Upprifjun á efni boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 25. febrúar 2008. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 7. janúar til 25. febrúar 2008. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐUR
1. Hvað þurfum við að gera til að áheyrendur okkar skilji ritningarstaði og af hverju ættum við að gera það? [be bls. 228 gr. 1-2]
2. Af hverju er mikilvægt að við gerum inngangsorðin fræðandi fyrir áheyrendur og hvernig er hægt að gera það? [be bls. 230 gr. 3-5, rammi]
3. Hvernig getum við gert ræður okkar fróðlegri með því að rannsaka efnið fyrirfram? [be bls. 231 gr. 1-3]
4. Hvað getum við gert til að gera vel þekkta ritningarstaði fróðlegri? [be bls. 231 gr. 4-5]
5. Hvers vegna er mikilvægt að rökræða út frá versunum sem við lesum? [be bls. 232 gr. 3-4]
VERKEFNI NR. 1
6. Hvað bendir til þess að guðspjall Matteusar hafi fyrst og fremst verið ritað með Gyðinga í huga? [si bls. 176 gr. 6-7]
7. Hvernig getum við snúið hjörtum okkar að þeirri fræðslu sem ræðumaðurinn miðlar frá Guði? (2. Kron. 20:33) [be bls. 13 gr. 4–14 gr. 4]
8. Hvernig geta foreldrar hjálpað börnunum að hljóta „speki til sáluhjálpar“? (2. Tím. 3:15) [be bls. 16 gr. 3-4]
9. Hvernig varpar Matteusarguðspjall ljósi á uppfyllingu biblíuspádóma? [si bls. 181 gr. 32]
10. Í guðspjalli Matteusar er dregin upp sú mynd af Jesú að hann sé hinn fyrirheitni Messías og konungur. Hvernig er honum lýst í Markúsarguðspjalli? [si bls. 182 gr. 7-8]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Er alvarlegra að gefa reiði sinni útrás en að láta hana krauma innra með sér? (Matt. 5:21, 22) [w08 15.1. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir Matteusarguðspjalls“]
12. Hvernig halda kristnir menn auga sínu heilu? (Matt. 6:22, 23) [br4 bls. 23]
13. Á hvað var Jesús að leggja áherslu þegar hann spurði lærisveinana: „Hafið þér skilið allt þetta?“ (Matt. 13:51, 52) [w08 15.1. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir Matteusarguðspjalls“]
14. Af hverju lagði Jesús ríkt á við flesta sem hann læknaði „að þeir gjörðu hann eigi kunnan“? (Matt. 12:16) [gt 45; cl bls. 93-4]
15. Á hvað var Jesús að benda þegar hann talaði um „mæli“ sem maður ‚mælir með‘? (Mark. 4:24, 25) [wE80 15.6. bls. 12; gt kafli 43]