Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í október: Varðturninn og Vaknið! Nóvember: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, Vottar Jehóva – Hverjir eru þeir? Hverju trúa þeir? og Ættum við að trúa á þrenninguna? Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Janúar: Hvað kennir Biblían? og Lífið – varð það til við þróun eða sköpun?
◼ Í grein í Ríkisþjónustunni í maí, sem fjallaði um S-43-eyðublaðið, stóð eftirfarandi: „Þegar við hittum heyrnarlausa ættum við ávallt að fylla út S-43-eyðublaðið, óháð því hvort viðkomandi sýndi áhuga.“ Þetta er ekki rétt. Við notum S-43-eyðublaðið aðeins þegar viðkomandi óskar eftir að fá heimsókn aftur. Það á við hvort sem um er að ræða einhvern sem talar annað tungumál eða er heyrnarlaus.
◼ Þar sem fimm heilar helgar eru í október væri það tilvalinn mánuður fyrir aðstoðarbrautryðjandastarf.
◼ Það er ekki við hæfi að skilja blöðin okkar eftir í strætisvögnum, á biðstofum lækna, sjúkrahúsa eða tannlækna, í biðsölum almenningsfarartækja eða á flugstöðvum, í bönkum o.s.frv. Það þarf alltaf að biðja um leyfi hjá þeim sem hefur umsjón með viðkomandi svæði. Ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt skaðar það starf okkar og orðstír. – 1. Kor. 14:40; Hebr. 13:18.
◼ Hægt er að fá skoðunarferð um Betel í Holbæk mánudaga til föstudaga kl. 9:00 og 10:30 og einnig kl. 13:30 og 15:00 allar vikur ársins. Ef um stóran hóp er að ræða viljum við biðja ykkur að hafa samband við Betel símleiðis og ákveða hvenær best sé að koma í heimsókn.
◼ Ef þið þurfið að senda tölvupóst til deildarskrifstofunnar skuluð þið nota netfangið jv@dk.jw.org.