfinningar kaffært mann — sér í lagi ef maður hefur þroskast á undan jafnöldrunum. Þá alast sumir unglingar upp við stöðuga ólgu á heimilinu, kannski jafnvel líkamlegt eða kynferðislegt ofbeldi. Óháð því hvað veldur, felur batinn yfirleitt í sér að átta sig á hvað vekur upp þær tilfinningar að maður telji sig einskis virði, með öðrum orðum að þú skiljir raunverulegt gildi þitt sem einstaklings. Allir hafa að minnsta kosti einhverja lofsverða eiginleika. (Samanber 1. Korintubréf 12:14-18.) Þú kemur kannski ekki auga á þá, en þroskaður vinur getur kannski bent þér á þá.

En hvað nú ef þú þarft virkilega að léttast heilsunnar vegna? Biblían mælir með ‚bindindissemi.‘ (1. Tímóteusarbréf 3:11) Því er best að forðast hraðkúra og aðrar öfgar í megrun. Ef til vill er besta leiðin til að losna við aukakílóin að borða hollan mat og fá nægilega hreyfingu. Tímaritið FDA Consumer segir: „Eins og með flest allt annað er bæði til rétt og röng aðferð til að léttast. Ranga aðferðin er að sleppa máltíðum, einsetja sér að borða ekkert nema megrunarbrauð og vatn, taka megrunartöflur eða framkalla uppköst.“

Opnaðu þig

Nancy Kolodny félagsráðgjafi ber átröskun saman við það „að ganga einn inn í völundarhús án þess að hafa kort eða áttavita, án þess að vita hvar útgönguleiðirnar eru og í óvissu um hvenær og hvort maður finni þær. . . . Því lengur sem maður er inni, þeim mun ringlaðri og ergilegri verður maður við að reyna að komast út.“ Ef þú hefur einkenni lystarstols eða lotugræðgi þarftu að fá hjálp. Þú kemst ekki út úr „völundarhúsinu“ á eigin spýtur. Trúðu þess vegna foreldrum þínum eða öðrum fullorðnum, sem þú treystir, fyrir þessu. Biblíuorðskviður segir: „Vinur elskar ætíð og í nauðum er hann sem bróðir.“ — Orðskviðirnir 17:17.

Margir vottar Jehóva hafa fundið áreiðanlegan félagsskap meðal öldunga í kristna söfnuðinum. Að sjálfsögðu eru öldungar ekki læknar og aðstoð þeirra kemur ekki í staðinn fyrir læknishjálp. En kristnir umsjónarmenn láta ekki ‚kvein hins fátæka‘ sem vind um eyrun þjóta, og ráðleggingar þeirra og bænir geta hjálpað við að „gjöra hinn sjúka heilan“ andlega séð. — Orðskviðirnir 21:13; Jakobsbréfið 5:13-15.

Ef þér finnst erfitt að tala við einhvern augliti til auglitis skaltu tjá þig í bréfi og biðja um svar. Það er mikilvægt að einhver viti um aðstæður þínar. „Með því að viðurkenna að þú getir ekki haldið áfram á eigin spýtur,“ skrifar Nancy Kolodny, „ertu að gera þá skuldbindingu að leyfa einhverjum öðrum að hjálpa þér þaðan í frá.“ Hún bætir við: „Það getur verið erfitt fyrir þig að hugsa um þetta og gera það, en það er jákvætt og beinir þér í rétta átt út úr völundarhúsinu.“

Kristin ungmenni hafa annað öflugt úrræði — bænina. Bæn til Guðs er ekki sálfræðileg hækja. Hún er raunveruleg og lífsnauðsynleg tjáskipti við skaparann en hann skilur þig betur en þú sjálfur! (1. Jóhannesarbréf 3:19, 20) Þótt tími Jehóva til að afmá alla sjúkdóma sé ekki kominn getur hann þó stýrt skrefum þínum svo að þú verðir ekki valtur á fótum. (Sálmur 55:23) Sálmaritarinn Davíð gat skrifað af eigin reynslu: „Ég leitaði [Jehóva], og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist. Hér er volaður maður sem hrópaði, og [Jehóva] heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.“ — Sálmur 34:5, 7.

Þú skalt því fyrir alla muni tjá Jehóva Guði þínar innstu tilfinningar. Pétur postuli skrifaði: „Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður.“ (1. Pétursbréf 5:7) Til að byggja upp þakklæti okkar fyrir ástríka góðvild Jehóva er þjóðráð að lesa vandlega Sálm 34, 77, 86, 103 og 139. Að hugleiða þessa sálma styrkir sannfæringu þína um að Jehóva er hollur og vill að þú náir árangri. Með því að lesa orð hans mun þér líða eins og Davíð sem skrifaði: „Þegar ég er kvíðinn og áhyggjufullur huggar þú mig og veitir mér gleði.“ — Sálmur 94:19, Today’s English Version.

Sýndu þolinmæði — batinn tekur sinn tíma

Fæstir, sem fá hjálp við átröskun, ná sér á einni nóttu. Lítum til dæmis á Jaimee sem í var vitnað í byrjun greinarinnar. Jafnvel eftir að hún fór að fá hjálp fannst henni erfitt að borða þótt ekki væri það meira en skál af kornflögum. „Ég verð að halda áfram að segja sjálfri mér að þetta sé gott fyrir mig og að ég þurfi fæðu til að lifa,“ segir hún. „Hver munnbiti sem ég borða virðist vega hundrað kíló.“

Enda þótt Jaimee hafi einu sinni verið nærri að dauða komin einsetti hún sér að sigrast á áhyggjum sínum af því að fitna. Hún segir: „Ég ætla ekki að deyja. Ég ætla að berjast og sigra. Ég mun sigrast á lystarstoli. Það verður erfitt en mér mun takast það.“ Þér getur einnig tekist það!

[Neðanmáls]

a Sjá Vaknið! júlí-september 1999, bls. 13-15.

b Sjá 1. Mósebók 12:11; 29:17; 39:6; 1. Samúelsbók 17:42; 25:3.

[Mynd á blaðsíðu 13]

Hollur matur og nægileg hreyfing getur hjálpað þér að hafa stjórn á þyngdinni.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila