Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 27. október 2014.
Hvers vegna voru Ísraelsmenn vanþakklátir og létu undan freistingum rétt áður en þeir gengu inn í fyrirheitna landið og hvaða lærdóm getum við dregið af því? (4. Mós. 21:5) [1. sept., w10 15.11. bls. 27-28 gr. 17, 18]
Hvers vegna upptendraðist reiði Jehóva gegn Bíleam? (4. Mós. 22:20-22) [8. sept., w04 1.8. bls. 32 gr. 1]
Hvað lærum við af 4.Mós. 25:11 um hugarfar Pínehasar og hvernig getum við líkt eftir honum? [8. sept., w04 1.8. bls. 32 gr. 3]
Hvernig setti Móse þjónum Jehóva nú á dögum frábært fordæmi í auðmýkt? (4. Mós. 27:5, 15-18) [15. sept., w13 mars-apríl bls. 5]
Hvernig voru Jósúa og Kaleb gott dæmi um að ófullkomnir menn geta fylgt Jehóva heils hugar þrátt fyrir andstöðu? (4. Mós. 32:12) [22. sept., w94 1.5. bls. 25 gr. 13]
Hvernig getur hlýðni dætra Selofhaðs haft áhrif á viðhorf einhleypra votta til hjónabands? (4. Mós. 36:10-12) [29. sept., w08 15.2. bls. 4-5 gr. 9-10]
Ísraelsmenn kvörtuðu og mögluðu. Hver var afleiðingin fyrir þá og hvað getum við lært af frásögunni? (5. Mós. 1:26-28, 34, 35) [6. okt., w13 15.8. bls. 11 gr. 7]
Hvaða tvíþættu ábyrgð minnti Móse Ísraelsmenn á svo að þeir gætu hlotið blessun Jehóva og dafnað í fyrirheitna landinu? (5. Mós. 4:9) [13. okt., w06 1.8. bls. 21 gr. 15]
Hvers vegna slitnuðu föt Ísraelsmanna ekki og hvers vegna þrútnuðu fætur þeirra ekki á eyðimerkurgöngunni? (5. Mós. 8:3, 4) [20. okt., w04 1.10. bls. 20 gr. 1]
Hvernig getum við tekið til okkar hvatninguna sem Ísraelsmenn fengu um að ,halda sér fast við‘ Jehóva? (5. Mós. 13:5, 7-10) [27. okt., w02 1.11. bls. 15-16 gr. 14]