Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • mwb22 nóvember bls. 11
  • Horfum til endaloka þessa heims fullviss um björgun

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Horfum til endaloka þessa heims fullviss um björgun
  • Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2022
  • Svipað efni
  • Verum trúföst þegar ,þrengingin mikla‘ gengur yfir
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2019
  • Ríki Guðs ryður óvinum sínum úr vegi
    Ríki Guðs stjórnar
  • Harmagedón er tilhlökkunarefni
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2019
  • Hvernig líður þessi heimur undir lok?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2012
Sjá meira
Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2022
mwb22 nóvember bls. 11
Bróðir les í bókinni „Pure Worship of Jehovah – Restored At Last“. Hann sér engil Jehóva fyrir sér vernda hóp af fólki Guðs í Harmagedon.

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Horfum til endaloka þessa heims fullviss um björgun

Innan skamms er þolinmæði Jehóva gagnvart þessum heimi á þrotum. Falstrúarbrögðum verður eytt, bandalag þjóða ræðst á fólk Guðs og Jehóva eyðir hinum illu í Harmagedón. Þjónar Guðs bíða þessara þýðingarmiklu atburða með eftirvæntingu.

Við vitum auðvitað ekki um öll smáatriði sem tengjast þrengingunni miklu. Við vitum ekki nákvæmlega hvenær hún hefst. Við vitum ekki hvaða ástæðu stjórnmálaöflin nota til að réttlæta árás á trúarbrögðin. Við vitum ekki hve lengi árás þjóðanna á fólk Guðs varir eða hvað hún felur í sér. Við vitum heldur ekki nákvæmlega hvaða aðferð Jehóva beitir til að eyða hinum illu í Harmagedón.

En í Biblíunni er að finna allar þær upplýsingar sem þarf til að takast á við framtíðina af hugrekki og trúartrausti. Við vitum til dæmis að við lifum við endalok ,síðustu daga‘. (2Tí 3:1) Við vitum að árásin á trúarbrögðin verður ,stytt‘ til að sannri trú verði ekki eytt. (Mt 24:22) Við vitum að Jehóva bjargar fólki sínu. (2Pé 2:9) Og við vitum líka að sá sem Jehóva hefur útvalið til að eyða hinum illu og bjarga múginum mikla í gegnum Harmagedón er réttlátur og máttugur. – Op 19:11, 15, 16.

Fólk mun verða „máttvana af ótta“ við atburðina sem eru framundan. En ef við lesum og hugleiðum hvernig Jehóva bjargaði fólki sínu til forna og það sem hann hefur opinberað í sambandi við framtíðina þá getum við ,rétt úr okkur og borið höfuðið hátt‘ fullviss um að björgun okkar sé skammt undan. – Lúk 21:26, 28.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila