Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 26. október 2009.
1. Þar sem Jehóva sagði Bíleam að fara með mönnum Balaks, hvers vegna reiddist Jehóva þá Bíleam þegar hann fór með þeim? (4. Mós. 22:20-22) [w04 1.8. bls. 32 gr. 1]
2. Hvernig hjálpar fordæmi Pínehasar okkur þegar við hugsum um okkar eigið samband og hollustu við Jehóva? (4. Mós. 25:11) [w95 1.8. bls. 29 gr. 13]
3. Hvers vegna var Jósúa valinn sem eftirmaður Móse? (4. Mós. 27:15-19) [wE02 1.12. bls. 12 gr. 1]
4. Hvernig getur 4. Mósebók 31:27 verið uppörvandi fyrir kristna menn nú á dögum? [w05 1.4. bls. 32]
5. Hvernig var fyrirkomulagið með griðaborgir til góðs fyrir Ísraelsmenn? (4. Mós. 35:11, 12) [br-3 bls. 12 gr. 17]
6. Af hverju er mikilvægt fyrir kristinn mann að vera skynsamur og hvernig birtist þessi eiginleiki? (5. Mós. 1:13, Biblían 1981) [wE03 15.1. 30; wE00 1.10. bls. 32 gr. 1-3]
7. Á hvaða hátt endurspeglar lögmál Móse réttlæti Guðs? (5. Mós. 4:8) [w02 1.7. bls. 24 gr. 8–10]
8. Útskýrðu hvernig er rétt og hvernig er rangt að reyna Jehóva samkvæmt 5. Mósebók 6:16-18. [w04 1.10. bls. 21 gr. 1]
9. Hvernig höfðu orð Jehóva nært Ísraelsmenn og hvernig geta þau nært okkur? (5. Mós. 8:3) [wE99 15.8. bls. 25-26]
10. Hvernig hefur 5. Mósebók 12:16, 24 áhrif á það hvernig við lítum á læknisfræðilegar aðferðir sem byggjast á því að nota okkar eigið blóð? [wE00 15.10. bls. 30 gr. 7]