Troy Harrison/Moment via Getty Images
BÝR HÖNNUN AÐ BAKI?
Færni bjórsins í stíflugerð
Fundist hafa allt að 850 metra langar og 5,3 metra háar stíflur sem bjórar hafa gert. Hvernig geta þeir gert svona stórar stíflur?
Bjórarnir byrja á að fella tré, yfirleitt undir 30 sentímetra að ummáli. Þeir draga staurana út í árfarveginn og setja þá niður eins og súlur. Síðan flétta þeir trjáplöntur og reyr á milli stauranna. Þeir festa stífluna með því að þyngja hana með grjóti og festa endana á henni við tré eða klappir. Þeir styrkja stífluna auk þess að neðanverðu með skástoðum sem spyrna gegn vatnsþunganum. Bjórarnir þétta stífluna að ofanverðu með smágreinum, vatnagróðri og leðju. Þar að auki gera þeir yfirfallsrásir við báða enda stíflunnar og víkka þær í miklum rigningum.
Skýringarmynd af stíflu sem bjórar hafa gert. Hún sýnir (1) lóðréttar súlur, (2) trjáplöntur fléttaðar á milli staura, (3) skástoðir, (4) grjót sem festir stífluna, og (5) smágreinar og vatnagróður þéttur með leðju.
Vísindamenn hafa uppgötvað að stíflugerð bjóra getur haft góð áhrif á umhverfið. Til dæmis dregur hún úr uppblæstri, bætir vatnsgæði og hækkar grunnvatnsborð. Auk þess hætta ár og lækir oft að þorna upp á sumrin. Stíflurnar draga líka úr flóðum með því að mynda votlendi sem draga í sig vatn í miklum rigningum. Þessi votlendi geta jafnvel stöðvað gróðurelda og gróðurinn sem þar er getur haldið velli þrátt fyrir elda allt í kring. Votlendið sem stíflurnar mynda dregur líka að sér fjölda dýra.
Ein rannsókn leiddi í ljós að „stíflur bjóra séu ekki ólíkar stíflum sem verkfræðingar hanna“. Vísindamenn hafa gert margar stíflur í Norður-Ameríku að fyrirmynd bjóra. Það er ekki að ástæðulausu að bjórar eru oft kallaðir verkfræðingar vistkerfisins.
Sjáðu bjór að verki.
Hvað heldur þú? Þróaðist færni bjórsins í stíflugerð? Eða býr hönnun að baki?