Fréttir af boðunarstarfinu
Þjónustuárinu 2012 lauk með góðum ágústmánuði. Alls störfuðu 377 boðberar en það er nýtt met á Íslandi. Dreift var 5.937 blöðum en það er meira en eitt blað á klukkutíma. Þar að auki var dreift 149 bókum og 409 bæklingum. Sjö létu skírast á árinu sem leið. Það er mjög hvetjandi að svona margir skuli þiggja boðið um að fá kennslu frá Jehóva. – Míka 4:2.