Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í janúar og febrúar: Annar eftirtalinna 32 blaðsíðna bæklinga: Gleðifréttir frá Guði eða Var lífið skapað? Mars og apríl: Tímaritin Varðturninn og Vaknið! Maí og júní: Hvað kennir Biblían? eða Viltu vita svörin?
◼ Opinberi fyrirlesturinn, sem farandhirðirinn flytur seinni hluta þjónustuársins 2015, ber heitið: „Heimurinn í núverandi mynd líður undir lok.“
◼ Ritari safnaðarins ætti að ganga úr skugga um að til sé undirritað boðberakort fyrir alla boðbera safnaðarins. Merkja ætti kortin „Eyðið ekki“. Þá þarf ekki að endurnýja kortin annað hvert ár. Ekki er leyfilegt að skrifa viðkvæmar persónuupplýsingar á kortin.
◼ Í mörgum söfnuðum okkar á svæði deildarskrifstofunnar í Skandinavíu er enn þá þörf fyrir boðbera, brautryðjendur, eldri boðbera sem eru fjárhagslega sjálfstæðir og fjölskyldur þar sem faðirinn er öldungur eða safnaðarþjónn. Allir sem eru fúsir til að taka á sig meiri ábyrgð geta haft samband við farandhirðinn sem getur sagt þeim hvar er þörf á farandsvæðinu. Ef einhver hefur áhuga á að starfa annars staðar ætti hann að skrifa starfsnefnd safnaðarins bréf með upplýsingum um sjálfan sig og hvað hann er tilbúinn að gera. Starfsnefndin sendir síðan bréfið áfram ásamt meðmælabréfi til deildarskrifstofunnar.