23.–29. MARS
JESAJA 48, 49
Söngur 89 og bæn | Inngangsorð (1 mín.)
1. Njóttu góðs af því að hlusta á Jehóva
(10 mín.)
Jehóva kennir þjónum sínum. (Jes 48:17; lff kafli 35 liður 1; it-E „Teacher, Teaching“ gr. 2)
Við verðum að velja að hlusta á Jehóva. (Jes 48:18a; ijwbq grein 44 gr. 2, 3)
Þá verður friður okkar „eins og fljót“ og réttlæti okkar „eins og öldur hafsins“. (Jes 48:18b; lv 199 gr. 8)
SKILGREINING: Hebreska orðið sem er þýtt „friður“ getur falið í sér góða heilsu, öryggi, traust, velferð og vináttu.
2. Andlegir gimsteinar
(10 mín.)
Jes 49:8 – Á hvaða þrjá vegu rættist þessi spádómur? (it-E „Acceptable Time“ gr. 1–3; w98 1.12. 29 gr. 13–15)
Hvaða andlegu gimsteinum í biblíulestri vikunnar langar þig til að segja frá?
3. Biblíulestur
(4 mín.) Jes 48:9–20 (th þjálfunarliður 11)
4. Að hefja samræður
(3 mín.) TRÚIN BOÐUÐ ÓFORMLEGA. Bjóddu óvirkum ættingja á sérræðuna og minningarhátíðina. (lmd kafli 5 liður 3)
5. Eftirfylgni
(4 mín.) TRÚIN BOÐUÐ ÓFORMLEGA. Útskýrðu fyrir viðmælanda sem er að hugsa um að koma á minningarhátíðina hvernig hún fer fram. (lmd kafli 9 liður 3)
6. Eftirfylgni
(5 mín.) TRÚIN BOÐUÐ ÓFORMLEGA. Eftir að ræðunni á minningarhátíðinni lýkur skaltu svara spurningum gests sem sýnir áhuga. (lmd kafli 8 liður 3)
Söngur 107
7. Njóttu mikilvægasta dags ársins sem best
(15 mín.) Ræða með þátttöku áheyrenda.
Við sýnum þakklæti okkar fyrir lausnarfórnina sem er gjöf Jehóva með því að hlýða boði Jesú og vera viðstödd minningarhátíðina á hverju ári. (Lúk 22:19) Við þetta tækifæri erum við líka minnt á hversu mikið Jehóva og sonur hans elska okkur. (Ga 2:20; 1Jó 4:9, 10) Hvernig getum við haft sem mest gagn af þessari ráðstöfun Jehóva? Og hvernig getum við hjálpað áhugasömu fólki að njóta þess líka?
Undirbúðu þig á hverjum degi með því að fara yfir hluta af biblíulesefninu fyrir minningarhátíðina.
Veltu fyrir þér hvílík gjöf lausnarfórnin er og hvernig þú getur sýnt þakklæti fyrir hana með lífstefnu þinni.
Taktu þátt í boðunarátakinu með því að bjóða kunningjum, ættingjum og fólki á starfssvæðinu á sérræðuna og minningarhátíðina.
Bjóddu gesti velkomna á minningarhátíðina með brosi og vingjarnlegri kveðju. Sýndu boðsgestum þínum sérstaka athygli. Vertu vakandi fyrir því að hjálpa gestum sem fengu boðsmiða í boðunarátakinu og bjóddu þeim að sitja hjá þér.
Vertu tilbúinn að svara spurningum gesta.
Vertu vakandi fyrir því að taka vel á móti óvirkum boðberum. Öldungarnir verða sérstaklega vakandi fyrir því að taka vel á móti þeim sem voru áður fyrr vottar Jehóva.
Spilaðu MYNDBANDIÐ Jesús kom til að „leita að hinu týnda og frelsa það“. Spyrðu síðan áheyrendur:
Hvað lærðirðu um að taka hlýlega á móti óvirkum á minningarhátíðinni?
8. Safnaðarbiblíunám
(30 mín.) lfb sögur 72 og 73