Upprifjun á efni boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 27. október 2008. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 1. september til 27. október 2008. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐUR
1. Hvernig getum við fundið út af hverju fólk hefur vissar skoðanir? [be bls. 259 gr. 2, 3]
2. Hvernig getum við hjálpað fólki að losa sig við fordóma og hatur? [be bls. 260 gr. 2]
3. Hvernig getum við hjálpað biblíunemendum okkar að líta í eigin barm og taka framförum í trúnni? [be bls. 261 gr. 3]
4. Hvað ættum við að hafa í huga þegar við reynum að ná til hjartna áheyrenda okkar? [be bls. 262 gr. 4]
5. Af hverju þurfum við að gefa gaum að ræðutímanum þegar við erum með verkefni á safnaðarsamkomum? [be bls. 263 gr. 1, 3, rammi]
VERKEFNI NR. 1
6. Af hverju skrifaði Páll fyrra bréfið til Korintumanna? [si bls. 210 gr. 3]
7. Nefndu nokkrar ástæður þess að Páll skrifaði síðara bréfið til Korintumanna. [si bls. 214 gr. 1-2]
8. Hvernig ættu kristnir menn að líta á boðunarstarfið? [si bls. 216-217 gr. 18]
9. Hvernig getum við fengið velþóknun Guðs og verið trúsystkinum okkar til gleði eins og bræðurnir í Filippí? [si bls. 225 gr. 12]
10. Hvaða góðu áhrif höfðu Páll og félagar hans á söfnuðinn í Þessaloníku? [si bls. 231 gr. 13]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Hvað merkir það að „selja [óguðlegan] mann Satan á vald til tortímingar holdinu, til þess að andinn megi hólpinn verða“? (1. Kor. 5:5, Biblían 1981) [w08 15.7. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir Korintubréfanna“]
12. Páll nefnir „hvert sinn“ sem dauða Jesú sé minnst. Hve oft er það og hvað er átt við með „þangað til“? (1. Kor. 11:26) [w08 15.7. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir Korintubréfanna“]
13. Um hvaða sýn er talað í 2. Korintubréfi 12:2-4 og hver sá hana? [w05 1.1. bls. 8 gr. 4; bls. 9 gr. 9]
14. Af hverju sagði Páll að Móselögin hefðu verið „tyftari . . . þangað til Kristur kom“? (Gal. 3:24) [w08 apr.-jún. bls. 10-13]
15. Hvað á Páll við þegar hann biður þess að „andi yðar, sál og líkami varðveitist“? (1. Þess. 5:23) [w08 15.9. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir bréfanna til Þessaloníkumanna og Tímóteusar“]