Upprifjun á efni boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 27. apríl 2009. Umsjónarmaður skólans stjórnar 20 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 2. mars til 27. apríl 2009. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
1. Hvernig brást Jósef við freistingu sem hann varð fyrir á hverjum degi? (1. Mós. 39:7-12) [lv bls. 105 gr. 18–bls. 106 gr. 20]
2. Hvernig er talað um afmælishald í Biblíunni? (1. Mós. 40:20-22) [lv bls. 150 gr. 9–bls. 151 gr. 11]
3. Hvernig er Jósef okkur afbragðsfordæmi í að fyrirgefa þeim sem hafa syndgað gegn okkur? (1. Mós. 45:4, 5) [wE99 1.1. bls. 31 gr. 2-3]
4. Hvaða áhrif höfðu þessi orð Jósefs: „Þið [skuluð] flytja bein mín héðan?“ (1. Mós. 50:25) [w07 1.7. bls. 18 gr. 10]
5. Hvað getur veitt okkur kjark þegar við fáum erfitt verkefni? (2. Mós. 4:10, 13) [w04 1.4. bls. 29 gr. 4]
6. Hvað sýndi Jehóva fram á í samskiptum sínum við faraó og hvaða áhrif ættu þessir atburðir að hafa á okkur? (2. Mós. 9:13-16) [w05 1.6. bls. 24 gr. 8]
7. Hvaða þýðingu hefur 2. Mósebók 14:30, 31 á okkar dögum? [w04 1.4. bls. 30 gr. 5]
8. Hvaða hættur fylgja því að kvarta, eins og sést af 2. Mósebók 16:1-3? [wE93 15.3. bls. 20 gr. 2–bls. 21 gr. 2]
9. Að hvaða leyti er hægt að segja að Ísrael hafi verið „konungsríki presta og heilög þjóð“ samkvæmt lagasáttmálanum í 2. Mósebók 19:5, 6? [w95 1.12. bls. 14 gr. 8]
10. Að hvaða leyti skarar tíunda boðorðið um ágirnd fram úr lögum manna? (2. Mós. 20:17) [w06 1.8. bls. 25 gr. 16]