Tilkynningar
◼ Ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? September: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið í fyrstu heimsókn. Október: Varðturninn og Vaknið! Sýnið smáritið Viltu vita svörin? þar sem áhuga er að finna, ræðið efni þess og reynið að hefja biblíunámskeið. Nóvember: Biblían — hver er boðskapur hennar?
◼ Á þjónustusamkomunni í vikunni fyrir landsmótið „Varðveitum náið samband við Jehóva“ mætti rifja upp hvað þarf að hafa í huga þegar við erum viðstödd mótið. Einum eða tveimur mánuðum eftir landsmótið væri hægt að nota staðbundnar þarfir til að rifja upp atriði frá mótinu sem hafa reynst boðberum vel í boðunarstarfinu.
◼ Það var einkar ánægjulegt að sjá að 703 sóttu minningarhátíðina í mars en það er mesta aðsókn nokkurn tíma hér á landi.
◼ Næsti opinberi fyrirlestur farandhirðis eftir 1. september heitir: „Snúðu augum þínum frá hégóma“.