FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | LÚKAS 6-7
Gefum af örlæti
Sá sem er örlátur gefur með gleði af tíma sínum, kröftum og því sem hann á, til að hjálpa öðrum og hvetja þá.
Gríska sagnorðið, sem er þýtt „gefið“, gefur til kynna áframhaldandi verknað.
Þegar við erum gjafmild munu aðrir gefa okkur þannig að ,góður mælir, troðinn, skekinn og fleytifullur verður lagður í skaut okkar‘. Þetta orðalag kann að vísa til venju sumra kaupmanna að fylla fellingu á yfirhöfn með því sem keypt var.