Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í mars og apríl: Tímaritin Varðturninn og Vaknið! Maí og júní: Hvað kennir Biblían? eða Viltu vita svörin?
◼ Minningarhátíðin verður haldin föstudaginn 3. apríl 2015. Flytja ætti þær safnaðarsamkomur, sem eru haldnar á föstudögum, yfir á annan dag vikunnar ef ríkissalurinn er laus. Ef fella þarf niður þjónustusamkomuna ætti umsjónarmaður öldungaráðs að breyta dagskránni þannig, að farið verði yfir efni sem nýtist söfnuðinum sérstaklega einhvern tíma seinna í mánuðinum.
◼ Vegna vorhreingerningar verður ekki hægt að fara í skoðunarferð um Betel í Holbæk föstudaginn 24. apríl 2015. Gott væri að setja tilkynninguna á tilkynningatöfluna eins fljótt og hægt er þar sem þegar hafa borist fyrirspurnir frá bræðrum sem ætla að skipuleggja rútuferðir til Holbæk.
◼ Það er ekki við hæfi að skilja blöðin okkar eftir í strætisvögnum, á biðstofum lækna, tannlækna eða sjúkrahúsa, í biðsölum almenningsfarartækja eða á flugstöðvum, í bönkum o.s.frv. Það þarf alltaf að biðja um leyfi hjá þeim sem hefur umsjón með viðkomandi svæði. Ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt skaðar það starf okkar og orðstír. – 1. Kor. 14:40; Hebr. 13:18.
◼ Þegar verið er að gera upp ríkissal að miklu leyti er óvíst að hægt sé að nota hann til að halda samkomur og samansafnanir í lengri eða skemmri tíma. Það er ekki rétt að láta bræður og systur fara á samkomur eða í samansafnanir í öðrum nærliggjandi söfnuðum á þessu tímabili. Söfnuðurinn ætti að koma saman í ríkissal í næsta nágrenni og halda áfram að skipuleggja og halda sínar eigin samkomur og samansafnanir eins og venjulega.