Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w25 nóvember bls. 30
  • Hjálp handa konum sem hefur verið misþyrmt

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hjálp handa konum sem hefur verið misþyrmt
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Svipað efni
  • Öryggi kvenna – sjónarmið Biblíunnar
    Fleiri viðfangsefni
  • Notaðu jw.org í boðunarstarfinu – „Vertu vinur Jehóva“
    Ríkisþjónusta okkar – 2015
  • ‚Konur sem leggja hart á sig fyrir Drottin‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1991
  • Prófaðu þetta
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2023
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
w25 nóvember bls. 30
Systir réttir konu prentað eintak af greininni „Öryggi kvenna – sjónarmið Biblíunnar“.

Hjálp handa konum sem hefur verið misþyrmt

„MILLJÓNIR stúlkna og kvenna um allan heim hafa sætt ofbeldi. Ert þú ein af þeim? Lestu um hvers vegna öryggi þitt skiptir Guð máli og hvernig hann ætlar að taka á illri meðferð á konum.“

Þannig hefst greinin „Öryggi kvenna – sjónarmið Biblíunnar“ á jw.org. Krækja í lok greinarinnar gefur manni færi á að sækja PDF-skjal af greininni sem er hægt að prenta út og brjóta saman í fjögurra blaðsíðna smárit. „Ég prentaði nokkur eintök og fór ásamt annarri systur með þau í athvarf fyrir konur á safnaðarsvæðinu,“ segir systir í Bandaríkjunum sem heitir Stacy.

Starfsmaður í athvarfinu bað um fleiri eintök til að láta þær fá sem búa þar. Meira en 40 smáritum var dreift auk 30 jw.org nafnspjalda. Síðar vildi umsjónarkona athvarfsins að vottarnir sýndu konunum sem bjuggu þar hvernig biblíunámskeið fer fram.

Stacy og tvær aðrar systur fóru í annað athvarf þar sem fimm smárit voru þegin og beðið var um fleiri. „Þetta rit mun koma konunum hér að gagni,“ sagði kona sem vann þar. Hún sagði: „Við þurfum á þessu að halda.“ Síðar söfnuðust nokkrar konur sem dvöldu í athvarfinu saman til að sjá hvernig biblíunámskeið fer fram og tvær þeirra sögðust vilja koma á samkomu í ríkissalnum um helgina.

Stacy segir: „Við erum undrandi á viðbrögðunum við greininni. Að prenta þessa góðu grein út og brjóta saman er frábær leið til að deila fagnaðarboðskapnum með konum sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Þessi góðu viðbrögð snertu hjörtu okkar og við bíðum spenntar eftir því að sjá hvernig Jehóva blessar viðleitni okkar til að ná enn frekar til þessara kvenna með fagnaðarboðskapinn.“

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila