Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í desember: Hvað kennir Biblían? Janúar og febrúar: Gleðifréttir frá Guði eða einn eftirtalinna 32 síðna bæklinga: Var lífið skapað?, Biblían – hver er boðskapur hennar?, Haltu vöku þinni! Mars: Tímaritin Varðturninn og Vaknið!
◼ Minningarhátíðin 2015 verður haldin föstudaginn 3. apríl 2015.
◼ Margir fara í boðunarstarfið á þeim stöðum sem þeir heimsækja í sumarfríinu. Það er hrósvert og oft skemmtileg lífsreynsla. Maður tengist líka alheims söfnuði Jehóva enn betur. En það er mikilvægt að gefa sérstakar gætur að klæðnaði sínum og útliti. Við þjónum Jehóva og erum fulltrúar hans. Þess vegna getur útlit okkar og klæðnaður haft áhrif á viðhorf annarra til tilbeiðslunnar á Jehóva. Slæmt fordæmi getur haft neikvæð áhrif á trúsystkini okkar. Látum klæðnað okkar og útlit bera vitni um hógværð, virðingu og tillitsemi við aðra. – Míka 6:8; 1 Kor. 10:31-33; 1 Tím. 2:9, 10.