Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.09 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2009
Ríkisþjónusta okkar – 2009
km 4.09 bls. 7

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í apríl og maí: Varðturninn og Vaknið! Heimsækið aftur þá sem sýnt hafa áhuga, til dæmis þá sem voru viðstaddir minningarhátíðina eða sérræðuna en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu, og bjóðið Hvað kennir Biblían? Markmiðið ætti að vera að hefja biblíunámskeið hjá þeim sem hafa ekki þegar þegið það. Júní: Hvað kennir Biblían? Ef húsráðandi á þá bók fyrir má bjóða bækurnar Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Júlí: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna?

◼ Átak verður gert um allan heim til að auglýsa alþjóða- og umdæmismótin 2009. Boðberum gefst tækifæri til að dreifa sérstökum boðsmiðum á safnaðarsvæðinu. Herferðin hefst þremur vikum fyrir umdæmismót safnaðarins.

◼ Barmmerki fyrir landsmótið verða send til safnaðanna án þess að sérstaklega þurfi að panta þau. Þeir sem sækja alþjóðmót nota sömu barmmerki. Plasthulstur þarf að panta sérstaklega fyrir þá safnaðarmenn sem óska þess.

◼ Framvegis verður dagskránni í Ríkisþjónustunni ekki breytt í vikunni fyrir umdæmismót, svæðismót eða sérstakan mótsdag þó að engin samkoma sé. Umsjónarmaður öldungaráðsins getur gert nauðsynlegar breytingar á dagskránni fyrir og eftir mótsvikuna og tekið með dagskrárliði sem honum finnst skipta mestu máli fyrir söfnuðinn og sleppt öðrum. Bræður og systur eru hvött til að fara yfir efni safnaðarbiblíunámsins og Boðunarskólans í fjölskyldunáminu.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila