Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 9.09 bls. 3
  • Leitum að þeim sem eru verðugir

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Leitum að þeim sem eru verðugir
  • Ríkisþjónusta okkar – 2009
  • Svipað efni
  • Ert þú með einkastarfssvæði?
    Ríkisþjónusta okkar – 2006
  • Hvers vegna ættirðu að hafa eigið starfssvæði?
    Ríkisþjónusta okkar – 2013
  • Leitaðu að verðugum
    Ríkisþjónusta okkar – 2003
  • Að starfa á viðskiptasvæði
    Ríkisþjónusta okkar – 2004
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2009
km 9.09 bls. 3

Leitum að þeim sem eru verðugir

1. Hvernig sýnum við þakklæti fyrir að fá að prédika fagnaðarerindið?

1 Þegar Jesús prédikaði lagði hann mikið á sig til þess að færa hinum auðmjúku gleðilegan boðskap. (Jes. 61:1, 2) Sem sendiboðar Krists eða fulltrúar hans höfum við dýrmætt tækifæri til að líkja eftir honum þegar við leitum án afláts að verðugu fólki á svæðinu. — Matt. 10:11; 2. Kor. 5:20.

2. Hvernig var Páll sveigjanlegur og með hvaða árangri?

2 Verum sveigjanleg: Páll postuli var vanur að byrja á því að fara í samkunduhús og prédika fyrir Gyðingum og trúskiptingum. (Post. 14:1) Þegar hann og Sílas voru í Filippí leituðu þeir að fólki þar sem ‚þeir hugðu að væri bænastaður‘. Þeir vitnuðu fyrir hópi af konum og ein þeirra, Lýdía, tók fljótt við sannleikanum. — Post. 16:12-15.

3. Hvernig getum við sinnt boðunarstarfinu á fjölbreyttari hátt en að fara hús úr húsi?

3 Gætir þú, auk þess að fara hús úr húsi, prédikað fyrir fólki á öðrum vettvangi? Til dæmis á umferðarmiðstöðvum, ráðningarskrifstofum, fjölförnum götuhornum, í fyrirtækjum, almenningsgörðum eða verslunarmiðstöðvum á þínu svæði? Kannski getur þú vitnað fyrir þeim sem búa í óaðgengilegum hverfum eða íbúðum með því að skrifa þeim bréf eða hringja. Með því að vera athugull og sveigjanlegur fyrir breytilegum aðstæðum á starfssvæðinu getur þú verið ‚síauðugur í verki Drottins‘.— 1. Kor. 15:58.

4. Hvað getum við gert ef söfnuður okkar hefur takmarkað starfssvæði?

4 Margir boðberar hafa haft tækifæri til að auka við þjónustu sína með því að flytja til annars safnaðar annað hvort í eigin landi eða erlendis. Aðrir hafa lært nýtt tungumál til að prédika fyrir útlendingum.

5. Hvernig ættum við að líta á þann tíma sem við lifum á og hvað ættum við að vera staðráðin í að gera?

5 Við verðum öll að hafa í huga að „akurinn er heimurinn“. (Matt. 9:37; 13:38) Í ljósi þess hversu stutt er í endi þessa illa heimskerfis, verður hver og einn að hugleiða alvarlega aðstæður sínar, hæfileika, tækifæri og möguleika til að gera betur í þjónustunni. Jehóva fullvissar okkur um að ef við setjum hagsmuni Guðsríkis í fyrsta sæti mun hann blessa einlæga viðleitni okkar til að auka við þjónustuna. — Matt. 6:33.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila