Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í júlí og ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? September: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið. Ef húsráðandi á bókina má sýna hvernig hún getur gagnast honum með því að kynna stuttlega hvernig biblíunámskeið fer fram. Október: Varðturninn og Vaknið! Sýnið smáritið Viltu vita svörin? þar sem áhuga er að finna og ræðið innihald þess. Ef húsráðandi á það fyrir ætti að reyna að stofna biblíunámskeið.
◼ Á þjónustusamkomunni í vikunni fyrir landsmótið „Höldum vöku okkar“ mætti rifja upp hvað þarf að hafa í huga þegar við erum viðstödd mótið. Einum eða tveimur mánuðum eftir landsmótið væri hægt að nota staðbundnar þarfir til að rifja upp atriði frá mótinu sem hafa reynst boðberum vel í boðunarstarfinu.
◼ Þar sem fimm heilar helgar eru í ágúst væri það tilvalinn mánuður fyrir aðstoðarbrautryðjandastarf.