Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.08 bls. 3
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2008
Ríkisþjónusta okkar – 2008
km 5.08 bls. 3

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í maí: Varðturninn og Vaknið! Heimsækið aftur þá sem sýnt hafa áhuga, til dæmis þá sem voru viðstaddir minningarhátíðina eða sérræðuna, en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu. Markmiðið ætti að vera að hefja biblíunámskeið hjá þeim sem hafa ekki þegar þegið það. Júní: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið. Júlí og ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru?, Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna?

◼ Í samræmi við leiðbeiningarnar í greininni „Ert þú viðbúinn náttúruhamförum?“ í Ríkisþjónustunni í janúar 2007 ættu bóknámsumsjónarmenn að ganga úr skugga um að þeir hafi heimilisfang og símanúmer allra boðbera í bóknámshópnum. Og jafnvel þótt ekki sé um neyðartilvik að ræða væri gagnlegt fyrir bóknámsumsjónarmanninn ef boðberar létu hann vita að þeir verði fjarverandi í lengri tíma eins og til dæmis vegna sumarleyfa, ef þeir fara í viðskiptaferðir, leggjast inn á sjúkrahús o.þ.h.

◼ Farið verður yfir bókina Tilbiðjum hinn eina sanna Guð í safnaðarbóknáminu að lokinni yfirferð yfir Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Námsskrá verður birt síðar.

◼ Frá og með 1. maí 2008 er vitnað í Biblíuna 2007 í ritum okkar nema annað sé tekið fram.

◼ Vinsamlegast athugið að ekki verða prentaðir boðsmiðar til að auglýsa landsmótið 2008. Þó er í bígerð sérstakt átak sem verður hrundið af stað um allan heim innan skamms. Nánari upplýsingar verða veittar síðar.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila