Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í apríl: Tímaritin Varðturninn og Vaknið! Maí og júní: Hvað kennir Biblían? eða eitthvert eftirtalinna smárita: Hvernig lítur þú á Biblíuna?, Hvernig heldurðu að framtíðin verði?, Hvað gerir fjölskyldulífið hamingjuríkt?, Hver stjórnar heiminum? eða Taka þjáningar einhvern tíma enda? Júlí: Annar hvor eftirtalinna 32 síðna bæklinga: Gleðifréttir frá Guði eða Hlustaðu á Guð og lifðu að eilífu.
◼ Breytingar ætti að gera á samkomudagsskránni í vikunni fyrir umdæmismótið svo hægt sé að fara yfir viðaukann úr þessari Ríkisþjónustu „Til minnis vegna umdæmismótsins“ og bréfið sem barst til allra safnaða dagsett 3. ágúst 2013. Þar var fjallað um öryggismál á mótum og samkomum. Einum eða tveimur mánuðum eftir umdæmismótið ætti að nota staðbundnar þarfir til að ræða um atriði af mótinu sem hafa hjálpað boðberum í boðunarstarfinu.