Fréttir af boðunarstarfinu
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að 77.409 voru viðstaddir minningarhátíðina á umsjónarsvæði deildarskrifstofunnar sem er yfir 1 prósent fleiri en í fyrra. Í Noregi mættu alls 18.150 en það er nýtt met. Í Danmörku voru 21.814 viðstaddir, eða 151 færri en 2013, og í Svíþjóð 36.270 sem er 542 fleiri en árið áður. Í Færeyjum voru 197 viðstaddir, á Grænlandi 308 og á Íslandi 670. Á öllum þremur stöðunum var aukning. Jehóva hefur blessað viðleitni okkar að bjóða fólki á þessa mikilvægu hátíð, en þar vorum við sérstaklega minnt á kærleika Jehóva og Jesú Krists. – Jóh. 3:16; 15:13.