Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í október: Varðturninn og Vaknið! Sýnið smáritið Viltu vita svörin? þar sem áhuga er að finna og ræðið efni þess. Ef húsráðandi á það fyrir ætti að reyna að hefja biblíunámskeið. Nóvember: Hvað kennir Biblían? Ef húsráðandi á bókina fyrir má bjóða bækurnar Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Ef húsráðandi á börn má bjóða Lærum af kennaranum mikla. Janúar: Hvað kennir Biblían? Ef húsráðandi á bókina fyrir má bjóða bækurnar Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans.
◼ Dagskrá Boðunarskólans verður ekki lengur birt einu sinni á ári sem viðauki í Ríkisþjónustunni. Þess í stað verða tvö eintök af dagskránni send söfnuðunum. Annað eintakið verður sett á tilkynningatöfluna en skólahirðirinn fær hitt til að nota þegar hann úthlutar verkefnum. Dagskrá Boðunarskólans verður áfram birt í Ríkisþjónustunni, sem boðberar fá í hverjum mánuði, ásamt dagskránni fyrir safnaðarbiblíunámið og þjónustusamkomuna.
◼ Byrjað verður að fara yfir bókina „Komið og fylgið mér“ í safnaðarbiblíunáminu í vikunni sem hefst 1. mars 2010. Þess skal gætt að nægar birgðir séu til af bókinni í söfnuðunum.