Býr fjölskyldan sig undir að bjargast?
1 Uppfylltir spádómar Biblíunnar sanna að endalok þessa illa heimskerfis nálgast óðum. Við lifum nú á erfiðum tímum, mjög líkum tímunum fyrir flóðið. (Matt. 24:37-39) Nói lifði af eyðingu þessa forna heims af því að hann „gekk með Guði“. (1. Mós. 6:9) Nói hlýtur að hafa frætt fjölskyldu sína um vilja Jehóva þar sem hún bjargaðist einnig. Hvernig getum við líkt eftir Nóa og búið okkur sem fjölskylda undir að lifa af endalok þessa núverandi illa heimskerfis?
2 Boðberi réttlætisins: Nói var þrautseigur ‚boðberi réttlætisins‘ í ein 40 eða 50 ár. (2. Pét. 2:5) Nágrannar hafa eflaust gert gys að prédikun hans hvort sem þeir hafa verið undir áhrifum holdgaðra uppreisnarengla eða ekki. Boðunarstarfi okkar er oft tekið með sinnuleysi og haft að athlægi en það sannar að endalok þessa heimskerfis nálgast óðum. (2. Pét. 3:3, 4) En ólíkt fólkinu á dögum Nóa bregðast margir jákvætt við boðun okkar og „streyma“ inn í söfnuð Jehóva. (Jes. 2:2) Aðeins með því að gefast ekki upp munum við bæði ‚frelsa sjálf okkur og áheyrendur okkar‘. (1. Tím. 4:16) Það er því nauðsynlegt fyrir foreldra að kenna börnum sínum, bæði í orði og verki, hve mikilvægt boðunarstarfið er. — 2. Tím. 4:2.
3 Nói „gerði allt eins og Guð bauð honum“: Nói og fjölskylda hans lifðu af flóðið vegna þess að þau fóru í einu og öllu eftir fyrirmælum Jehóva. (1. Mós. 6:22) Það er einnig mikilvægt fyrir okkur að vera „hlýðin“ leiðbeiningum frá Biblíunni og hinum trúa þjóni. (2. Kor. 2:9) Þegar börn í fjölskyldu nokkurri voru orðin uppkomin minntust þau þess hvernig faðir þeirra notaði ráðleggingar sem hann fékk frá söfnuði Jehóva. Til dæmis stjórnaði hann fjölskyldunámi í hverri viku og fór með fjölskylduna í boðunarstarfið um hverja helgi eins og mælt var með. Hann reyndi að taka með sér eitt af börnunum í boðunarstarfið í hverri viku. Það hafði mikil áhrif á börnin hans sex hvað hann var staðfastur að „gera allt eins og Guð bauð“ og þau urðu öll dyggir þjónar Jehóva.
4 Endalok þessa heimskerfis koma skyndilega. (Lúk. 12:40) Með því að líkja eftir Nóa og sýna trú sem leiðir til hjálpræðis verðum við og fjölskyldur okkar örugglega viðbúin! — Hebr. 11:7.