Spurningakassinn
◼ Af hverju er þörf á góðri dómgreind áður en leyfi er gefið til að hlusta á safnaðarsamkomur í gegnum síma?
Í mörgum söfnuðum hafa verið gerðar ráðstafanir svo að einstaklingar, sem komast stundum ekki á samkomur í ríkissalnum vegna veikinda eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum, geti hlustað á samkomuna heima hjá sér í gegnum síma. Þörf er á góðri dómgreind og skipulagningu til að ganga úr skugga um að þeir einir nýti sér þetta sem þurfa virkilega á því að halda. Þeir öldungar, sem hafa umsjón með þessu, vilja því skipuleggja og fylgjast með hvernig þetta er notað til þess að „allt fari sómasamlega fram og með reglu“. — 1. Kor. 14:40.
Öldungar sjá til þess að láta þá boðbera ganga fyrir sem glíma við langvinn veikindi eða heilsuleysi eða eiga ekki heimangengt. Boðberi, sem er veikur um tíma eða ófær um að mæta, eða framsækinn biblíunemandi, sem á ekki heimangengt, gætu einnig notið góðs af þessari ráðstöfun og eru þá taldir með viðstöddum. Ef símalínur eru ekki nægilega margar til að allir, sem hafa virkilega þörf á, geti tengst samkomunni væri ef til vill hægt að grípa til annarra ráða, eins og að láta þá fá upptöku af dagskránni.
Auðvitað jafnast ekkert á við þá blessun sem við hljótum með því að vera sjálf viðstödd samkomurnar í ríkissalnum. Samvera okkar með bræðrum og systrum leiðir til þess að „við getum uppörvast saman“ og hjálpar áhugasömum að skilja betur af hverju það er svona mikilvægt að mæta. Þegar við komum í ríkissalinn fáum við miklu meira út úr sýnidæmum, öldungarnir geta veitt okkur persónulega aðstoð og við finnum fyrir hlýju bræðrafélagsins. Eldri systir hitti naglann á höfuðið þegar hún sagði eftir að hafa fengið faðmlag á leiðinni út úr ríkissalnum: „Það er ekki hægt að fá þetta í gegnum síma!“ — Rómv. 1:11, 12.
Mörg eldri trúsystkina okkar mæta reglulega á samkomurnar eftir því sem heilsan og aðstæður leyfa líkt og Anna sem „vék eigi úr helgidóminum“. (Lúk. 2:36, 37) Þótt þau tengist samkomunum símleiðis þegar þörf krefur, líta þau ekki á það sem þægilegan kost sem kemur í stað þess að sækja samkomur í ríkissalnum. Líkjum eftir góðu fordæmi þeirra og höfum yndi af því að vera viðstödd samkomurnar þar sem við tilbiðjum hinn mikla Guð, Jehóva. — Sálm. 95:1-3, 6; 122:1.