Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwex grein 33
  • Almenningssími fyrir biblíunámskeið

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Almenningssími fyrir biblíunámskeið
  • Reynslusögur af vottum Jehóva
  • Svipað efni
  • Árangursrík símaboðun
    Ríkisþjónusta okkar – 2001
  • Spurningakassinn
    Ríkisþjónusta okkar – 2013
  • Spurningakassinn
    Ríkisþjónusta okkar – 1996
  • Að hefja biblíunámskeið við dyrnar eða í síma
    Ríkisþjónusta okkar – 2005
Sjá meira
Reynslusögur af vottum Jehóva
ijwex grein 33
Ungur maður notar almenningssíma til að kynna sér Biblíuna.

Almenningssími fyrir biblíunámskeið

Daiane er vottur Jehóva í fullu starfi og hún býr í Brasilíu. Dag nokkurn þegar hún tók þátt í símastarfinu talaði hún við ung hjón sem sýndu boðskapnum áhuga. Þau sögðu Daiane að þau myndu flytja í einangrað þorp þar sem hvorki væri rafmagn né nettenging og enginn vottur Jehóva bjó á staðnum. Hjónin gáfu henni símanúmer almenningssíma í þorpinu svo að þau gætu haldið umræðunum áfram. Þau ákváðu dag og stund til að tala saman.

Daiane hringdi á umsömdum tíma og hjónin svöruðu. Næstu tvær vikurnar áttu þau þrjú samtöl við Daiane um Biblíuna.

En síðan hættu hjónin að svara símtölum hennar. Daiane hélt þó ótrauð áfram að hringja í þennan almenningssíma og gerði það þrisvar í viku. Hún ræddi um Biblíuna við hvern þann sem svaraði. Árangurinn var sá að Daiane gat hafið nokkur biblíunámskeið með fólki í þorpinu.

Dag nokkurn meðan Daiane og eiginmaður hennar stjórnuðu biblíunámskeiði með ungum manni í símanum bar þar að klerk í þorpinu sem heyrði samræðurnar. Hann stóð við hlið biblíunemandans til að geta heyrt það sem fram fór. Síðan bað hann um að fá að tala við Daiane og manninn hennar. Hann hafði svo mikla ánægju af því sem hann heyrði að hann óskaði líka eftir að fá biblíunámskeið.

Þegar fram liðu stundir voru Daiane og maðurinn hennar komin með sex símabiblíunámskeið í þessu einangraða þorpi og meðal nemendanna var klerkurinn. Sumir nemendanna hafa þegar hlustað á samkomur með því að tengjast þeim í gegnum þennan sama síma. Einn nemendanna smíðaði meira að segja bekk svo að nemendurnir gætu fengið sér sæti meðan á náminu stæði.

Daiane og maðurinn hennar eru þakklát fyrir tækifærið sem þau hafa haft til að kynna boðskapinn um ríkið í þessu afskekta þorpi. Daiane segir: „Jehóva getur séð til þess að fagnaðarboðskapurinn nái til allra, jafnvel þeirra sem búa á einangruðum stöðum.“

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila