Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í janúar: Hvað kennir Biblían? Ef húsráðandi á þá bók fyrir má bjóða bækurnar Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Febrúar: Er til skapari sem er annt um okkur? eða Farsælt fjölskyldulíf — hver er leyndardómurinn? Mars: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið. Apríl: Varðturninn og Vaknið! Heimsækið aftur þá sem sýnt hafa áhuga, til dæmis þá sem voru viðstaddir minningarhátíðina eða sérræðuna, en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu og bjóðið Hvað kennir Biblían? Markmiðið ætti að vera að hefja biblíunámskeið hjá þeim sem hafa ekki þegar þegið það.
◼ Næsti opinberi fyrirlestur farandhirðis, þegar hann heimsækir söfnuðina eftir 1. mars, ber heitið: „Höfnum draumórum heimsins og sækjumst eftir veruleikanum sem byggist á Guðsríki.“
◼ Söfnuðir ættu að gera ráðstafanir til að halda minningarhátíðina eftir sólsetur fimmtudaginn 9. apríl næstkomandi. Brauðið og vínið má ekki bera fram fyrr en sól er sest enda þótt hefja megi flutning ræðunnar fyrir þann tíma. Sólsetur er á Egilsstöðum kl. 20:18, á Akureyri kl. 20:34 og í Reykjavík kl. 20:44. Æskilegt er að hver söfnuður haldi minningarhátíðina út af fyrir sig. Á stöðum þar sem nokkrir söfnuðir nota sama ríkissal getur einn söfnuður eða fleiri orðið sér úti um annað húsnæði þetta kvöld. Þar sem því verður við komið ættu minnst 40 mínútur að líða á milli samkomna svo að hægt sé að eiga einhverja stund saman eftir minningarhátíðina.