Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? September: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið. Ef húsráðandi á bókina má sýna hvernig hún getur gagnast honum með því að kynna stuttlega hvernig biblíunámskeið fer fram. Október: Varðturninn og Vaknið! Sýnið smáritið Viltu vita svörin? þar sem áhuga er að finna og ræðið innihald þess. Ef húsráðandi á það fyrir ætti að reyna að stofna biblíunámskeið. Nóvember: Hvað kennir Biblían? Ef húsráðandi á bókina fyrir má bjóða bækurnar Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans.
◼ Söfnuðir geta pantað með næstu ritapöntun innbundna árganga á erlendum tungumálum af Varðturninum og Vaknið! fyrir árið 2009, svo og Watchtower Library fyrir árið 2009 og árbókina fyrir árið 2010. Listi með tungumálum, sem ritin eru fáanleg á, verður birtur í bréfinu „Tilkynning til allra safnaða“ sem er sent út reglulega. Pantanir á þessum ritum eiga að berast deildarskrifstofunni í síðasta lagi með ritapöntuninni í október.
◼ Í apríl voru 348 virkir boðberar á landinu en það er nýtt boðberamet. Samanlagt störfuðu boðberar 7.009 tíma í þessum mánuði en einnig það er met. Þá var ánægjulegt að sjá að 625 sóttu minningarhátíðina en það er mesta aðsókn nokkurn tíma hér á landi.