Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 12.08 bls. 7
  • Upprifjun á efni boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2008
Ríkisþjónusta okkar – 2008
km 12.08 bls. 7

Upprifjun á efni boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 29. desember 2008. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 3. nóvember til 29. desember 2008. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐUR

1. Hvers vegna er það vænlegt til árangurs að áminna „vegna kærleika“? (Fílem. 9) [be bls. 266 gr. 1-3]

2. Hvernig getum við talið hug í aðra? [be bls. 268 gr. 4-bls. 269 gr. 2]

VERKEFNI NR. 1

3. Hvernig er bréf Páls til Títusar ‚gott og nytsamlegt‘ fyrir okkur? (Tít. 3:8) [si bls. 241 gr. 8]

4. Hvers vegna kom fyrra bréf Péturs á heppilegum tíma? [si bls. 251 gr. 1]

5. Hvaða áhrif ættu táknmyndirnar í Opinberunarbókinni að hafa á okkur? [si bls. 263 gr. 1]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

6. Hvers vegna kann Páll að hafa tengt það að vera ‚ekki rógberar‘ við það að vera „ekki heldur í ánauð ofdrykkjunnar“ í Títusarbréfinu 2:3? [w94 1.11. bls. 26 gr. 12]

7. Nú er sagt að Satan hafi „mátt dauðans“. Merkir það að hann geti orðið hverjum sem hann vill að bana? (Hebr. 2:14) [w08 15.10. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir bréfanna til Títusar, Fílemons og Hebreanna“]

8. Hver gerði nýja sáttmálann? (Hebr. 9:16) [w08 15.10. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir bréfanna til Títusar, Fílemons og Hebreanna“]

9. Hvað er fólgið í því að vera friðsamur og hvaða spurninga gætum við spurt okkur í því sambandi? (Jak. 3:17) [w08 15.3. bls. 24 gr. 18]

10. Hvað er átt við með orðunum „Guð er meiri en hjarta okkar“? (1. Jóh. 3:20) [w05 1.9. bls. 32 gr. 19]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila