Fréttir af boðunarstarfinu
Starfsskýrslan frá nóvember sýnir að Jehóva hefur blessað boðunina og dreifingu Guðsríkisfrétta nr. 38. Dreift var 1,8 milljónum eintaka. Það svarar til þess að hver einasti boðberi hafi dreift að meðaltali næstum 40 eintökum. Boðberum fjölgaði um 1 prósent í Danmörku, á Íslandi og í Svíþjóð. Í Noregi var aukning 2 prósent og í Færeyjum 6 prósent. Boðberar voru alls 48.580, aðstoðarbrautryðjendur 2.917 og auk þess 3.921 brautryðjandi. Á Íslandi tóku um 25 prósent allra boðbera þátt í fullu starfi á einhverju sviði. Þar voru boðberar 376 og héldu 305 biblíunámskeið. Það væri hægt að nefna fleiri uppörvandi tölur úr skýrslunni en þessir fáeinu hápunktar vitna um að við höfum gert eins og hvatt er til í Prédikaranum 11:1: „Varpaðu brauði þínu út á vatnið. Þegar margir dagar eru liðnir muntu finna það aftur.“