Fréttir af boðunarstarfinu
Nú er ársskýrslan tilbúin og mikið starf var unnið á síðastliðnu þjónustuári. Tala boðbera í Skandinavíu var 48.812 þegar mest var. Í Danmörku varð vöxturinn eitt prósent, í Færeyjum fjögur, á Íslandi fjögur og í Noregi tvö prósent. Samanlagt voru starfandi 3.535 brautryðjendur í Skandinavíu og er það 8,7 prósent aukning. Haldin voru 21.435 biblíunámskeið og er það aukning upp á 5,2 prósent. Gestir á minningarhátíðina voru alls 76.541 talsins og 800 manns létu skírast á síðasta þjónustuári. 255 nýir brautryðjendur hófu störf í Svíþjóð á þjónustuárinu. Í Noregi og Svíþjóð er nú skráð að meðaltali um eitt biblíunámskeið á hverja tvo boðbera. Nýtt boðberahámark var tilkynnt í Noregi í ágúst en þá voru þar 11.338 boðberar.