Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • mwb17 október bls. 7
  • Notaðu líf þitt til að Jehóva

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Notaðu líf þitt til að Jehóva
  • Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2017
  • Svipað efni
  • Lærum af dæmisögunni um talenturnar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
  • Uppgjör reikninga fyrir ávöxtun fjármuna Krists
    Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans
  • Finndu gleði í verkefnum þínum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2021
  • Hvað fær þig til að þjóna Guði?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
Sjá meira
Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2017
mwb17 október bls. 7

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Notaðu líf þitt til að lofa Jehóva

Lífið er dýrmæt gjöf. Það sést á því hvernig við lifum lífinu dags daglega hve mikils við metum það. Sem vottar Jehóva reynum við að nota hæfileika okkar og getu til að heiðra og lofa Jehóva, lífgjafann. (Slm 36:10; Opb 4:11) En áhyggjur daglegs lífs í þessum vonda heimi geta auðveldlega skyggt á þjónustu okkar við Guð. (Mrk 4:18, 19) Hver og einn ætti að spyrja sig: Geri ég mitt besta í þjónustu Jehóva? (Hós 14:3) Og hvaða áhrif hefur vinna mín eða starfsframi á stefnu mína í lífinu? Hvaða markmið hef ég sett mér í þjónustu Jehóva og gæti ég prófað fleiri svið þjónustunnar? Ef þú sérð að þú getur bætt þig skaltu biðja Jehóva um hjálp og gera síðan nauðsynlegar breytingar. Þú getur verið viss um að þú nýtur meiri lífsfyllingar og gleði þegar þú lofar Jehóva á hverjum degi. – Slm 61:9.

Edgardo Franco á sviði á tónleikum. Edgardo Franco boðar trúna.

Í þágu hvers notar þú hæfileika þína?

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ NÝTTU HÆFILEIKA ÞÍNA FYRIR JEHÓVA, OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvers vegna er óviturlegt að nota hæfileika sína fyrst og fremst í þágu heims Satans? (1Jóh 2:17)

  • Hvaða blessun hljóta þeir sem gera sitt besta í þjónustu Jehóva?

  • Á hvaða sviðum heilagrar þjónustu gætir þú nýtt hæfileika þína og kunnáttu?

HUGMYNDIR FYRIR TILBEIÐSLUSTUND FJÖLSKYLDUNNAR:

  • Biddu boðbera sem hefur þjónað Jehóva í mörg ár, ef til vill í fullu starfi, að segja frá þjónustu sinni. Hvaða fórnir hefur hann fært til að geta gert sitt besta fyrir Jehóva? Hvernig hefur Jehóva blessað hann?

  • Farðu á Sjónvarp Votta Jehóva og leitaðu undir VIÐTÖL OG FRÁSÖGUR. Þar greina margir frá þeirri gleði sem þeir hafa notið um ævina á mismunandi sviðum heilagrar þjónustu.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila