Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 9.08 bls. 1
  • Bréf frá deildarskrifstofunni

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Bréf frá deildarskrifstofunni
  • Ríkisþjónusta okkar – 2008
  • Svipað efni
  • Bréf frá deildarskrifstofunni
    Ríkisþjónusta okkar – 2006
  • Hvaða starfsemi fer fram á deildarskrifstofum?
    Hverjir gera vilja Jehóva?
  • Hvaða þjálfun fá vottar Jehóva?
    Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Skólar í boði safnaðarins – sönnun þess að Jehóva elskar okkur
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2012
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2008
km 9.08 bls. 1

Bréf frá deildarskrifstofunni

Kæru boðberar.

Við eigum að baki gott ár í þjónustu Jehóva. Boðberum fjölgaði um 6 prósent á fyrstu níu mánuðum þjónustuársins eða jafn mikið og allt árið á undan. Í mars náðist nýtt boðberamet, 332, og voru þá liðin níu ár frá síðasta hámarki. Í febrúar voru haldin 295 biblíunámskeið og það er einnig nýtt met. Brautryðjendur og aðstoðarbrautryðjendur hafa aldrei verið fleiri en í mars og tvisvar var sett met í stundafjölda í boðunarstarfinu. Átak hefur verið gert til að prédika fyrir þeim sem ekki tala íslensku en búa á landinu. Í ríkissalnum í Reykjavík eru um þessar mundir haldnar samkomur á ensku og pólsku, auk íslensku.

Brautryðjendur eru nú 29 og hefur fjölgað jafnt og þétt á árinu. Ef taldir eru saman trúboðar, allir brautryðjendur og Betelítar þjónuðu rúmlega 60 manns að jafnaði í fullu starfi í hverjum mánuði fyrstu níu mánuði þjónustuársins.

Breytingin á útgáfu Varðturnsins var mikið fagnaðarefni því að nú fáum við allar námsgreinar á sama tíma og flest önnur tungumál í heiminum. Það var einnig ánægjulegt að fá í hendur tvær nýjar bækur á þjónustuárinu til að nota við sjálfsnám og kennslu, bækurnar Tilbiðjum hinn eina sanna Guð og „Látið kærleika Guðs varðveita ykkur“.

Það er bæn okkar að Jehóva haldi áfram að blessa viðleitni ykkar til að þjóna honum sem best.

Bræður ykkar,

Deildarskrifstofu Votta Jehóva á Íslandi

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila