Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 27. júní 2011. Umsjónarmaður skólans stjórnar 20 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 2. maí til 27. júní 2011.
1. Hvað getum við lært af því að Jehóva skyldi segja Job að biðja fyrir þeim sem höfðu sært hann? (Job. 42:8) [w06 1.10. bls. 20 gr. 13; w02 1.3. bls. 16 gr. 16]
2. Hvaða,réttu fórnir‘ færa kristnir menn á okkur dögum? (Sálm. 4:6) [w06 1.5. bls. 19 gr. 10]
3. Hvernig var Davíð áminntur hið innra? (Sálm. 16:7) [w05 1.2. bls. 23 gr. 9]
4. Hvernig segja himnarnir frá dýrð Guðs? (Sálm. 19:2) [w04 1.11. bls. 20 gr. 8]
5. Hvernig bendir Sálmur 27:14 á sambandið milli vonar og hugrekkis? [br4 bls. 21, 22 gr. 3, 6]
6. Hvaða áhrif ætti Sálmur 37:21 að hafa á samskipti okkar við trúbræður? [w89 1.3. bls. 29 gr. 8]
7. Hvað getum við lært um þakklæti af Levíta nokkrum sem var í útlegð? (Sálm. 42:2-4) [w06 1.7. bls. 9 gr. 3]
8. Hvernig getum við lært að elska hið góða og hata hið ranga? (Sálm. 45:8) [cf bls. 58-59 gr. 8-10]
9. Hvað á Davíð við þegar hann biður Jehóva að gefa sér „fúsleiks anda“? (Sálm. 51:14) [w06 1.7. bls. 9 gr. 10]
10. Hvernig getum við verið eins og olíutré í húsi Guðs? (Sálm. 52:10) [w06 1.7. bls. 11 gr. 2; w09 15.10. bls. 26 gr. 3, 4]